Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 282
282. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 17. febrúar kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
- Hafnarstjórn Hornafjaðrarhafnar 65. fundur 9. febrúar 2005.
Halldóra spurði um þjónustubryggju fyrir netaverkstæði. Þá óskaði hún eftir upplýsingum um Soffíu. Kristín spurði um stæði fyrir björgunarskip.
Bæjarstjóri upplýsti að stuðningur Siglingamálastofnunar vegna þjónustubryggju vegna netaverkstæði lægi fyrir. Þá gerði hann grein fyrir að almenn samstaða væri í hafnarstjórn um þörf fyrir slíka bryggju og verið væri að kanna ýmsa kosti í stöðunni. Þá gerði hann grein fyrir að málefni Soffíu séu til skoðunar. Bæjarstjóri upplýsti að framtíðarstæði fyrir björgunarskip yrði væntanlega á bryggjunni vestan við Hafnarvogina.
Töluverðar umræður sköpuðust um opin frárennslisskurð við Bræðsluna og hvort hægt væri að gera úrbætur þar.
Fundargerð samþykkt.
- Menningarmálanefnd Hornafjarðar 65. fundur 9. febrúar 2005.
Halldóra spurði um Sögukort fyrir Austurland. Kom fram að áhugi innan menningarmálanefndar hefur dvínað mikið.
Fundargerð samþykkt.
- Launanefnd sveitarfélaga 203. fundur 26. janúar 2005 til kynningar.
Til kynningar.
- Fundargerð 8. ársfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2. nóvember 2004 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
- Fundargerð 26. og 27. stjórnarfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, 17. nóvember 2004 og 18. janúar 2005 til kynningar.
Kristín ræddi um hækkun á húshitunarkostnaði. Hún spurði hvort áhugi væri fyrir því að halda áfram að þrýsta á aðgerðir gegn hækkunum í bæjarráði og minna á bókun bæjarráðs um málið frá 13. janúar s.l.. Bæjarstjóri gerði grein fyrir að bókunin hafi verið send til hlutaðeigandi aðila og hyggst halda málinu til streitu. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína frá 13. janúar og leggur áherslu á að fundin sé lausn á málinu sem fyrst.:
-Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna frétta um breytingar á raforkuverði og hækkana á ákveðna notendur samfara því. Bæjarráð mótmælir einkum því að með breytingunum er verið að hækka raforkuverð til íbúa á landsbyggðinni. Bæjarráð skorar á yfirvöld og ráðherra orkumála að tryggja aðgerðir sem leiðrétta auknar álögur sem bitna á íbúum landsbyggðarinnar og sérstaklega dreifbýlisins vegna nýju raforkulaganna.?
2. Ósk um styrk
- Lagt fram bréf frá Daufblindrafélagi Íslands ódagsett.
Vísað til félagsmálaráðs.
3. Skýrsla verkefnisstjórnar um nýskipan lögreglumála
Lagt fram minnisblað um málið dags. 8. febrúar 2005.
Kom fram að hlutverk verkefnisstjórnar hafi verið að gera tillögur að breytingum á umdæmaskipan við löggæslu og innra starfi lögreglunnar án þess að fækka sýslumönnum.
Þá kom fram að tillögur verkefnisstjórnar hvað Austur-Skaftafellsssýslu varðar eru óljósar. Bæjarráð telur mikilvægt að fylgst sé vandlega með umræðu og áætlunum um breytta skipan þessara mála og ítrekar það sem áður hefur verið sent frá sér að frekar þurfi að efla löggæslu og umrædda þjónustu á svæðinu en skerða. Bæjarráð mun óska eftir fundi með sýslumanni og lögreglumönnum til að fara yfir málið áður en endanlega afstaða verður tekin til skýrslunnar.
4. Vegur að Jöklaseli
- Bréf Bjarna S. Bjarnasonar dags. 9. febrúar 2005.
Bæjarráð telur brýnt að bæta veginn og upp að Jöklaseli við Skálafellssjökul og viðhalda honum vel, ekki síst í ljósi þess að hann er eini akvegurinn inn á jökulinn í nýjum Vatnajökulsþjóðgarði.
5. Innsend erindi og til kynningar
- Samband ísl. Sveitarfélaga dags. 3. febrúar 2005 um lok gildandi samnings Staðardagskrár 21.
Málinu tekið á dagskrá fyrir næsta fund.
- Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 31. janúar 2005, vegna úthlutunar framlaga til nýbúfræðslu árið 2005.
Til kynningar.
- Upplýsingar frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi dags. 8. febrúar 2005 um ýmis málefni.
Til kynningar.
6. Önnur mál
- Bæjarráð tilnefnir Hjalta Þór Vignisson, Hermann Hansson og Kristínu Gestsdóttur sem fulltrúa á aðalfund Menningarráðs Austurlands og Albert Eymundsson, Elínu Magnúsdóttir og Þorbjörgu Arnórsdóttir til vara.
- Stefán gerði grein fyrir svari frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hvort greiða skuli skólastjórum og fulltrúum kennara fyrir setu þeirra á fundum skólanefndar. Kom fram að bera greiði þessum aðilum þóknun sem sveitarstjórn ákveður. Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
- Kynntar hugmyndir um hugsanlegt starf ferða- og menningarfulltrúa, sem m.a. hefði umsjón með Jöklasýningu, upplýsingamiðstöð, Listasafni Austur-Skaftafellssýslu og menningarviðburðum á vegum sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að staðan verði auglýst.
- Halldóra ítrekar að gengið verði eftir að bílflök verði fjarlægð úr innkeyrslum.
Fundi slitið kl. 12.00


