Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 303
303. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 303. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 1. september 2005, kl. 10:00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdótttir og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi, Eyjólfur Guðmundsson.. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Sigríður Kristinsdóttir lögfræðingur kom í byrjun fundar og upplýsti um stöðu mála varðandi fasteignamarkaðinn hér í sveitarfélaginu.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 131. fundur 23. ágúst 2005. Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 24. ágúst 2005.
Halldóra Bergljót óskaði eftir upplýsingum um sérfræðiþjónustu og stuðning í skólunum.
Miklar umræður urðu um ráðningamál kennara og ábyrgð stjórnenda og skólanefndar í þeim. Fundargerð samþykkt.
· Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 723. fundar 17. mars , 274. fundar29. apríl, 725. fundar 10. júní, 726. fundar 1.júlí 2005 til kynningar.
2. Endurskoðun á fjárhagsáætlunar 2005
Ásta fór yfir fyrstu drög að endurskoðun á fjárhagsáætlun 2005.
3. Skipan starfshóps vegna hugsanlegra framkvæmda í tengslum við ungmennalandsmót á Hornafirði árið 2007.
· Meðfylgjandi hugmynd um samsetningu hópsins og erindisbréfi. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Skólavist utan lögheimilissveitarfélaga. Bæjarráð hafnar erindi sveitarstjóra Skaftárhrepps um greiðslu fyrir nemendur sem eiga lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði og hafa sótt um námsvist í Kirkjubæjarskóla.
· Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 22. ágúst 2005, vegna Landnýtingarþáttar gæðastýringar í sauðfjárrækt, Laxárdalur í Nesjum.
Lagt fram bréf, dags. 30. ágúst 2005, frá Sævar Kr. Jónssyni, Vilborgu Jónsdóttur og Þorsteini Sigjónssyni vegna samskipti ábúenda Bjarnanesjarða við Landgræðslu ríkisins og landbúnaðarráðuneyti. Bæjarráð vísar málinu til umræðu í atvinnumálanefnd.
· Samband ísl. sveitarfélaga, dags. 26. ágúst 2005 vegna málþings sveitarfélaga um velferðarmál. Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 24. ágúst 2005 um nýtt starf á hag- og upplýsingasviði sambandsins. Til kynningar.
· Fjölmiðlavaktin, ódagsett bréf, skýrsla um umfjallanir fjölmiðla á hátíðum í sveitarfélögum 2005. Til kynningar.
5. Önnur mál
· Málefni fatlaðra - aukning á þjónustu og launagreiðslum. Stefán fylgdi málinu úr hlaði og sagði að þjónusta í þessum málaflokki vera að þyngjast. Bæjarráð samþykkir viðbót á launagreiðslum og vísar málinu til endurskoðunar á launaáætlun.
· Úthlutun vegna jarðhitaleitar bréf frá Orkustofnun dags. 30. ágúst 2005 varðandi úthlutun á styrk. Styrkupphæð nemur hæst 4,7 m.kr. en aldrei hærri upphæð en 50% af raunkostnaði skv. framlögðum reikningum.
· Svör Þóris Ólafssonar dags. 23. ágúst sl. vegna tónlistarnáms. Lagt fram til kynningar.
· Stefán lagði fram samning við Microsoft dags. 31. ágúst varaði leyfi á forritum Microsoft um er að ræða kostnað upp á um 1,2 mkr. á ári. Starfsmönnum falið að ljúka málinu. Fundi slitið kl. 12:10


