Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 299
299. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 28. júlí 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir og Björn E. Traustason. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Helgi M. Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
1. Heppuskóli
- Bréf vegna 50% starf stuðningsfulltrúa. Bæjarráð samþykkir, en óskar eftir því að málið fái umfjöllun í skólanefnd.
- Bréf vegna einstaklingsmála. Málinu vísað til skólaskrifstofu.
2. Bréf vegna uppsagnar starfsfólks við Hrollaugsstaðaskóla
Bréf dags. 18. júlí 2005 varðandi uppsagnir starfsfólks við Hrollaugsstaðaskóla.
Viðkomandi starfsmönnum falið að ljúka málinu.
3. Samningur við Símann
Bæjarstjóri lagði fram samning um fjarskiptaþjónustu við Landsíma Íslands dags. 14. júlí sl.
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
4. Önnur mál
Birgir félagsmálstjóri mætti á fundinn vegna umræðna um stuðning sveitarfélagsins við ungt fólk í námi.
Skólalóð við Heppuskóla. Helgi kynnti tillögur frá Ullu R. Pedersen um skipulag skólatorgs, aðkomu og lóð við Heppuskóla.
Bæjarráð felur tæknideild að vinna að þessum tillögum í samræmi við umræður á fundinum og innan fjárhagsáætlunar.
Fundi slitið kl. 11:30


