Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 290
290. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 290.fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 28. apríl kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 60. fundur 20. apríl 2005.
Bæjarráð samþykkir tillögur heilbrigðis- og öldrunarráðs um að dagvist aldraðra verði flutt í þjónustumiðstöð aldraðra í Ekru og taki þar til starfa eftir sumarlokun. Bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarráðs varðandi áframhaldandi vinnu við endurskoðun á starfsemi HSSA við Hvannabraut.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 70. fundur 19. apríl 2005.
Rætt var um bréf leikskólastjóra um skipulagsbreytingar á leikskólum sveitarfélagsins. Stefán las upp úr gildandi skólastefnu og benti á ákvæði þar sem m.a. er kveðið á um verkaskiptingu leikskólanna. Skólastefnunni þurfi því að breyta samfara skipulagsbreytingum á leikskólum. Þá kom fram að kannanir í Heppuskóla sýna að verulega hefur dregið úr einelti frá því skólinn hóf þátttöku í Olweusaráætluninni.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafa- og minningasjóður Skjólgarðs 24. fundur 20. apríl 2005.
Fundargerð samþykkt.
2. Vaxtarsamningur
Kom fram að bæjarstjóri hafi fundað með iðnaðar- og viðskiptaráðherra ásamt embættismönnum úr ráðuneytinu. Von var á fulltrúa úr iðnaðarráðuneytinu á þennan fund bæjarráðs til að fara yfir vaxtarsamning en af því getur ekki orðið fyrr en eftir helgi. Kom fram að fullur hugur er í ráðuneytinu að koma vinnunni af stað nú í vor.
3. Erindi frá Sláturfélaginu Búa
Lagt fram bréf dags. 25. apríl 2005 varðandi ósk um kaup á stofnfé. Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið kaupi hluti í B-deild stofnsjóðs Sláturfélagsins Búa svf. að fjárhæð kr. 1.127.395,- og vísar til endurskoðunar á fjárhagsáætlun ársins. (Einar vék af fundi undir þessum lið).
4. Tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára vegaáætlun fyrir árin 2005-2008.
Bæjarráð ítrekar erindi sveitarfélagsins til fjárlaganefndar sem lagt var fram á fundi nefndarinnar í september 2004 varðandi samgöngumál. Þar kemur fram að áhersla er lögð á að ný brú yfir Hornafjarðarfljót sé mesta samgöngubótin innan héraðsins. Sú framkvæmd styttir vegalengdir innan sveitarfélagsins verulega og auðveldar öllum íbúum sveitarfélagsins að njóta þjónustu og sækja atvinnu í sveitarfélaginu öllu. Undirstrika skal að ný brú yfir Hornafjarðarfljót er einnig mikil samgöngubót á þjóðvegi 1 og auðveldar verulega bæði fólksbíla og þungabíla umferð um svæðið. Í erindinu er einnig lögð áhersla á að fækka einbreiðum brúm í sveitarfélaginu og tryggja öruggar flugsamgöngur frá Hornafirði til Reykjavíkur. Ennfremur ítrekar bæjarráð bókun sem samþykkt var á 84. fundi bæjarstjórnar dags. 7. apríl 2005 þar sem frestun á framkvæmdum við Hornafjarðarfljót er mótmælt. Jafnframt, vegna breytts umhverfis í flugsamgöngum þar sem m.a. er verið að nota aðrar flugvélategundir í áætlunarflugi en áður, er þörf á að endurbyggja þverbrautina þannig að aukið öryggi færist bæði í áætlunar- og sjúkraflug.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Alcoa, tölvubréf dags. 25. apríl 2005, um kynningu á viðskiptatækifærum tengdum álveri. Kom fram að bæjarstjóri situr fundinn í dag.
6. Önnur mál
Lögð fram drög að skipulagi vinnuskóla Hornafjarðar, samþ. í æskulýðs- og tómstundaráði 6. apríl 2005. Bæjarráð samþykkir drögin.
Lagt fram aðalfundarboð fyrir Húsfélagið Ekru sem haldinn verður laugardaginn 30. apríl 2005. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Lagt fram bréf frá Hrafnkeli Ingólfssyni, dags. 26. apríl 2005, vegna lagfæringa á umhverfi Hafnarbúðar. Vísað til tækni- og umhverfissviðs. Fundi slitið kl. 10:55


