Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 301
Fundargerð 301. fundar
Bæjarráð Hornafjarðar 301. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 18. ágúst 2005, kl. 10:00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 130. fundur 9. ágúst 2005. Fundargerð samþykkt.
2. Jarðhitaleit
· Drög að samningi við RARIK.
· Drög að verksamningi við jarðfræðistofuna Stapa.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samningum við RARIK og jarðfræðistofuna Stapa og að leggja til 3 milljónir króna til verkefnisins og vísar því til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
Lögð er áhersla á að lokið verði við áframhaldandi samning við landeigendur.
3. Greiðsla tónskólagjalda fyrir nemendur í tónskólum utan heimabyggðar
Greint frá reglum ríkisins um greiðsluþátttöku með tónlistarnámi framhaldsskólanema.
Bæjarráð hefur áður fengið sambærilegar umsóknir og hafnað þeim. Í ljósi þess getur sveitarfélagið ekki tekið á þessari umsókn með öðrum hætti. Bæjarráð telur eðlilegt að ríkisvaldið standi straum af framhaldsnámi nemenda.
Starfsmönnum falið að afla frekari upplýsinga vegna málsins.
4. Mötuneytismál
· Bréf Ingólfs Einarssonar f.h. Kaffi Hornsins dags. 4. ágúst 2005.
Einar Karlsson vék af fundi undir þessum lið. Stefán greindi frá verðlagsþróun undanfarinna tveggja ára og frá viðræðum við Ingólf um verð á matarskömmtum á komandi skólaári.
Bæjarráð samþykkir fram lagða tillögu framkvstj. fræðslu- og félagssviðs sem jafnframt er falið að ljúka samningum um mötuneyti fyrir Hafnarskóla og Heppuskóla skólaárið 2005 ? 2006.
· Bréf Pálínu Þorsteinsdóttur dags. 8. ágúst 2005.
Bæjarráð vísar afgreiðslu á athugasemdum bréfsins til starfsmanna og þeim falið að ljúka því í samræmi við umræður á fundinum.
5. Ósk um formlegt samstarf við undirbúning unglingalandsmóts á Hornafirði 2007
· Bréf USÚ dags. 10. ágúst 2005.
Bæjarráð óskar eftir að fulltrúar USÚ mæti á næsta fund bæjarráðs til að ræða hugmyndir þeirra um framkvæmd mótsins.
6. Innsend erindi og til kynningar
· SSA,bréf dags. 20. júní 2005, um kostnaðarskiptingu vegna mats á jarðgangatenginga á Austurlandi. Bæjarráð samþykkir að taka þátt í kostnaði við matið skv. framlögðu bréfi. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
· Ogvodafone, bréf dags. 26. júlí 2005, boð um samning um fjarskiptaþjónustu. Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 8. ágúst 2005, um gjaldtöku vegna ferðþjónustu fataðra. Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Vaktstöð siglinga, bréf dags. 5. ágúst 2005, vegna öryggisþjónustu við sjófarendur. Vísað til hafnarstjórnar.
7. Önnur mál
· Spurt um dúk á sundlaug. Kom fram að dúkur á sundlauginni hefur haldið í sumar en ljóst að endurnýjunar er þörf. Helgi greindi frá tilboði í nýjan dúk og möguleikum á því að lengja lífdaga núverandi dúks. Í framhaldi var nokkuð rætt um ástand sundlaugar og hugsanlega nýbyggingu.
· Hjalti Þór gerði grein fyrir heimsókn fulltrúa Umhverfisstofnunar sem hefur óskað eftir starfsaðstöðu í Nýheimum í álmu Háskólasetursins.
Ennfremur var gerð grein fyrir fundi um aðstöðu fyrir fjarnemendur í sveitarfélaginu sem þurfa á les- og vinnuaðstöðu að halda.
Bæjarráð óskar eftir kostnaðarmati vegna hugsanlegra framkvæmda í Nýheimum og að það verði lagt fyrir næsta fund ráðsins.
Fundi slitið kl. 11:15


