Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 293
293. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 293.fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 19. maí 2005,
kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Formaður lagði til að fundargerð skólanefndar frá 18. maí yrði tekin á dagskrá.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 60. fundur 12. maí 2005.
Hákon Valdimarsson mætti á fund undir þessum lið. Umræður urðu um endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd 68. fundur 11. maí 2005.
Bæjarráð tekur undir lið 4 varðandi umhverfi Sindrabæjar og að gert verði átak til að fegra lóð Sindrabæjar samfara malbikun á plani.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn 68. fundur 11. maí 2005.
Bæjarráð spyr um dýpkun á Grynnslum og dýpkun vegna björgunarskips. Von er á verktaka í næsta mánuði vegna Grynnslanna og unnið er að dýpkun vegna Ingibjargar.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd 62. fundur 2005.
Kristín vék af fundi undir þessum lið. Bæjarráð telur eðlilegt að húsnæðisnefnd komi með tillögur til lausna á viðvarandi halla kerfisins. Ennfremur samþykkir bæjarráð að taka á dagskrá minnisblað frá Regula varðandi kaupskyldu.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um útgáfu vínveitingaleyfa
· Árnanes gistihús, umsókn dags. 1. apríl 2005.
Bæjarráð samþykkir umsóknina
· Flugleiðahótel, v/Hótel Eddu Nesjaskóla, umsókn dags. 3. maí 2005.
Bæjarráð samþykkir umsóknina
· Ís og ævintýri ehf,. v/Jöklasels, umsókn dags. 3. maí 2005.
Bæjarráð samþykkir umsóknina
Starfsmönnum er falið að skoða gjaldskrá og reglur um vínveitingaleyfi.
3. Umsókn um áframhaldandi stöðu aðstoðarkennara í Hafnaraskóla
Til kynningar.
4. Boð um hlutafjáraukningu í Norðurís ehf.
· Bréf Norðuríss ehf. dags. 12. maí 2005.
Málið var til kynningar og umræðu. Hjalti gerði grein fyrir samtali við framkvæmdastjóra NorðurÍss og lagði til að bæjarráð myndi hitta starfsmenn NorðurÍss á Hornafirði eftir helgina.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Samstarfshópur um norræna daga, tölvubréf dags. 9. maí 2005.
Bæjarráð vísar málinu til menningarmálanefndar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, tölvubréf dags. 9. maí 2005, um Bandalag evrópskra sveitarfélaga gegn kynþáttaformdómum.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálanefndar.
· SSA, tölvubréf dags. 10. maí 2005, um kynningarfund á Mjóafirði á verkefninu „Eflum sveitarstjórnarstigið“.
Til kynningar.
· Ályktanir Landsfundar jafnréttisnefnda sveitarfélaga, tölvubréf dags. 11. maí.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 11. maí 2005, vegna úthlutunar úr Jöfnunarsjóði.
Til kynningar.
5. Önnur mál
· Lagt fram bréf frá Önnu Maríu Ragnarsdóttur í Freysnesi, dags. 17. maí 2005, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins varðandi umsókn um skráningu flugbrautar í landi Freysness. Kom fram að brautin er á aðalskipulagi og þar hefur áður verið starfsemi þrátt fyrir að völlurinn væri ekki skráður. Ný reglugerð um flugvelli gerir ráð fyrir að sveitarfélag veiti umsögn um slíka umsókn en sambærilegt mál hefur ekki áður komið til kasta flugmálastjórnar. Bæjarráð vísar málinu til starfsmanna og afgreiðslu á næsta fundi.
· Fundargerð skólanefndar dags. 18. maí 2005. Bæjarráð samþykkir ráðningu Þórgunnar Torfadóttur sem skólastjóra Hanarskóla til eins árs og samþykkir fundargerð skólanefndar.
· Framkvæmdarstjóri fjármálasviðs óskar eftir samþykki bæjarráðs að láta sölumeta og auglýsa til sölu Hraunhól 4. Bæjarráð samþykkir.
Fundi slitið kl. 11.30


