Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 295
295. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 295. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 2. júní 2005, kl. 9:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Björk Pálsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir. Þá sat Rúnar Guðjónsson, sérfræðingur í samgönguráðuneytinu fundinn en hann mun vera í starfskynningu hjá sveitarfélaginu næstu vikurnar.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð 127. fundur 24. maí 2005. Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd 72. fundur 23. maí 2005. Rætt um umsókn um áframhaldandi stöðu aðstoðarkennara í Hafnarskóla út frá fjárhagslegum og faglegum hliðum. Bæjarráð samþykkir að halda núverandi fyrirkomulagi áfram næsta skólaár, þ.e. veturinn 2005-2006 á sömu forsendum og á yfirstandandi skólaári. Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd 69. fundur 25. maí 2005. Fundargerð samþykkt.
2. Fjögurra mánaða uppgjör sveitarsjóðs og HSSA
Lagt fram staða HSSA 30. apríl 2005 og rekstrar og framkvæmdaryfirlit sveitarsjóðs 30. apríl 2005. Ásta fór yfir stöðuna og kom fram í máli hennar að staðan sé í góðu samræmi við fjárhagsáætlun.
3. Vaxtasamningur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi á Egilstöðum með fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi um málið. Kom fram að ráðherra mun á næstu dögum skipa starfshóp. Bæjarráð samþykkir þátttöku í gerð vaxtarsamnings.
4. Ósk um tilnefningu til hvatningarverðlauna Þróunarfélags Austurlands
· Bréf Þróunarfélags Austurlands, ódagsett. Til kynningar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Fornleifavernd ríkisins –fundir vegna stefnumótunar fyrir fornleifavörslu á Íslandi, bréf dags. 24. maí 2005. Hjalti gerði grein fyrir fundi sem hann sat um málið.
· Iðnaðarráðuneyti/SSA - kynningarfundur um byggðaþróun og vaxtarsamning, tölvubréf dags. 25. maí 2005. Til kynningar.
· Rangárþing eystra- Green globe 21, framhald verkefnisins, bréf dags. 24. maí 2005. Lagt fram minnisblað dags. 5. maí um fund sem haldin var á Klaustri um málið. Bæjarráð telur um stórt og viðamikið verkefni að ræða og það þurfi að skoða betur m.t.t. kostnaðar og ávinnings. Bæjarráð hyggst taka málið fyrir á næstunni.
Vísað til umhverfisnefndar til umsagnar og óskar eftir að nefndin fjalli um málið sem fyrst.
· Umferðarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu vegna umferðaeftirlits á Höfn, bréf dags. 24. maí 2005. Til kynningar.
· Þróunarfélag Austurlands, aðalfundarboð. Bæjarstjóra falið að tilnefna fulltrúa.
· Menntamálaráðuneytið um minjavörslu og menningararf, tölvubréf dags. 26. maí 2005. Vísað til menningarmálanefndar.
6. Önnur mál
· Lagt fram bréf Ragnhildar Einarsdóttur formanns USÚ, dags. 30. maí 2005, vegna samstarfs um að halda Unglingalandsmót UMFÍ árið 2007. Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með umsókn USÚ og er tilbúið að styðja við verkefnið eftir því sem við verður komið.
· Stefán ræddi um námskeið vegna stefnumótunar. Kom fram að slíkt námskeið komi til með að nýtast mörgum stofnunum sveitarfélagsins. Bæjarráð hyggst skoða málið eftir sumarfrí.
· Stefán greindi frá fækkun nemenda í Hrollaugsstaðaskóla. Útlit er fyrir að fjórir nemendur verði í skólanum á næsta skólaári.
· Elín gerði grein fyrir dagskrá á vinabæjarmóti.
· Albert gerði grein fyrir framkvæmdum á Jöklasýningu og IceCoast ráðstefnunni.
· Albert kynnti umsækjanda um starf á tæknideild.
Fundi slitið kl.10.40


