Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 281
281. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 10. febrúar kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
- Félagsmálaráð Hornafjarðar 121. fundur, 25. janúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
- Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 57. fundur, 25. janúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
- Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 58. fundur, 1. febrúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
- Skólanefnd Hornafjarðar 67. fundur, 26. janúar 2005
Halldóra spurði um ávinning af breytingum á vistunartíma leikskólabarna. Þá spurði hún um hvernig vinnu við hugsanlegar skipulagsbreytingar í Grunnskólanum í Hofgarði miðaði. Þá gerði hún fæðiskostnað kennara í skólum að umtalsefni og taldi rétt að þar yrði farið eftir kjarasamningum.
Kristín spurði um vinnu sem miðaði endurskoðun á vistunartíma barna í leikskólum. Þá ræddi hún um skipulagsbreytingar í Grunnskólanum í Hofgarði.
Stefán upplýsti að hugsunin með breytingum á vistunartíma væri eingöngu faglegs eðlis. Þá gerði hann grein fyrir að svör foreldra í Öræfum hafa ekki öll borist enn þá. Þá ræddi hann ýmis sjónarmið sem komið hafa fram varðandi skipulagsbreytingar í Grunnskólanum í Hofgarði.
Töluverðar umræður sköpuðust í kjölfarið um málið.
Fundargerð samþykkt.
- Æskulýðs- og tómstundaráð, 65. fundur, 24. janúar 2005.
Kristín tók undir bókun æskulýðs og tómstundaráðs um að leitað verði leiða til að ná fram öðrum áherslum í styrkveitinum og verkaskiptingu milli sveitarfélagsins og umf. Sindra. Þá tók hún undir umræður í æskulýðs- og tómstundaráði varðandi humarhátið og taldi að ákveðinn tímapunkti væri náð með hátíðina.
Elín tók undir orð Kristínar um humarhátið.
Halldóra velti því upp hvort verðlauna ætti reyklausa bekki á unglingastigi.
Bæjarstjóri benti á að umf. Sindri standi undir stórum hluta af rekstri sínum á annan hátt en með styrkjum bæjarins. Þá gerði hann humarhátíð að umtalsefni og þær hugmyndir sem komið hafa fram um að færa hátíðina yfir á vetrartímann til að draga að gesti og ferðamenn til bæjarins utan háannar í ferðaþjónustu.
Halldóra taldi rétt að skoða þessa hugmynd vandlega.
Fundargerð samþykkt.
2. Úthlutun styrkja 2005
Lögð var fram eftirfarandi tillaga að úthlutun:
Björgunarfélagið 250.000
Slysavarnarfélagið Kári 250.000
Skógræktarfélagið 100.000
Félag aldraðra 350.000
Kvikmyndaefni Rafns Eiríkssonar 150.000
Nemendafélag FAS 50.000
Fuglaathugunarstöðin 150.000
Samtals 1.300.000
Tillagan samþykkt.
3. Staða starfsmats
Gerð grein fyrir vinnu við starfsmat. Búið er að ganga frá starfsmati fyrir flesta FOSS félaga og verið er að vinna í starfsmati fyrir Vökuls félaga.
4. Málefni Frumunnar
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að sá tímapunktur væri komin að endurskoða ætti starf og framtíð Frumunnar. Bæjarráð felur bæjarstjóra umboð til að fara með málefni sveitarfélagsins á aðalfundi félagsins og samþykkir að standa verkefninu næstu þrjú árin.
5. Ósk um aukafjárveitingu
- Bréf skólastjóra Heppuskóla dags. 22. janúar 2005.
Kristín velti því upp hvort hægt væri að fá menntamálaráðuneytið til að taka þátt þessum kostnaði.
Beiðnin samþykkt.
6. Ósk um gerð hraðahindrana á Dalbraut
- Bréf með undirskriftum stuðningsmanna afhent 26. janúar 2005.
Halldóra óskaði eftir því að skýrslan Umferðin okkar sem lögreglan á Höfn senti til bæjarráðs yrði tekin til skoðunar.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
7. Styrkumsókn
- Bréf verkefnisstjóra "Ég er húsið mitt" dags. 19.. janúar 2005.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
8. Tillaga/greinargerð um nýsköpun í atvinnulífi á Hornafirði.
Bæjarráð fagnar frumkvæði og framkominni tillögu Jóns Garðar Bjarnarsonar.
