Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 292
292. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 292. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 12. maí 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 54. fundur 27. apríl 2005 til kynningar. Til kynningar.
2. Ósk um útgáfu vínveitingaleyfa
· Umsókn Hólmars Kristmundssonar vegna veitingastaðarins Víkurinnar, dags. 7. maí 2004. Bæjarráð samþykkir útgáfu leyfa ef öllum skilyrðum er fullnægt. · Umsókn Renato Grünenfelder f.h. Fosshótels Vatnajökuls, dags. 10. janúar 2005. Bæjarráð samþykkir útgáfu leyfa ef öllum skilyrðum er fullnægt.
3. Ósk um umsagnir á útgáfu leyfa
· Sýslumaðurinn á Höfn vegna endurnýjunar á veitingaleyfi fyrir veitingastofu við Jökulsárlón, dags. 4. maí 2005. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir um útgáfu leyfisins af sinni hálfu.
· Sýslumaðurinn á Höfn vegna útgáfu á gistileyfi fyrir Guðrúnu Guðmundsdóttur og Magnús Guðjónsson í Hólmi, dags. 4. maí 2005. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir um útgáfu leyfisins af sinni hálfu.
4. Innsend erindi og til kynningar
· SSA , mat á samfélagsáhrifum jarðganga, bréf dags. 3. maí 2005. Afgreiðslu frestað.
· Regula lögmannsstofa, aðilaskipti á lögbýlinu Kot í Nesjum, bréf dags. 4. maí 2005. Til kynningar.
· Menningarráð Austurlands, úthlutun menningarstyrkja á Hótel Héraði 11. maí 2005, boðsbréf. Kom fram að styrkir sem veitt var til héraðsins voru m.a. kr. 1.000.000 til Þórbergsseturs, kr. 800.000 til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og kr. 600.000 til Hornfirska skemmtifélagsins.
· Brunabót, ágóðahlutagreiðsla að upphæð kr. 7.236.000 fyrir árið 2005, bréf dags.6. maí 2005. Til kynningar.
5. Önnur mál
§ Lagt fram uppsagnarbréf Arnbjargar Stefánsdóttur, skólastjóra Hafnarskóla, dags. 4. maí 2005. Miklar umræður urðu um skipulag skólamála næsta skólaár.
§ Lagt fram bréf frá Hornafjarðardeild RKÍ vegna styrks deildarinnar til að styðja við bretta- og línuskautaiðkun ungs fólks á Höfn, dags. 10. maí 2005. Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs og æskulýðs- og tómstundafulltrúa. Óskað er eftir tillögum á næsta fundi.
§ Lagður fram samningur milli bæjarstjórnar og eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagslegar aðgerðir og eftirlit dags, 9. mars og rekstraryfirlit sveitarsjóðs frá 1. janúar – 31. mars 2005 vegna samningsins. Samningurinn felur í sér sérstakt framlag til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að upphæð kr. 35.951.466. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningnum f.h. sveitarfélagsins.
§ Lögð fram umsókn Íslandspósts um lóð að Hafnarbraut 38, dags. 9. maí 2005. Bæjarráð samþykkir að úthluta Íslandspósti lóðina og vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
§ Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu að vaxtarsamningi. Kom fram að fulltrúar sveitarfélagsins hafi fundað með forsvarsmönnum Alcoa og Þróunarstofu Austurlands um vaxtarsamning. Auk þess hefur verið rætt við sveitarstjórnarmenn á Austurlandi. Kom fram að aðilar eru jákvæðir gagnvart hugmyndinni. Fyrirhugað er halda sameiginlega fund á næstunni.
§ Lagðir fram útreikningar á skólaakstri á vegum Kynnisferða vegna tilboðs, ódagsett. Starfsmönnum falið að ræða við aðila sem sjá um þann skólaakstur í sveitarfélaginu. Fundi slitið kl. 11.45


