Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 302
302. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 302. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 25. ágúst 2005, kl. 10:00 í Ráðhúsi. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi, Eyjólfur Guðmundsson.. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Ungmennalandsmót á Hornafirði 2007
Formaður UMFÍ, Björn J. Jónsson, stjórn USÚ Ragnhildur Einarsdóttir, Jóhann Kristjánsdóttir og Kjartan Hreinsson einnig Friðrik Þ. Ingvaldsson og Haukur H. Þorvaldsson mættu á fundinn kl. 11.00. Hjalti lagði fram minnisblað dags. 24. ágúst varðandi málið. Miklar umræður urðu um væntanlegt lansdmót og undirbúning fyrir það.
2. Ósk um greiðslur launa á meðan námi stendur
· Ódagsett bréf. Starfsmönnum falið að semja reglur vegna fjarnámsnema sem eru starfsmenn sveitarfélagsins.
3. Ósk um greiðslur fyrir mat og vinnu kennara með nemendur í hádegishléum
· Bréf skólastjóra Nesjaskóla dags. 17. ágúst 2005. Bæjarráð samþykkir ekki aukin útgjöld vegna greiðslna fyrir vinnu í matartíma, en felur skjólastjórnendum að útfæra og samræma greiðslur til kennarar á milli skóla.
4. Framkvæmdir í Nýheimum
Hjalti lagði fram kostnaðaráætlun vegna innréttinga á ónýttu rými í Nýheimum. Bæjarráð samþykkir 1 mkr. en vísar málinu að öðru leyti til fjárhagsáætlunar 2005.
5. Ósk um val á samskiptaleið vegna kjarasamninga
· Bréf Foss dags. 15. ágúst s.l. undirritað af Elínu Björgu Jónsdóttur.
Bæjarstjóri skipaður tengiliður við FOSS vegna kjarasamninga.
6. Athugasemd landeigenda Hóla í Nesjum við skipulagstillögu um nýtt vegastæði fyrir þjóðveg 1
· Bréf landeigenda dags. 19. ágúst 2005. Vísað til endurskoðun á aðalskipulag. Framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs falið að svara erindinu.
7. Innsend erindi og til kynningar
· RARIK, viljayfirlýsing dags. 15. ágúst 2005. Til kynningar. ·
Samband ísl. Sveitarfélaga, tölvubréf dags. 22. ágúst 2005, vegna starfs þróunar- og skólafulltrúa. Til kynningar.
8. Önnur mál
· Lagt fram bréf varðandi Microsoft leyfi, dags. 4. júlí 2005.
Starfsmönnum falið að klára málið og leggja samning fyrir næsta bæjarráðsfund.
· Dagbók bæjarráðs og bæjarstjórnar veturinn 2005-2006 dreift.
· Hjalti Þór kynnti mál varðandi samning við félag aldraðra um starfssemi í Ekru. Bæjarráð heimilar að undirrita samninginn.
· Hjalti Þór og Stefán gerðu grein fyrir fundi sem þeir áttu varðandi starfsmannamál. Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga frá málinu í samræmi við umræður á fundinum og setja leiðbeinandi reglur um mannaráðningar.
· Bæjarráði var afhent af hópi bæjarbúa áskorun til bæjarstjórnar um byggingu á nýrri sundlaug í tenglsum við fyrirhugað unglingalandsmót 2007.
Áskorunin hljóðar svo: Lítil skóflustunga getur orðið að nýrri sundlaug fyrir unglingalandsmót 2007, ungdómnum og íbúm til vegs og virðingar. Látum tækifærið ekki fram hjá okkur fara.
Bæjarbúar.
Fundi slitið kl. 12:15.


