Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 304
304. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 304. fundur Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 8. september 2005, kl. 10:00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdótttir og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi, Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Æskulýðs- og tómstundaráð 70. fundur 31. ágúst 2005 Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um starfsemi vinnuskólans fyrir næsta fund. Rætt var um málefni sundlaugar. Bæjarráð ítrekar fyrri samþykkt um kaup á nýjum dúk fyrir sundlaug. Rætt var um forvarnir. Fundargerð samþykkt.
2. Bjarnarhóll 6
Bæjarráð samþykkir að eignin verði seld.
3. Flugmálastjórn, ósk um umsagnir · bréf dags. 29.ágúst s.l. vegna flugvalla í umdæminu.
Ákveðið að taka málið fyrir á næsta fundi. Rætt um nauðsyn á lagfæringum á yfirborði vallarins, að þverbraut verði tekin á ný í gagnið, lagfæringu á aðflugsbúnaði og fleiri þátta. Hjalta falið að ræða við starfsmenn á Árnasflugvelli varðandi málið.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Framlag vegna jöfnunar tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti 2005. Til kynningar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags, 31. ágúst 2005 um fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 10. og 11. nóvember 2005. Til kynningar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags, 24. ágúst 2005, vegna EFTA námsstefnu 20. sept. n.k.. Til kynningar.
5. Önnur mál
· Lagður var fram tölvupóstur frá Hauki Þorvaldssyni dags. 7. sept. sl. vegna rampakaupa á brettasvæði og einnig ósk um aukningu á stofnbúnaði til félagsmiðstöðvar.
Bæjarráð samþykkir að kr. 300.000.- af óúthlutuðu fé fhá. 2005 til stofnbúnaðar deilda fari til þessa.
· Rætt var um slysagildru við gatnamót Kirkjubrautar og Vesturbrautar, starfsmönnum falið að vinna að lausn sem allra fyrst.
· Kristín gerði að umtalsefni nám í tónlistaskóla utan lögheimilis. Miklar umræður sköpuðust um málið. Málið verður tekið fyrir á næsta bæjarráðsfundi.
Fundi slitið kl. 11:30


