Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 289
289. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 289.fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, föstudaginn 22. apríl kl. 08:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 18. fundur 18. apríl 2005.
Halldóra ræddi um vaxtasamning og skipun starfshóps honum tengdum, einning tengingu við þær stofnanir sem eru í Nýheimum.
Fundargerð samþykkt
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 59. fundur 14. apríl 2005.
Fundargerð samþykkt
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 67. fundur 12. apríl 2005.
Rætt var um samning milli FAS og Menningarmiðstöðvar og töldu nefndarmenn hann hafa mjög jákvæð áhrif.
Fundargerð samþykkt
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 125. fundur 12. apríl 2005.
Fundargerð samþykkt
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 51. fundur 18. apríl 2005.
Halldóra tekur undir bókun varðandi samræmingu og tengingu á gönguleiðum á Höfn og göngustígum í kringum golfvöllinn í samvinnu við hlutaðeigandi aðila. Bæjarráð er sammála um að við frágang á frárennslisframkvæmdum verði gert ráð fyrir endurbótum á göngustígum.
Fundargerð samþykkt
2. Ársreikningur fyrir árið 2004
Ásta fylgdi ársreikningi úr hlaði. Bæjarráð vísar ársreikningi til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Samningur milli sveitarfélagsins og eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga
Lögð voru fram drög að samningi til kynningar, dags. 15. apríl. Bæjaráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi í samræmi við umræður á fundinum.
4. Ósk um uppsetningu á upplýsingaskilti
Lagt fram bréf frá húsfélaginu að Litlubrú 1, dags. 14. apríl 2005.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· SSA vegna aðalfundar SSA 2005, bréf dags. 6. apríl 2005.
Til kynningar.
· SSA vegna sameiningar sveitarfélaga, bréf dags. 6. apríl 2005.
Til kynningar.
· Ályktun um málefni tónlistarskóla og greinargerð frá stjórn Félags tónlistarskólakennara, bréf dags. 10. apríl 2005.
Elín upplýsti að verið væri að vinna í þessu máli á vegum SSA.
· Sláturfélagið Búi vegna aðalfundar, bréf dagsett 12. apríl 2005.
Bæjarstjóra falið að mæta á fundinn
· Samband ísl. sveitarfélaga vegna landsfundar jafnréttisnefnda, tölvubréf dags. 13. apríl 2005.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið vegna bókunar bæjarstjórnar frá 7. apríl, bréf dags. 14. apríl 2005.
Til kynningar.
· Félag leikskólakennara vegna ályktana frá aðalfundi félagsins, dags. 5. apríl 2005.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Stefán kynnti námskeið hjá Endurmentun HÍ um stefnumótun og lagði fram tilboð dags. 19. apríl 2005. Stefáni falið að skoða málið betur.
Halldóra Bergljót lagði fram eftirfarandi bókun varðandi flugvöllinn:
?Kannað verði við Flugmálastjórn af hverju ekki sé leitað álits sveitarstjórnar áður en farið er í breytingar á flugvellinum og mannvirki gerð ónothæf eins og gert var við þverbrautina á Árnanesflugvelli. Einnig hvaða reglur gilda við útboð verkefna á vegum Flugmálastjórnar hér á svæðinu.
Það er nokkuð ljóst að ekki mun verða farið út í framkvæmdir við nýja þverbraut á allra næstu árum og því er það örryggisatriði fyrir íbúa svæðisins að hægt sé að lenda á núverandi þverbraut meðan að svo er. Einnig á það að vera sjálfsögð regla hjá ríkisstofnun að vinna með heimamönnum og leita álits þegar breytingar eru á döfinni. Því teljum við æskilegt að þverbrautin verði gerð nothæf á ný.?
Bæjarráð samþykkir framlagða bókun og felur bæjarstjóra að fylgja henni eftir.
Fundi slitið kl: 10:05


