Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 308
308. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 20. október 2005, kl. 8:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir. Áheyrnarfulltrúi: Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Össur Imsland.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 64. fundur, 6.október 2005.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum sínum við Búmenn um hugsanleg kaup á íbúðum.
Fundargerð samþykkt.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar 71. fundur, 10. október 2005.
Rætt um upplýsingamiðstöð. Kom fram að rætt hafi verið við grunnskólana og ferðamálafélagið. Bæjarráð samþykkir að flytja upplýsingamiðstöð í Jöklasýningu.
Fundargerð samþykkt.
Félagsmálaráð Hornafjarðar 133. fundur, 11. október 2005.
Elín spurði um þær reglur sem gilda hjá sveitarfélaginu varðandi börn sem verða fyrir ofbeldi og úrræði sem til staðar eru. Miklar umræður sköpuðust í kjölfarið. Halldóra óskaði eftir að tekið yrði saman minnisblað um stuðning sveitarfélagsins við einstæða foreldra og ungmenni 18-24 ára.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar HSSA 2005
Ásta fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun. Bæjarráð vísar áætluninni til bæjarstjórnar.
3. Fjárhagsáætlun 2006
Lagðir fram rekstrarrammar frá forstöðumönnum og ósk þeirra um stofnbúnað. Starfsmönnum falið að vinna áfram í samræmi við tillögur sem komu fram á fundinum.
4. Fjárlög 2006
Rætt um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Kom fram að ýmislegt snertir þar starfsemi sveitarfélagsins beint og eins eru önnur verkefni sem unnið er að í sveitarfélaginu sem þarf að halda áfram að fylgja eftir.
5. Flugmál
Miklar umræður sköpuðust um áætlunarflug.
Bæjarráð Hornafjarðar leggur ríka áherslu á öruggar og áreiðanlegar flugsamgöngur til og frá svæðinu. Borið hefur á að flugrekstraraðili sinni ekki skyldum sínum. Dæmin sanna að flug til Hornafjarðar hefur verið frestað vegna þess að flugvélar hafa ekki verið til taks í áætlunarflug. Einnig leggur bæjarráð Hornafjarðar áherslu á að þeirri óvissu sem nú ríkir vegna útboðs á flugi verði aflétt sem fyrst
Bæjarráð óskar eftir að fá skýringar frá flugrekstraraðila um ástæður þess að flug hafi ítrekað fallið niður þrátt fyrir að vel hafi viðrað til flugs.
6. Ósk um umsögn vegna jarðarkaupa
- Bréf Elínborgar Baldursdóttur og Elvars Sigurjónssonar dags. 5. október 2005.
Bæjarráð mælir með að Elínborg fái jörðina keypta. Vísað til starfsmanna til afgreiðslu.
7. Ósk um skiptingu lóðar
- Bréf Landsbanka Íslands og Efnarlaugar Dóru dags. 5. otkóber 2005
Vísað til tækni- og umhverfissviðs til afgreiðslu.
8. Ósk um umsögn um umsókn um leyfi til reksturs gistingar á einkaheimili
- Bréf Sýslumannsins á Höfn, dags. 13. október 2005.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir að sinni hálfu.
9. Innsend erindi og til kynningar
- Bréf frá Sigurði Kr. Sigurðssyni, dags. 11. október 2005.
Lagt fram uppkast að svarbréfi. Starfsmönnum falið að afgreiða málið í samræmi við umræður á fundinum.
- Byggðastofnun, dags. 10. október 2005, vegna uppkasts að byggðaáætlun
Frestað til næsta fundar.
- Styrktarsjóður EBÍ, bréf dags. 3. október 2005, tilkynning um styrk til verkefnisins „Í ríki Vatnajökuls - allt árið“.
Til kynningar.
- Dagur íslenskrar tungu ,menntamálaráðuneytinu, bréf dags. 3. október 2005, vegna Dags ísleskrar tungu 16. nóvember n.k..
Til kynningar.
- Umhverfisstofnun, afrit bréfs til Iðnaðarráðuneytisins, dags. 4. otkóber 2005, vegna efnistöku og varp efnis á Grynnslum utan við Hornafjarðarós.
Til kynningar.
- Skipulagsstofnun, tölvubréf dags. 7. október 2005, Skipulagsdagur 2005 - Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga um skipulagsmá.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
- Félagsmálaráðuneytið, dags. 5. október 2005, vegna tekjujöfnunarframlags 2005.
Til kynningar.
- Atvinnu- og ferðamálafulltrúa Rangárþings og Mýrdals, dags. 26. október, vegna stefnumótunarvinnu í atvinnu- og ferðamálum fyrir Rangárþing og Mýrdal.
Til kynningar.
- Fráveitunefnd umhverfisráðuneytisins, dags. 10. október 2005, vegna ráðstefnu í tilefni 10 ára afmælis laga nr. 53/1995.
Til kynningar.
- Áskorun til viðsemjenda FOSS, dags. 5. október 2005.
Til kynningar.
10. Önnur mál
- Lagt fram minnisblað frá Regulu lögmannstofu, dags. 19. október 2005, varðandi almennar og félagslegar kaupleiguíbúðir. Bæjarráð heimilar að unnið verði að innlausn íbúða sem málið varðar.
- Lagt fram kauptilboð í Bjarnarhól 6. Bæjarráð samþykkir að selja eignina hæstbjóðanda.
- Lagt fram verðtilboð frá þremur aðilum í endurnýjum á dúk fyrir gömlu sundlaugina.
- Gerð grein fyrir flóðum á Höfn. Bæjarráð lýsir ánægju með viðbrögð starfsmanna sveitarfélagsins, slökkviliðs og annarra aðila við flóðunum. Bent var á að nánari upplýsingar liggi frami á heimasíðu sveitarfélagsins.
11. Forstöðumenn mættu á fund bæjarráðs frá kl. 9.30-12.20 í þessari röð:
· Guðmundur Ingi Sigurbjörnsson
· Maren Sveinbjörnsdóttir
· Haukur Þorvaldsson
· Margrét Ingólfsdóttir
· Snæfríður H. Svavarsdóttir
· Þorvaldur Jón Viktorsson
· Þórgunnur Torfadóttir
· Þorbjörg Arnórsdóttir
Fundi slitið kl. 13.40


