Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 309
309. fundur
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, varaformaður, Reynir Arnarson og Björn Emil Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar, 72. fundur 24. október 2005.
Rætt um dúk á sundlaug.
Fundargerð samþykkt.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, 728. fundur, dags. 23. september.
Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2006 ? Framkvæmdayfirlit, viðhaldsáætlun og stofnbúnaðarrammi.
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun, dags. 27. október 2005. Samþykkt að styrkjarammi verði alls 17,2 m.kr. Áætlun um skatttekjur samþykkt. Samþykkt að stofnbúnaðarrammi verði 6 m.kr.. Framlagðir rekstrarrammar samþykktir. Lögð fram drög að viðhaldsáætlun. Samþykkt að viðhaldsrammi verði 20 m.kr. Töluverðar umræður sköpuðust um leikvöll í Nesjahverfi. Starfsmönnum falið að ljúka málinu sem fyrst í samræmi við umræður á fundinum. Lögð fram drög að framkvæmdayfirliti til kynningar.
3. 9 mánaða uppgjör bæjarsjóðs og stofnana
Ásta fór yfir 9 mánaða uppgjör. Staðan er í samræmi við áætlanir.
4. Byggðáætlun 2006-2009
Lögð fram drög að umsögn. Bæjarráð felur starfsmönnum að ljúka við umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
5. Lóðaframboð á Höfn
Listi lagður fram til kynningar.
6. Ungmennalandsmót á Hornafirði 2007
Lögð fram samantekt, dags. 11. október 2005, um mannvirki og aðstöðu til landmóts 2007. Bæjarstjóri fór yfir vinnu nefndar sem skipuð var til að meta þörf á íþróttamannvirkjum.
Miklar umræður urðu um uppbyggingu íþróttamannvirkja, t.d. sundlaugar, frjálsíþróttasvæðis og fótboltavalla.
Bæjarráð felur undirbúningsnefndinni að vinna áfram í þeim anda sem hefur verið gert fram að þessu og óskar eftir kostnaðarmati á einstökum tillögum.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Samband íslenskra sveitarfélaga, dags. 20. október 2005, vegna aðgerðaráætlunar gegn ofbeldi á konum.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 19. október 2005, vegna fundar um ágreiningsmál á Skógeyjarsvæðinu.
Til kynningar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 18. október 2005, vegna innriturnar í fjarnám við Háskólann á Akureyri.
Til kynningar.
· Sveitarstjórn Djúpavogshrepps, bókun 20. október s.l., um ástand vegarins um Þvottár- og Hvalnesskriður og áherslur sveitarstjórnarinnar um framtíðartengingu milli Álftafjarðar og Lóns.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 21.október 2005, vegna ársfundar 2005, náttúruverndarnefnda og umhverfisstofnunar.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs og umhverfisnefndar.
8. Önnur mál
· Ásta kynnti sölu Bjarnarhóls 6.
· Bæjarstjóri kynnti stofnfund sjálfseignarstofnunar Jöklaseturs ses. Bæjarráð samþykkir að vera stofnaðili. Starfsmönnum falið að ganga frá formsatriðum í því sambandi.
· Bæjarráð Hornafjarðar telur brýnt að varanleg framtíðarlausn fáist í vegamál á milli Álftafjarðar og Lóns. Núverandi vegur sem liggur um Hvalnes- og Þvottárskriður getur ekki talist framtíðarlausn þó miklu fjármagni verði varið í úrbætur þar. Eftir því sem umferð eykst er öryggi vegfarenda á þessum slóðum æ oftar teflt í tvísýnu vegna grjóthruns skriðufalla, og ofsaveðurs sem geysar stundum á þessari leið eins og nýleg dæmi sanna. Bæjarráð Hornafjarðar telur einu varanlegu lausnina vera jarðgöng milli Lóns og Álftafjarðar á sama hátt og kom í ljós við Almannaskarð og hvetur samgönguyfirvöld að hefja rannsóknir og undirbúning vegna þessa sem fyrst.
Fundi slitið kl. 12.30


