Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 283
283. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 283. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 22. febrúar kl. 15:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
- Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 16. fundur 15. febrúar 2005.
Bæjarstjóri upplýsti að fulltrúar sveitarfélagsins fari á fund í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 23. febrúar til að ræða málefni Ratsjárstofnunar.
Fundargerð samþykkt.
- Félagsmálaráð Hornafjarðar 122. fundur 15. febrúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
- Umhverfisnefnd Hornafjarðar 49. fundur 14. febrúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
- Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 720. fundur 10. desember 2004 og 721. fundur 24. janúar 2005
Til kynningar.
2. Staðardagskrá 21
Helgi Már gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið í sveitarfélaginu og aðdraganda að þátttöku í verkefninu. Lagt fram tölvubréf frá sveitarstjóra Skaftárhrepps, dags. 18. febrúar, þar sem óskað er eftir samstarfi um Green Globe 21 vottunarkerfis fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu og / eða Beluga umhverfisverndar- og umhverfisvottunarferli. Erindinu vísað til umhverfisnefndar.
3. Skýrsla verkefnisstjórnar um nýskipan lögreglumála
(Páll Björnsson sýslumaður mætti á fundinn kl. 15.00). Páll rakti aðdraganda að gerð þessarar skýrslu og t.d. fór hann yfir umræður um fækkun sýslumannsembætta sem áttu sér stað fyrir allmörgum árum. Hann sagði að nefndin hefði verið sett á laggirnar til að skoða kosti ýmissa breytinga á lögreglustjóraembættum, t.d. fækkun þeirra. Töluverðar umræður sköpuðust í kjölfarið um málið. (Páll vék af fundi kl. 15.40).
(Einar Sigurjónsson, lögregluþjónn kom á fundinn kl. 16.22). Taldi hann að vegna landfræðilegrar sérstöðu héraðsins sé ekki raunhæft að áætla að miklar breytingar geti átt sér stað í héraðinu, einkum vegna fjarlægðar í sveitarfélaginu og í næstu lögregluumdæmi. (Einar vék af fundi kl. 16.35).
4. Reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð
(Birgir Kjartansson félagsmálastjóri mætti á fundinn undir þessum lið) Birgir rakti aðdraganda að breytingum á reglunum og kynnti helstu breytingar. Lagt til að síðasta setning í 12.gr verði þannig: Sé um veruleg vanskil á láni skv. 6.gr. í reglum þessum, húsaleigu, leikskólagjöldum og mötuneytiskostnaði skóla er gerð sú krafa að umsækjandi geri grein fyrir greiðsludrætti á fullnægjandi hátt.
Reglurnar samþykktar.
5. Innsend erindi og til kynningar
- Iðnnemasamband Ísland v/dagvistunar barna, bréf dags. 4. febrúar 2005.
Til kynningar.
6. Önnur mál
- Bæjarstjóri lagði fram tölvubréf frá Stefaníu Kristinsdóttur f.h. Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands vegna framlengingar á samningi vegna Háskólaseturs um eitt ár, dags. 22. febrúar 2005. Bæjarstjóra veitt umboð til að ganga frá samningi.
- Bæjarstjóri upplýsti að VÍS væri tilbúið að leggja 5 m.kr. í jöklasýninguna og endurnýja um leið tryggingarsamninginn sem rennur út um næstu áramót. Málið sett formlega á dagskrá á næsta fundi.
- Lagt fram bréf frá ríkiskaupum vegna auglýsingar á útboði á stöðluðum hugbúnaði fyrir vinnustöðvar og netþjóna, dags. 18. febrúar 2005. Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
- Kynnt var hugmynd að rafrænu fundarboði. Fyrirhugað er að gera tilraun með slíkt fyrir næsta fundi hafnarstjórnar. Starfsmönnum falið að vinna að þróun hugmyndarinnar.
Fundi slitið kl. 17.00


