Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 300
Fundargerð 300. fundar
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 10. ágúst 2005,
kl. 9:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi, Kristín G. Gestsdóttir
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Helgi M. Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
1. Samningsdrög við félag aldraða vegna breytinga á starfsemi í Ekrunni
Bæjarráð vísar til HÖR til umsagnar.
2. Sex mánaða uppgjör sveitarsjóðs
Ásta fór yfir sex mánaða uppgjör og sagði að uppgjörið væri í samræmi við fjárhagsáætlun, en ljóst er að laun verða hærri en áætlað var vegna hækkunar á launum í tenglsum við starfsmat sem samið var um í samningum 2002.
3. Áherslur vegna stofnframlaga til menningarmála
Hjalti gerði grein fyrir fundi sem bæjarstjórar á Austurlandi eiga um málið þann 22. ágúst n.k. Bæjarráð vísar málinu til menningarmálanefndar til umfjöllunar.
4. Ósk um niðurfellingu heilbrigðisgjalds
- Bréf dags 3. ágúst frá Svövu K. Guðmundsdóttur f.h. Markaðstorgs Hornafjarðar
Bæjarráð hafnar erindinu.
5. Ungmennalandsmót UMFÍ 2007
Bæjarráð fagnar því að landsmót verði haldið á Hornafirði 2007 og ítrekar stuðnings sinn varðandi framkvæmd mótsins.
6. Staða framkvæmda
Helgi Már fór yfir stöðu framkvæmda og lagði fram minnisblað dags. 5. ágúst s.l.
7. Önnur mál
- Hjalti gerði grein fyrir vinnu sem unnin hefur verið í tengslum við umsókn um styrk til tónlistarnáms. Málið verður áfram í vinnslu.
- Hjalti gerði grein fyrir aðsókn að söfnum og sýningum. Kom fram að aðsókn að Jöklasýningu hafi verið afar góð það sem af er sumri. Aukningin nemur um 50%.
Fundi slitið kl. 10:07


