Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 285
285. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 285. fundur FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 10. mars kl. 10:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Björn E. Traustason og Björk Pálsdóttir. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 66. fundur 3.mars 2005. Spurt um hvenær framkvæmd við bryggju verði boðin út. Kom fram að það yrði snemma í sumar. Fundargerð samþykkt. · Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 59. fundur 7. mars 2005. Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi fulltrúa sveitarfélagsins í Heilbrigðisráðuneytinu í síðustu viku. Töluverðar umræður sköpuðumst um áfangaskýrslu nefndar um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga. Kom m.a. fram að Hornafjörður hafi mikla landfræðilegra sérstöðu sem undirstrikað er í skýrslunni. Björk spurði um kostnaðarauka vegna starfsmats. Ásta upplýsti um starfsmat og kostnaðarauka fyrir HSSA. Fundargerð samþykkt. · Stjórn Sambands ísl. Sveitarfélaga 722. fundur 18. febrúar 2005 til kynningar. Kristín gerði breytta námskipan til stúdenprófs og störf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga að umtalsefni. Stefán ræddi um breytta námskipan til stúdentsprófs og áréttaði mikilvægi þess að sveitarfélög gættu hagsmuna sinna í málinu. Einnig kom fram að á fundi með menntamálaráðherra með fulltrúum sveitarfélagsins hafi verið fullyrt að kostnaðarauki sveitarfélaga væri enginn ef að breytingum yrði.
2. Reglur um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Reglurnar samþykktar.
3. Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Gjaldskráin samþykkt.
4. Aðalfundur Menningaráðs Austurlands.
Bæjarráð tilnefnir Björk Pálsdóttur sem aðalmann í stjórn Menningaráðs, Guðlaugu Hestnes og Kristínu Gestsdóttur til vara. Samþykkt.
5. Samstarfssamningur sveitarfélaganna á Austurlandi um menningarmál
Lagt fram bréf frá SSA, dags. 5. mars 2005. Samningurinn samþykktur.
6. Framlenging samningstíma samstarfssamnings um Háskólasetrið á Hornafirði
Samningurinn samþykktur.
7. Samningur við VÍS vegna Jöklasýningar
Bæjarstjóri fór yfir samning við VÍS vegna vátrygginga og Jöklasýningar. Bæjarstjóra heimilt að ganga til samninga samkvæmt framlögðu tilboði og gögnum.
8. Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir hringveg um Dynjanda
Sveitarfélagið veitir leyfi til framkvæmda fyrir sitt leyti.
9. Lóðarumsókn frá kirkjugarðsstjórn Hafnarkirkjugarðs
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
10. Kynning á niðurstöðum jarðhitaleitar
Ómar Bjarki Smárason (í síma) fór yfir yfir skýrslu, dags. 7. mars 2005, sem barst í tölvupósti í morgun. Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
11. Innsend erindi og til kynningar
· Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu, afmælishátíð 12. mars 2005. Til kynningar. · Menntamálaráðuneytið v skóladaga í Grunnskólanum í Hofgarði, bréf dags. 18. febrúar 2005. Skólastjóra Grunnskólans í Hofgarði hefur verið falið að svara erindinu og veita tilhlítandi upplýsingar. · Samband ísl. sveitarfélaga v. kynnisferðar sveitarstjórnarmanna til Brussel, bréf dags. 1. mars 2005. Til kynningar. · Talnakönnun hf. v/lífeyrisskuldbindinga sveitarfélagsins bréf dags. 25. febrúar 2005. Ásta útskýrði málið. · Samkeppnisstofnun vegna erindis Galdurs, bréf dags. 1. mars 2005. Kristín óskaði eftir aðgangi að þeim gögnum sem Samkeppnisstofnun krefst að fá varðandi málið.
12. Önnur mál
Helgi gerði grein fyrir tillögum að breytingum á aðalskipulagi við Fagurhólsmýri. Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu. · Lagt fram bréf frá Ómar Antonssyni, dags 8. mars 2005, vegna malarnáma í landi Horns. Vísað til tækni- og umhverfissviðs. · Lögð fram greinargerð um gólfefni á íþróttahúsi dags. 10. mars 2005. Starfsmönnum falið að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum. · Ásta lagði fram lista dags. 8. mars 2005 um endanlegar afskriftir viðskiptaskulda sem lögfræðingur endursendi vegna gjaldþrota og nauðasamninga. Afskrift sveitarsjóðs kr. 3.427.496 og afskrift Hornafjarðarhafnar að upphæð kr. 1.114.464. Afskriftir eru því alls kr. 4.541.960. Bæjarráð samþykkir afskriftirnar. Fundi slitið kl. 12.40


