Bæjarráð
Fudnargerð bæjarráðs 288
288. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 288. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 14. apríl kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Helgi M. Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Byggingar og skipulagsnefnd Hornafjarðar 58. fundur 7. apríl 2005. Fundargerð samþykkt.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 58. fundur 7. apríl 2005. Fundargerð samþykkt.
Mötuneytisnefnd 2. fundur 30. mars 2005. Fundargerð samþykkt.
Æskulýðs- og tómstundaráð, 67. fundur, 6. apríl 2005. Kristín telur að sumarbæklingur eigi að koma út fyrir 20. maí.
Halldóra telur að upplýsingar vegna sumarstarfs eigi að vera á heimasíður sveitarfélagsins.
Elín leggur til að bæjarráð skoði framkvæmdirnar við Sindrabæ og Mánagarð. Ákveðið að fara í skoðunarferð eftir bæjarráðsfund föstudaginn 22. apríl n.k.
Fundargerð samþykkt.
2. Samningur við endurskoðanda.
Bæjarstjóra heimilað að ganga til samninga við Lárus Finnbogason hjá endurskoðunarskrifstofunni Delotte.
3. Ósk um færslu upplýsingaskiltis
Bréf Kiwanisklúbbsins Óss dags. 5. apríl 2005. Ósk um að færa upplýsingaskilti Kiwanisklúbbsins Óss á reit við Lónsafleggjara. Hjalti greindi frá því að erindi ætti einnig eftir að berast frá Þjóðgarðinum um að setja niður skilti á sama stað. Starfsmönnum falið að gera tillögu að skipulagi á reitnum við Lónsafleggjara í samvinnu við viðkomandi aðila og vísar málinu til byggingar og skipulagsnefndar.
4. Ósk um umsögn um frumvarp
Bréf félagsmálanefndar Alþingis dags. 5. apríl 2005 vegna frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga. Bæjarráð ákveður að veita ekki umsögn um frumvarpið.
5. Innsend erindi og til kynningar
Umhverfisráðuneytið, vegna dags umhverfisins 25. apríl sem tileinkaður er þjóðgörðum og náttúruvernd, bréf dags. 23. mars 2005. Vísað til umhverfisnefndar.
Félagsmálaráðuneytið, um breytingu á reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, bréf dags. 29. mars 2005. Til kynningar.
Ragnar Frank Kristjánsson, afrit af bréfi til Vegagerðarinnar vegna brúar yfir Sæluhúsakvísl á Skeiðarársandi, bréf dags. 29. mars 2005. Til kynningar.
Lánasjóður sveitarfélaga, um vaxtalækkun af lánum af endurlánafé 2003 og 2004, bréf dags. 4. apríl 2005. Til kynningar.
Nefnd um aðlögun tekjustofna sveitarfélaga að nýrri sveitarfélagaskipan og breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, bréf dags, 5. apríl 2005. Vísað til fjármálasviðs.
Nefnd um sameiningu sveitarfélaga, tillaga sameiningarnefnda, bréf dags. 5. apríl 2004, Vefslóð:www.felagsmalaraduneyti.is/media/efling/skyrsla_sameiningarnefndar_lokatillogur31032005.pdf. Til kynningar.
Sýslumaðurinn á Höfn vegna fundar um málefni Skógeyjar, bréf dags. 5. apríl 2005. Til kynningar.
Bengt G. Gustafsson vegna vinabæjarmóts, tölvupóstur,dags. 4. apríl 2005. Til kynningar.
Rekstraryfirlit bæjarsjóðs 31. desember 2004, til kynningar. Ásta lagði fram rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2004. Þar kom fram að skatttekjur eru 3% yfir áætlun en gjöld 99% af áætlun. Niðurstaðan er 20,6 mkr. í afgang en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 8,9 mkr. í halla. Rekstur sveitarfélagsins er því um 30 mkr. betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
6. Önnur mál
Starfsmenn gerðu grein fyrir að kostnaður vegna heimsóknar nemenda frá Sisimuit á Grænlandi 29. apríl n.k. er áætlaður um 500 þús. kr. Bæjarráð óskar eftir því að kannað verði við foreldra nemenda Heppuskóla hvort þeir gætu hýst nemendur frá Sisimuit.
Kynnt var tilboð dags. 11. apríl 2005 frá ISS Ísland í ræstingu á bæjarskrifstofum Hornafjarðar. Bæjarráð hafnar tilboðinu en þakkar fyrir sýnda áhuga.
Helgi lagði fyrir endanlegar tillögur að malbiksframkvæmdum, gert er ráð fyrir aukningu um 5 mkr og heildarframkvæmdir verða um 39 mkr. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur dags. 14. apríl.
Helgi upplýsti að Valur Sveinsson hefur sagt starfi sínu lausu. Fundi slitið kl. 11.45


