Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 298
298.fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 7. júlí 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Einar Karlsson sem stjórnaði fundi, Reynir Arnarson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
- Félagsmálaráð Hornafjarðar 129. fundur 14. júní 2005.
Fundargerð samþykkt. - Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 62. fundur 30. júní 2005 ásamt fundargerð Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs sama dag.
Kristín ræddi um dagvist aldraðra og dvalarheimili og benti á að endurskoða þurfi samninga varðandi rekstur á Ekrunni. Bæjarráð óskar eftir að kostnaðaráætlun og tillögur um framkvæmd verði lagðar fram sem fyrst.
Fundargerð samþykkt. - Skólanefnd Hornafjarðar 73. fundur 22. júní 2005.
Rætt um Hrollaugstaðaskóla og framkvæmd á rekstri hans næsta skólaár.
Rætt um vinnu við mótun skólastefnu og fundarmenn lýstu yfir stuðningi við framlagða tillögu um vinnutilhögun.
Kristín spurði um bréf kennara í Nesjaskóla um greiðslu fyrir vinnu kennara með skólabörnum á matmálstímum. Því var svarað að eðlilegast væri að skólastjórnendur myndu gera tillögu um samræmingu í þessum málum.
Þá spurði Kristín um svör skólastjórnenda um veikindi og forföll starfsmanna skólanna. Stefán upplýsti um svörin og sagði að á síðasta skólaári hafi forföll verið meiri en í meðalári. Þá kom fram að ekki hafi verið hægt að bæta nemendum að öllu leyti upp kennslustundafjölda vegna forfalla kennara.
Fundargerð samþykkt. - Mötuneytisnefnd 4. fundur 26. maí og 5. fundur 22. júní 2005.
Til kynningar.
2. Tillögur mötuneytisnefndar
Einar vék af fundi undir þessum lið.
Lagðar fram tillögur dags. 22. júní 2005. Tillögurnar byggja á úttekt á rekstri mötuneyta ársins 2004 þar sem annars vegar kemur fram rekstrarkostnaður og hins vegar framleiðsluverð á matarskammt. Tillögurnar gera ekki ráð fyrir miklum breytingum á rekstri mötuneyta á komandi ári.
Tillögurnar samþykktar.
3. Rekstur og framkvæmdayfirlit 31. maí 2005
Ásta gerði grein fyrir rekstrastöðu sveitarfélagsins sem er í samræmi við fjárhagsáætlun. Þá fór Helgi yfir stöðu framkvæmda.
4. Greiðsla fyrir nemendur í tónskólum utan heimabyggðar
Lagt fram bréf Jóhanns Moráveks dags. 14. júní 2005 og umsókn dags. 30. júní 2005 um styrk vegna tónlistarnáms í Tónlistarskólanum í Reykjavík 2005-2006.
Jóhann Morávek mætti á fundinn undir þessum lið. Miklar umræður sköpuðust um málið.
Vísað til starfsmanna og óskað eftir minnisblaði um málið frá þeim.
5. Þekkingarsetur á landsbyggðinni
Greint var frá fundi um þekkingarsetur á landsbyggðinni sem haldinn var í Sandgerði fyrir skömmu. Í tengslum við umræður um uppbyggingu á þekkingarsetrum á landsbyggðinni vill bæjarráð Hornafjarðar koma eftirfarandi á framfæri:
Auknar rannsóknir, þekking og nýsköpun eru mikilvægir þættir í framþróun byggðar. Að frumkvæði Hornfirðinga risu Nýheimar upp sem eru glæsilegt óðal sem myndar vandað umhverfi fyrir nútíma störf á sviði þekkingar, menningar og nýsköpunar.
Þrátt fyrir að skammur tími sé liðinn frá opnun Nýheima hefur þekkingarsetrið þegar lagt drjúgan skerf til atvinnulífs, rannsókna, menntunar og menningar í héraðinu. Mikilvægt er að stuðla að frekari uppbyggingu og eflingu þekkingarsetursins Nýheima.
6. Vínveitingaleyfisumsóknir
- Einar B. Einarsson v. Jökulsárlón, umsókn dags. 30. mars 2005.
Samþykkt.
- Sigurbjörn Karlsson v. Ferðaþjónustunnar Smyrlabjörgum, dags. 17. maí 2005.
Samþykkt.
- Þóra V. Jónsdóttir v. Gisti og ferðaþjónustunnar að Skálafelli, umsókn dags. 30. maí 2005.
Samþykkt.
7. Ósk um umsagnir á útgáfu leyfa til reksturs gistiþjónustu
- Sýslumaðurinn á Höfn v. umsóknar Fjölnis Torfasona, Hala , dags. 15. júní 2005.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins fyrir sitt leyti.
- Sýslumaðurinn á Höfn v. umsóknar Björns B. Þorbergssonar,Gerði , dags. 15. júní 2005.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins fyrir sitt leyti.
8. Innsend erindi og til kynningar
- ÍSÍ, bréf dags. 10. júní2005, Íþróttir og heilsurækt eldri borgara.
Vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs.
- Byggðastofnun, bréf dags. 15. júní 2005, vegna byggðaáætlunar 2002-2005.
Starfsmönnum falið að vinna umsögn.
- Lýðheilsustöð og Landlæknisembætti, bréf dags. 10. júní 200 - Norræn lýðheilsuráðstefna 9. -11. október 2005.
Vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs.
- Félagsmálaráðuneytið og Jafnréttisstofa, bréf dags. 19. júní 2005, varðar jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði.
Vísað til félagsmálaráðs.
- Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 21. júní 2005, vegna uppgjörs á framlagi til jöfnunar á tekjutapi vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti 2005.
Til kynningar.
- Minnispunktar vegna fundar um menningarmiðstöðvar á Austurlandi 20. júní 2005.
Til kynningar.
- Umhverfisstofnun, ódagsett bréf , vegna aksturs utan vega.
Vísað til umhverfisnefndar.
- Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 30. júní 2005, framlag vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum 2005
Til kynningar.
- Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 21. júní 2005, vegna Umhverfisþings dagana 18.-19. nóvember.
Vísað til umhverfisnefndar.
9. Önnur mál
- Stefán greindi frá samningaviðræðum um skólaakstur við Kynnisferðir ehf. Samningar verða væntanlega undirritaðir í næstu viku.
Fundi slitið kl. 12.30


