Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 307
307. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 307. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 6. október 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi, Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 132. fundur 27. september 2005.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 63. fundur 29. september 2005 ásamt fundargerð Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs sama dag. Fundagerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 75. fundur 28. september 2005.
Lögð fram áætlun um laun vinnuhópa og annan kostnað við gerð skólastefnu 2005-2006, dags. 4. október 2005.
Rætt um heimavist. Kom fram að tveir nemendur eru á heimavist. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundarráð 71. fundur 26. september 2005.
Miklar umræður sköpuðust um dúk á sundlaug. Kom fram að bæjarráð hefur samþykkt og ítrekað að kaupa dúk á laugina.
Fundargerð samþykkt.
· Ráðgjafanefnd þjóðgarðsins í Skaftafelli, dags. 21. feb. 2005 og 12. ágúst 2005.
Rætt um fjárframlög til þjóðgarðsins og rekstur hans. Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2006
Ásta lagði fram drög að rekstrarrömmum fyrir fjárhagsáætlun 2006, dags. 6.október 2005. Bæjarráð samþykkir framlagða ramma.
3. Gerð grein fyrir fundum og viðræðum varðandi ýmis mál
Stefán lagði fram minnisblað vegna heimsóknar fulltrúa frá félagsmálaráðuneytinu til Hornafjarðar þann 29. september 2005. Í kjölfarið urðu miklar umræður um heimili fyrir fatlaða og hlut ríkisins og sveitarfélagsins varðandi það. Fundarmenn sammála um að þjónustusamningur hafi tekist vel og þegar ætti að hefja undirbúning að framlengingu hans.
Albert gerði grein fyrir viðræðum við fjárlaganefnd, fulltrúa í heilbrigðisráðuneyti, menntamálaráðherra um menningarmál og málefni háskólaseturs, við Búmenn og Siglingastofnun.
Þá skýrði hann frá fyrirlestri sem hann hélt á ráðstefnu sveitarfélaga um velferðamál.
Að lokum gerði Albert grein fyrir ferð starfshóps vegna ungmennlandsmóts 2007 til Víkur varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Eldvarnamiðstöðin, bréf dags. 28. september 2005, um slökkvibíla. Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
5. Önnur mál
· Ósk um greiðslu tónskólagjalda fyrir nemanda í tónskóla utan heimabyggðar. Fyrir lágu viðbótarupplýsingar um greiðsluþátttöku ýmissa sveitarfélaga. Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við umsókninni.
· Ásta kynnti bréf frá Hraun dags. 27. september 2005, vegna kaupleiguíbúða. Vísað til starfsmanna til úrlausnar.
Fundi slitið kl. 11.55


