Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 287
287. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 287. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 31. mars kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Helgi M. Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Félagsmálaráð Hornafjarðar 124. fundur 22. mars 2005.
Skólanefnd Hornafjarðar 69. fundur 16. mars 2005.
Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar um að hefja kennslu í 8. bekk við Grunnskólann í Hofgarði frá og með skólaárinu 2005 ? 2006. Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á að gætt verði ýtrasta hagræðis við þessa aukningu á kennslu við skólann.
Vegna 5. liðar í fundargerð skólanefndar, ?Skipulagsbreytingar á leikskólum sveitarfélagsins ? bréf leikskólastjóra á Lönguhólum og í Krakkakoti? vill bæjarráð árétta eftirfarandi:
Áður en teknar verða ákvarðanir um slíka grundvallarbreytingu á skipulagi leikskólamála, sbr. bréf leikskólastjóra, fari fram víðtæk og vönduð umræða um þetta mál þar sem gætt verði að kalla til alla þá sem hagsmuna eiga að gæta. Vegna ábendinga í bréfi leikskólastjóra um á skort á leikskólakennurum felur bæjarráð leikskólastjórum í samvinnu við framkvæmdastjóra sviðsins að leita allra leiða til að úr þessari stöðu verði bætt.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 53. fundur 16. mars 2005 til kynningar.
2. Reikningar 2004 deildayfirlit
Ásta fór yfir deildaryfirlit 2004 þar kom fram að skatttekjur eru 3% yfir áætlun og rekstur málaflokka 3 % undir áætlun. Bæjarráð óskar eftir að forstöðumenn allra stofnana geri grein fyrir rekstrarniðurstöðum ársins 2004 og skýri um leið einstaka rekstrarliði sem ekki eru í samræmi við fjárhagsáætlun.
3. Endurskoðun lögreglusamþykktar sveitarfélagsins · Athugasemdir nefnda.
Bæjarráð leggur áherslu á að ákvæði í lögreglusamþykkt séu í fullu samræmi við landslög og felur starfsmönnum að vinna áfram að samþykktunum og leggja fyrir á vinnufundi bæjarstjórnar.
4. Samstarfsnefnd lögreglu- og sveitarfélags · Tilnefning sveitarfélagsins í nefndina
Bæjarráð tilnefndir Birgir Kjartansson í nefndina.
5. Malbikunarframkvæmdir ? forgangsröðun
Helgi lagði fram tillögur um malbikunarframkvæmdir í sumar. Bæjarráð ítrekar að á fjárhagsáætlun 2004 voru settar 3,6 mkr. til framkvæmda í Nesjahverfi og samþykkir að Hæðargarður og Hraunhóll verði tengdir og lagðir varanlegu slitlagi. Jafnframt verði lokið við fyrirhugaðan leikvöll. Vísar málinu til frekari vinnu tæknideildar í samræmi við umræður á fundinum.
6. Innsend erindi og til kynningar
- Samatekt frá ráðstefnunni Undom- Demokrati og deltagelse, bréf menntamálaráðuneytisins dags. 15. mars 2005. Til kynningar
- Ólafsvíkuryfirlýsingin ósk um upplýsingar, bréf dags. 16. mars 2005. Bæjarráð vísar málinu til tækni- og umhverfissviðs til afgreiðslu.
- Tilkynning um jöfnun á tekjutapi vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti 2005, bréf félagsmálaráðuneytisins dags. 16. mars 2005. Vísar málinu til fjármálastjóra
- Afþökkum frá Samsø kommune vegna vinabæjamóts, bréf dags, 17. mars 2005. Til kynningar, Elín upplýsti að það komi 8 manns frá Kungelv.
- Beiðni um upplýsingar um framkvæmdir m.t.t. lagningu ljósleiðara, bréf Símans dags. 18. mars 2005. Bæjarráð vísar málinu til tæknideildar.
7. Önnur mál
Bréf frá Rangárþingi Eystra dags. 29. mars 2005 varðandi Green Globe 21 Bæjarráð samþykkir að taka þátt í viðræðum viðkomandi sveitarfélaga.
Helgi lagði fram breytingar á eingaskiptasamningi á Litlubrú 2. Bæjarráð samþykkir eignaskiptasmning ásamt fyrirliggjandi yfirlýsingu. Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu.
Einnig lagði Helgi fram tillögur frá Úllu Pedersen dags. 11/3 um skipulagningu á lóð við Heppuskóla, til kynningar. ·
Kristín spurðist fyrir um vinnu við aðalskipulagið og lagði áherslu á að vinna færi sem fyrst af stað. Einnig spurðist hún fyrir um framtíð jöklarútunnar og Adsl tengingu í Nesjum.
Ekki liggja fyrir upplýsingar varðandi jöklarútuna. Albert upplýsti um samskipti sín við Símann vegna málsins.
Bæjarráð hvetur til þess að Adsl tengingu verði komið á í Nesjahverfi.


