Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 306
306. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 29. september 2005, kl. 10:00 í Ráðhúsi. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Björk Pálsdóttir og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi, Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Ásta H. Guðmundsdóttir
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 69. fundur 19. september 2005. Fundargerð samþykkt.
· SSA - fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs til kynningar. Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
Í fundargerð framkvæmdarráðs SSA frá 14. júlí er bókun um Upplýsingamiðstöð Austurlands. Í sambandi við þá bókun vill bæjarráð Hornafjarðar koma eftirfarandi á framfæri:
„Bæjarráð Hornafjarðar áréttar þá skoðun sína að á Hornafirði skuli rekin öflug upplýsingamiðstöð sem fái sambærilegar fjárveitingar frá opinberum aðilum og landshlutamiðstöðvar. Öflug upplýsingamiðstöð er mikilvægur þáttur í ört vaxandi ferðaþjónustu sunnan Vatnajökuls.“
Miklar umræður urðu um upplýsingamiðstöðvar og rekstur þeirra.
2. Skjólgarður dvalarheimili
Guðrún Júlía Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið. Guðrún Júlía fylgdi málinu úr hlaði.
Bæjarráð samþykkir fyrirlagðar tillögur ef ekki koma athugasemdir frá HÖR.
3. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2005
Bæjarráð samþykkir endurskoðun fjárhagsáætlunar 2005 og vísar henni til bæjarstjórnar.
4. Fjárhagsáætlun 2006
Lagt fram minnisblað dags. 26. september 2005 varðandi forsendur fjárhagsáætlunar 2006 ásamt álagningarreglum, fyrstu drögum að fjárhagsáætlun, áætluðum skatttekjum og greiðslubyrði langtímalána m.v. stöðu 2005. Einnig var lagt fram stöðuyfirlit rekstrar og framkvæmda dags. 26. sept. 2005.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði samkvæmt fyrirliggjandi minnisblaði og í samræmi við umræður á fundinum.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Nemendafélag FAS, bréf dags. 21. september 2005. Vísað til bæjarstjóra til úrlausnar.
6. Önnur mál
· Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags. Bæjarráð samþykkir.
· Lagt fram bréf frá Umhverfisstofnum um tillögur ráðgjafanefndar þjóðgarðsins í Skaftafelli vegna fjárlaga 2006. Til kynningar
Fundi slitið kl 11:30


