Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 296
296. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 296. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 16. júní 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 61. fundur 9. júní 2005. Fundurinn var ekki löglegur.
Til kynningar.
· Umhverfisnefnd 52. fundur 6. júní 2005.
Rætt um veiðilaun fyrir refa- og minkaveiði. Starfsmönnum falið að vinna að málinu áfram. Halldóra benti á að með fyrirhleðslugörðum við strendur og árfarvegi séu sköpuð kjörskilyrði fyrir mink og mikilvægt sé að taka þetta til skoðunar við slíkar framkvæmdir. Spurt var um námu við Volasel. Bæjarráð leggur áherslu á að efnistaka sé í samræmi við samþykkt og frágangur við námuna verði samkvæmt reglum og samþykktum. Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands 55./24 fundur 8. júní 2005.
Albert gerði grein fyrir fundi starfmanna með fulltrúum Heilbrigðisnefndar Austurlands og Humarhátíðarnefndar. Til kynningar.
2. Afskriftir viðskiptaskulda
Lagt fram yfirlit dags. 16. júní 2005. Samþykkt að afskrifa viðskiptaskuldir hjá bæjarsjóði að upphæði kr. 652.803,- og hafnarsjóði að upphæð kr. 2.378.711,-. Búið er að afskrifa þessar kröfur í óbeinni afskrift í ársreikningi 2004.
3. Green globe 21
Fyrir fundinum lá umsögn umhverfisnefndar frá 52. fundi hennar. Bæjarráð samþykkir að kostir byggðasamlags á milli sveitarfélaga á Suðurlandi um verkefnið verði kannaðir, verkefnið verði kostnaðarmetið og framkvæmdaáætlun unnin. Starfsmönnum falið að fylgja verkefninu eftir.
4. Háskólasetrið á Hornafirði - staða og framtíð
Lögð fram fundargerð frá fundi starfsmanna sveitarfélagsins með forstöðumanni og formanni stjórnar Háskólaseturs. Miklar umræður sköpuðust. Bæjarráð leggur mikla áherslu á að háskólasetur á Hornafirði verði eflt, bæði til rannsókna og náms og er tilbúið að taka þátt í þeirri uppbyggingu eftir aðstæðum hverju sinni. Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga til viðræðna við Háskólasetrið um að setrið fái að nýta áfram 3ja herbergi í núverandi aðstöðu endurgjaldslaust.
5. Skólamál
· Skólaakstur skólaárið 2005- 2006 - tilboð Kynnisferða ehf.
Stefán kynnti gagntilboð. Starfsmönnum veitt umboð til að ganga frá samningi.
· Gjaldskrá lengdrar viðveru skólaárið 2005-2006.
Framlögð tillaga um 5% hækkun á næsta skólaári samþykkt.
· Laun skólastjóra og fulltrúa kennara fyrir fundarsetu á fundum skólanefndar.
Bæjarráð samþykkir að skólastjórar fái sömu greiðslur og kennarar fyrir fundarsetu í skólanefnd.
· Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Samþykkt.
· Hrollaugsstaðaskóli.
Lagt fram minnisblað frá Þorbjörgu Arnórsdóttur dags. 12. júní 2005 og fundargerð frá fundi foreldra skólabarna í Hrollaugsstaðaskóla með skólastjóra og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs, dags. 8. júní 2005. Miklar umræður sköpuðust um framtíð Hrollaugsstaðaskóla vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar næsta skólaár. Bæjarráð er ekki með áform um breytingar á skólahaldi næsta skólaár miðað við núverandi forsendur en leggur áherslu á að mannahald og kennslustundafjöldi verði í samræmi við breyttar þarfir skólans.
6. Útgáfa vínveitingaleyfa
· Sigurbjörn Karlsson v. Smyrlabjarga, umsókn dags. 17. maí 2005. Umsókn samþykkt.
· Knútur Bruun v. Frosts og funa. Hofi I, umsókn dags. 19. maí 2005. Umsókn samþykkt.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Umsókn Matthildar Ásmundardóttur um styrk vegna stafagönguverkefnis.
Umsókn hafnað.
· Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra minnissjúkra, bréf dags. 1. júní 2005.
Vísað til starfsmanna. · Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 31. maí 2005, vegna dags borgaravitundar og lýðræðis. Vísað til skólanefndar.
· ÍSÍ, bréf dags. 31. maí 2005, – Íslandsgangan - Haltur leiðir blindan, þátttaka sveitarfélaga og íþróttafélaga.
Vísað til æskulýðs- og tómstundafulltrúa og félagsmálastjóra.
· Byggðastofnun, bréf dags. 1. júní 2005, vegna upplýsingadisks um klasa. Til kynningar.
· SSA, tölvubréf dags. 7. júní 2005 vegna samnings um mat á samfélagsáhrifum og arðsemi jarðgangatenginga á Mið-Austurlandi. Bæjarráð leggur til að þessi vinna verði tekin inn í gerð vaxtarsamnings fyrir svæðið.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 3. júní 2005, vegna framlags. Til kynningar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags. 10. júní 2005, tilnefning tengiliðs vegna úttektar á vef sveitarfélagsins. Til kynningar.
· Lunga , Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, bréf dags. 10. júní 2005. Vísað til menningarmiðstöðvar með 25.000 króna framlagi.
· Fundur um menningarmiðstöðvar á Austurlandi. Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 9. júní 2005, til upplýsingar varðandi viðbrögð við grun um illa meðferð dýra.
Vísað til atvinnumálanefndar og forðagæslumanns.
· Heimsókn umhverfisráðherra 23. júní 2005. Til kynningar.
· Ráðstefna vegna NEST verkefnisins á Kirkjubæjarklaustri 21. júní 2005. Til kynningar.
· Heimsókn stjórnar Íbúðalánasjóðs 27. júní 2005.
Lagt fram minnisblað frá Sigríði Kristinsdóttur lögfræðingi, dags. 6. apríl 2005, um innlausn almennra- og félagslegra kaupleiguíbúða. Til kynningar.
8. Önnur mál
· Lagt fram bréf til bæjarstjóra frá formanni stjórnar félags aldraðra á Höfn, dags. 10. júní 2005, um dagvist aldraðra í Ekru. Bæjarstjóri kynnti erindið og taldi að hægt væri að hrinda þeim breytingum í framkvæmd sem fyrirhugaðar eru.
· Bæjarstjóri gerði grein fyrir ástandi Sundlaugar Hafnar. Dúkur á lauginni er illa farinn og þörf er á að endurnýja hann sem fyrst. Bæjarráð samþykkir að panta eigi dúk á Sundlaugina og vísar þessu til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
· Lagt fram bréf frá Ómari Antonsyni, dags. 15. júní 2005, vegna vinnusvæðis sunnan Almannaskarðsganga. Erindinu frestað.
· Halldóra B. Jónsdóttir ræddi um sjávarútvegssýningu í haust. Hún lagði til að kannað yrði hvort áhugi væri í sveitarfélaginu að kynna starfsemi tengda sjávarútvegi í samstarfi við aðra aðila á Höfn. Fundi slitið kl. 12.20


