Bæjarráð
Fudnargerð bæjarráðs 284
284. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 284. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 3. mars kl. 10:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Björn E. Traustason og Björk Pálsdóttir. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar 68. fundur 23. febrúar 2005.
Stefán fjallaði um breytingar á vistunartíma á leikskólum. Vegna óska leikskólastjóra á Lönguhólum og Krakkakoti las Stefán upp tölvubréf frá leikskólastjórum til formanns skólanefndar um málið, dags. 17. febrúar 2005. Lagt fram bréf frá starfsmönnum leikskólanna, dags. 1. mars 2005, þar sem breytingum á vistunartímum er mótmælt. Kristín sagðist vera sammála starfsfólki og starfsmönnum um að þrengja ætti vistunartíma með það að markmiði að efla hið faglega starf. Björn Emil taldi þörf fyrir þá breytingu sem skólanefnd leggur til þar sem mörg börn væru sótt um fjögur leytið. Björk lagði áherslu á að leikskólinn væri þjónustustofnun og foreldrar borguðu hluta af rekstri skólans og á þeim forsendum geta foreldrar gert kröfur um þjónustu. Hún sagðist styðja tillögu skólanefndar. Elín gerði samþykkt skólanefndar um breytingar á reglum um vistunartíma á leikskólum að umtalsefni. Hún lagði áherslu á hið mikilvæga faglega starf sem unnið er að í leikskólum sveitarfélagsins. Þá lagði hún áherslu á að hún sé ekki að fullu sammála niðurstöðu skólanefndar og telur mikilvægt að vistunartímar í framtíðinni verði sniðnir að því faglega starfi sem unnið er að í leikskólunum. Lögð fram drög að áætlun um kostnað við að hefja kennslu í 8.-10. bekk í Grunnskólanum í Hofgarði. Stefán fjallaði um vinnu í framhaldi af skólamálaþingi. Sagði hann mikilvægt að til athugunar verði tekin skólaganga barna frá byrjun leikskóla til loka grunnskóla þar sem samfella í námi og starfi skólabarna verði höfð að leiðarljósi. Þá ræddi hann mikilvægi þess að hefja vinnu við nýja skólastefnu sveitarfélagsins sem fyrst. Einnig fjallaði hann um hugmyndir um tvo sjálfstæða leikskóla, sem meðal annars voru ræddar á skólamálaþingi og sú vinna ætti að vera hluti af endurskoðun á skólastefnu. Töluverðar umræður sköpuðust í kjölfarið. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs og tómstundaráð 66. fundur 28. febrúar 2005.
Helgi lagði fram minnisblað um stækkunarmöguleika íþróttahúss og tilboð í nýtt gólfefni í íþróttahús Hafnar, ódagsett. Kristín lýsti ánægju sinni með að skoða vandlega tilhögum og verkaskiptingu varðandi vinnuskólann. Töluverðar umræður sköpuðust í kjölfarið um vinnuskólann. Fundargerð samþykkt.
· Mötuneytisnefnd 1. fundur 14. febrúar 2005. Til kynningar.
2. Reglur vegna óhappa og slysa barna í grunnskólum, tónskóla og félagsmiðstöð ungmenna
Reglurnar samþykktar.
3. Reglur vegna óhappa og slysa barna í leikskólum
Reglurnar samþykktar.
4. Tillaga um greiðslur til skólastjóra vegna setu á fundum skólanefndar
Tillaga um 2500 kr. fyrir fund sem er sama greiðsla og kennarar fá. Samþykkt.
5. Tillaga um þáttöku um verkefni Lýðheilsustöðvar
Lagðar fram þrjár fundargerðir stýrihóps um verkefni Lýðheilsustöðvar til kynningar. Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefni Lýðheilsustöðvar sem lýtur að aukinni hreyfingu og mataræði barna og ungmenna „Allt hefur áhrif, einkum við sjálf“.
6. Samningur við VÍS vegna Jöklasafns
Frestað til næsta fundar þar sem gögn hafa ekki borist.
7. Kynning á niðurstöðum vegna jarðhitaleitar
Frestað til næsta fundar vegna fjarveru Ómars Bjarka Smárason.
8. Ósk um leyfi til byggingar mótels í landi Fagurhólsmýrar Lagt fram bréf Vilhjálms Sigurðssonar og Hjálmars Péturssonar dags. 10. febrúar 2005. Bæjarráð fagnar framkominni hugmynd. Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Samband ísl. Sveitarfélaga v. boðunar á 19. landsþing sambandsins, dags. 14. febrúar 2005. Til kynningar. · Alþjólega umhverfissamkeppnin “The International Awards for Livable Communities“ bréf dags. 17. febrúar 2005. Vísað til umhverfisnefndar. · Neyðarhjálp úr norðri – þakkarbréf dags. 21. febrúar 2005. Til kynningar. · Samband ísl. Sveitarfélaga – málþing um barnamenningu, tölvubréf dags. 23. febrúar 2005. Til kynningar. · Lífeyrisskuldbindingar sveitarfélagsins, bréf Talnakönnunar dags. 25. febrúar 2005. Til kynningar.
10. Önnur mál
Rætt um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn Menningarráðs Austurlands á næsta kjörtímabili ráðsins. Kosið verður 15. mars n.k.. Tekið fyrir sem sérliður á næsta fundi. Stefán fór yfir tölvumál hjá sveitarfélaginu.
Fundi slitið kl. 11.45


