Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 286
286. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 286. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 18. mars kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
- Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 17. fundur 14. mars 2005.
Bæjarráð leggur til að hugmyndir um betrunarheimili í sveitarfélaginu verði sett í vinnu við vaxtarsamning fyrir svæðið. Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumálanefndar um heimasölu afurða bænda. Kristín ræddi um hversu mörg verkefni væri verið að vinna að í héraði sem lofa góðu. Þá tók hún undir tillögu um að gera könnun meðal ferðamanna um hvað þeir vildu helst upplifa á Íslandi yfir vetrartímann. Fundargerð samþykkt.
- Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 57. fundur 10. mars 2005.
Kristín spurði um greinargerð lögreglunnar á Höfn um umferð. Kom fram að tæknideild hafi verið falið að gera tillögur að nýjum hraðatakmörkunum í bænum. Björn benti á nauðsyn þess að byggja upp vindbrjót við nýja veginn við Almannaskarð. Fundargerð samþykkt. · Félagsmálaráð Hornafjarðar 123. fundur 8. mars 2005.
Fundargerð samþykkt.
- Menningarmálanefnd Hornafjarðar 66. fundur 9. mars 2005.
Elín fagnaði auknu samstarfi milli FAS og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Fundargerð samþykkt.
- Umhverfisnefnd Hornafjarðar 50. fundur 14. mars 2005.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að framgangi Green Globe 21 verkefnisins. Fundargerð samþykkt.
2. Erindi leikskólastjóra á Hornafirði
Lagt fram bréf frá leikskólastjórum á Hornafirði, dags. 9. mars 2005. Vísað til afgreiðslu skólanefndar. Bæjarráð tekur undir nauðsyn þess að fá fleiri menntaða leikskólakennara til starfa við leikskóla í sveitarfélaginu.
3. Ósk um umsögn á setu á jörð Lagt fram bréf Gísla Jóhanssonar, dags. 9. mars 2005.
Starfsmönnum falið að veita umbeðna umsögn.
4. Drög að verklagsreglum vegna ráðstöfun barna í fóstur
Reglurnar samþykktar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga v. úthlutunar v. fatlaðra nemenda, bréf dags. 8. mars 2005.
Til kynningar.
· Jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar v. málþings um málefni innflytjenda, tölvubréf dags. 10. 2005.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Vinnueftirlitið v/aðgerða vegna eineltis á vinnustað, bréf dags. 1. mars 2005. Bæjarstjóra falið að vinna að málinu..
· Menntamálaráðuneytið v/málþings um fljótandi skil leik- og grunnskóla, bréf dags. 8. mars 2005. Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Samband íslenskra sveitarfélaga vegna nýmæla í stjórnun sveitarfélaga. Til kynningar.
6. Önnur mál
- Samningur ríkisins við sveitarfélög á Austurlandi um menningarmál kynntur.
Bæjarráð staðfestir samninginn fyrir sitt leyti.
- Farið yfir fund fulltrúa sveitarfélagsins með forsætisráðherra í gær.
Á þeim fundi lýsti forsætisráðherra yfir að ríkisstjórnin væri reiðubúin að vinna að vaxtarsamningi fyrir Suðausturland ásamt heimamönnum. Ennfremur kom fram hjá ráðherra að ríkisstjórnin komi að uppbyggingu Jöklasýningar í samræmi við tillögur um samstarf.
- Stefán gerði grein fyrir heimsókn nemenda 9. bekkjar frá Sisimuit á Grænlandi.
Starfsmönnum falið að undirbúa heimsóknina.
- Bæjarstjóri upplýsti að á aðalfundi Frumkvöðlaseturs Austurlands í gær hefðu allir hluthafar samþykkt að halda starfsemi setursins áfram næstu þrjú ár. Ennfremur lýsti allir yfir ánægju sinni með starf frumkvöðlasetursins.
Fundi slitið kl. 11.30


