Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 294
294. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 294.fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 26. maí 2005, kl. 10:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson bæjarstjóri og Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd 19. fundur 23. maí 2005.
Bæjarráð tekur undir að ýtt verði á að jarðhitaleit haldi áfram. Kom fram að styrkur hafi fengist vegna tilraunaborana. Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 61. fundur 18. maí 2005.
Lagt fram yfirlit yfir fjárhagsstöðu, dags. 30. apríl 2005, til kynningar. Halldóra gerði mötuneytismál að umtalsefni og lagði til að leitað verði til fagaaðila til að meta þörf fyrir stærð og útbúnað í eldhúsi. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 69. fundur 23. maí 2005.
Spurt um heitan pott í sundlaug, brettaaðstöðu og vinnuskóla. Kom fram að umsóknir í vinnuskólann séu færri nú en áður en von sé á fleirum umsóknum á næstu dögum. Lagt fram ódagsett skjal frá tækni- og umhverfissviði með tillögum fyrir brettaaðstöðu. Töluverðar umræður sköpuðust um brettaaðstöðu. Ákveðið að hluti núverandi körfuboltavallar með stækkun verði tekinn undir brettaaðstöðu. Fundargerð samþykkt.
2. Boð um hlutafjáraukningu
· Bréf Norðuríss ehf. dags. 12. maí 2005. Samþykkt að nýta forkaupsrétt sveitarfélagsins að upphæð kr. 365.962.
3. Vínveitingaleyfisumsókn vegna Sjómannadags
· Bréf Gísla Más Vilhjálmssonar f.h. Hótels Hafnar, dags. 23. maí 2005. Samþykkt.
4. Boð um umsókn í Styrktarsjóð EBÍ
· Bréf Önnu Sigurðardóttur dags. 23. maí 2005. Til kynningar.
5. Ósk um umsögn varðandi umsókn um skráningu lendingastaðar.
Bæjarráð sér ekkert athugavert við það fyrir sitt leyti að flugbrautin verði skráð sem lendingastaður.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Umhverfisstofnun vegna refa- og minkaveiða, bréf dags. 18. maí 2005.
Bæjarráð ítrekrar gagnrýni sína, frá 233. fundi sínum frá 11. desember 2003, á að ríkið skerði endurgreiðsluhlutfall vegna refa- og minkaveiði til sveitarfélaga úr 50% í 30% á sama tíma og stofnarnir virðast vera í vexti og valda síauknu tjóni. Vísað til umhverfisnefndar og óskað eftir tillögu frá nefndinni um greiðslur vegna refa- og minkaveiða.
· Siglingastofnun vegna kaupa á timbri til hafnaframkvæmda,bréf dags. 19. maí 2005. Bæjarráð samþykkir tillögur Siglingastofnunar. · Sjóvá ? almennar vegna vátrygginga sveitarfélagsins, bréf dags, 3. maí 2005. Til kynningar.
· Hafnasamband sveitarfélaga vegna breytingar á fjárhagsáætlun, bréf dags. 20. maí 2005. Til kynningar.
7. Önnur mál
· Lagt fram bréf frá Hrafnkatli Ingólfssyni, dags. 22. maí 2005, varðandi ráðningu í starf sundlaugarvarðar við Sundlaug Hafnar. Starfsmönnum falið að svara bréfinu í samræmi við umræður á fundinum. Ennfremur felur bæjarráð starfsmönnum að vinna að leiðbeiningum varðandi ráðningar hjá sveitarfélögum.
· Bæjarstjóri kynnti vígsluathöfn á Jöklasýningu.
· Bæjarstjóri gerði grein fyrir þátttöku sveitarfélagsins í IceCoast2005 ráðstefnunni sem haldin verður á Hornafirði 5.-8. júní.
· Lagt fram ódagsett bréf varðandi kofabyggð á Höfn í sumar. Bæjarráð vísar málinu til æskulýðs- og íþróttafulltrúa til framkvæmdar.
· Helgi Már gerði grein fyrir opnun tilboða vegna gatnagerðar við Bogaslóð. Bæjarráð samþykkir tilboð Rósaberg ehf. kr. 2.888.000 sem er 98% af kostnaðaráætlun. Ennfremur fór Helgi Már yfir stöðu framkvæmda. Fundi slitið kl.12.00


