Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 305
305. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 22. september 2005, kl. 10:00 í Ráðhúsi. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi, Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd 20. fundur 5. september 2005.
Kristín spurði um hvort vitað væri hversu margir eru á atvinnuleysisskrá. Einnig spurði hún um gæðastýringu í sauðfjárrækt , sbr. fundargerð. Ekki er vitað um fjölda á skrá en mikil eftirspurn er eftir vinnuafli. Albert útskýrði hverning gæðastýring virkar og hvaða áhrif hún gæti haft á afkomu bænda. Rætt var um Norðurljósaverkefnið og háhraðatengingar í dreifbýli.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd 62. fundur 7. september 2005. Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd 63. fundur 6. september 2005.
Ásta lagði fram minnisblað dags. 22. september 2005 varðandi lið 2 í fundargerðinni. Bæjarráð samþykkir að á næsta fundi verði húsnæðismál tekin á dagskrá.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd 70 . fundur 14. september 2005.
Albert gerði að umtalsefni skipulagsbreytingar sem gerðar voru á Menningarmiðstöð og stjórnsýslusviði, benti hann á að tekin hafi verið ákvörðun um breytingar í eitt ár og meta þurfi reynsluna af breyttu skipulagi. Rætt var um fjölgun gesta á Jöklasýningu. Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 727. fundur 26. ágúst 2005 til kynningar.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands 56/25. fundur 7. september 2005 til kynningar.
2. Vaxtarsamningur
Bæjarstjóri kynnti málið og upplýsti að boðað verið til opins fundar 7. október n.k. þar sem lögð er áhersla á þátttöku íbúa og aðila úr atvinnulífinu í tenglsum við gerð vaxtasamningsins.
3. Umsögn um flugvelli í umdæmi sveitarfélagsins
· Bréf Flugmálastjórnar dags. 29.ágúst s.l. vegna flugvalla í umdæminu, gögn send út fyrir 304. fund.
Umsögn um rekstur Árnanesflugvallar:
Bæjarráð Hornafjarðar áréttar mikilvægi þess að yfirborð flugvallarins sé lagað, t.d. með malbiki eða ralomaki. Þetta tryggir minna steinkast við lendingu og ýtir frekar undir að erlendar vélar lendi á vellinum. Þá vill bæjarráð Hornafjarðar benda á að aðflugskerfið frá 1998 hefur ekki gagnast sem skyldi vegna þess að flugfélögin hafa ekki komið upp búnaði í vélum sínum til að nýta það. Nauðsynlegt er að byggja upp aðflugskerfi í samráði við flugfélögin. Ennfremur leggur bæjarráð Hornafjarðar áherslu á að fjármagn fáist til að opna þverbrautina á vellinum að nýju. Það er mikilvægt til að tryggja áreiðanleika í farþega- og sjúkraflugi. Fyrirhugaðar eru framkvæmdir við Hornafjarðarfljót og mikilvægt að yfirvöld samgöngumála gæti að því að skerða ekki möguleika til flugrekstrar á svæðinu samhliða nýrri framkvæmd. Að endingu óskar bæjarráð Hornafjarðar eftir góðu samstarfi við Flugmálastjórn og leggur til að samráð um rekstur vallarins verði aukið.
4. Reglur vegna starfsmannaráðninga
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur.
5. Minnisblað til fjárlaganefndar
Bæjarstjóri lagði fram minnisblað dags. sept. Starfsmönnum falið að ganga endanlega frá minnisblaðinu til fjárlaganefndar.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Hundaræktarfélag Íslands, bréf dags. 24. ágúst 2005, vegna hundahalds. Bæjarráð felur starfsmönnum að svara bréfinu.
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga v. jöfnunarframlaga 2005.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 7. september 2005, vegna nýbúafræðslu.
· Haust, aAðalfundur á Höfn 12. október, tilnefning fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar á fundinn.
Bæjarráð felur Birni E. Traustasyni að fara meðatkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 7. september 200, vegna öryggi leikvallartækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Bæjarráð vísar málinu til tækni og umhverfissviðs.
· Norðurís hf., bréf dags. 13.september 2005, vegna aðalfundar 22. september 2005.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ráðstafa atkvæði sveitarfélagsins.
· SSA, tölvubréf dags. 19. september 2005, gögn frá aðalfundi SSA til kynningar.
· SSA, tölvubréf dags. 19. september 2005, vegna kynningarfundar Skipulagsstofnunar á Hótel Héraði 26. september n.k..
Bæjarráð vísar málinu til tækni og umhverfissviðs.
7. Önnur mál
Ásta kynnti vinnu við endurskoðun á fjárhagsáætlun 2005 og verður hún lögð fram á næsta bæjarráðsfundi.
Albert kynnt fund með fjórum bæjarstjórum og menntamálaráðherra um úthlutun á framlögum ríkisins til menningamála á Austurlandi, einnig sagði hann frá fundi með starfsmönnum heilbriðgisráðuneytisins um breytingar á eldhúsi og dvalarheimili HSSA. Starfsmenn ráðuneytisins eru væntanlegir hingað til frekari viðræðna um málið.
Stefán lagði fram bréf ódagsett frá Skákfélaginu Hróknum um styrk vegna gjafar á bókinni Skák og mát til barna fædd 1997.
Bæjaráð samþykkir að veita 25.000.- til verkefnissins og vísar málinu til skólaskrfistofu.
Kristín spurðist fyrir um stöðu mála vegna tónlistanáms utan lögheililis. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi.
Fundi slitið krl 12:00