Vísað til atvinnumálanefndar.
9. Ósk um tilnefningu fulltrúa í stýrihóp fyrir NEST verkefnið og vinnuhópa sem verkefninu tengjast.
Bæjarráð tilnefnir Hjalta Þór Vignisson og Ingu Jónsdóttir sem fulltrúa sveitarfélagsins í stýrihóp fyrir verkefnið. Bæjarráð felur fulltrúum sínum í stýrihópnum að tilnefna fulltrúa sveitarfélagsins í vinnuhópa.
10. Umboð Jöklasýningarnefndar
(Inga Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið). Inga gerði grein fyrir hvar málefni Jöklasýningar eru stödd og næstu skrefum.
Bæjarráð veitir Jöklasýningarnefnd fullnaðar umboð til að fara með málefni Jöklasýningar í samræmi við upplýsingar og umræður á fundinum.
11. Útboð á áætlunarflugi til Hornafjarðar
Vegna útboðs á áætlunarflugi milli Hornafjarðar og Reykjavíkur vill Bæjarráð Hornafjarðar leggja áherslu á eftirfarandi:
Mikilvægt er að flugvélakostur sem boðið er upp á sé sem fullkomnastur. Farþegar hafa kvartað yfir óþægindum þegar jafnþrýstibúnaður er ekki í flugvélunum. Á þetta einkum við viðkvæmir sjúklinga sem virðast þola verr breytingar á loftþrýstingi.
Ljóst er út frá hagsmunum farþega, hagsmunaaðila sem nota flugið mest og samfélagsins í héraðinu að flugrekandinn hafi yfir ákveðinni fjölbreytni að ráða í flugvélakosti til að geta flutt minni og stærri hópa eftir því hvernig eftirspurn er á hverjum tíma. Það eru t.d. ótvíræðir hagsmunir ferðaþjónustunnar að þessi möguleiki sé fyrir hendi.
Mikilvægt er að staðið sé við ákvæði um stundvísi á ferðum og liður 3.3 Röskun á áætlun ? Samfelld þjónusta sé alfarið virtur. Borið hefur á óánægju vegna þessara atriða gagnvart núverandi flugrekendum.
Bæjarráð fagnar því að tryggja á áætlunarflug milli Hornafjarðar og Reykjavíkur tímabilið 2006 til 2010 og treystir því að sá aðili sem fær verkefnið sinni því vel og sýni metnað til að auka flutninga á leiðinni í samvinnu við hagsmunaaðila og heimamenn.
12. Ósk um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Menningarráðs Austurlands 15. mars n.k.
Frestað til næsta fundar.
13. Lögreglusamþykkt sveitarfélagsins - beiðni GHH um að koma inn ákvæði
Kristín kom með tillögu að breytingum að í stað Silfurnesvallar stæði íþróttasvæði.
Beiðninni vísað til vinnu að endurskoðun lögreglusamþykktar.
14. Könnun á áhuga um samstarf vegna útgáfu næsta tbl. Icelandic Geographic
Starfsmanni atvinnumálanefndar og menningarmálanefndar falið að afla frekari upplýsinga og leita umsagnar hagsmunaaðila í ferðaþjónustu.
15. Ráðning framkvæmdastjóra HSSA
(Halldóra vék af fundi undir þessum lið).
Bæjarstjóri fór yfir þær umræður sem átt hafa sér stað um málið undanfarna daga. Hann óskaði eftir því að gerður verði greinarmunur á annars vegar málsmeðferð sinni og hins vegar tillögu að ráðningu framkvæmdastjóra. Bæjarstjóri sagðist harma að málsmeðferð sín hafi skapað óþægindi og óánægju.
Varðandi tillögu bæjarstjóra um ráðningu framkvæmdastjóra við HSSA kom upp ágreiningur um málsmeðferð bæjarstjóra. Sá ágreiningur hefur nú verið leystur og leitast verður við að slíkt komi ekki fyrir aftur.
HSSA hefur átt við rekstrarvanda að stríða og verið framkvæmdastjóralaus um nokkurra mánaða skeið þrátt fyrir að staðan hafi verið auglýst tvívegis. Því er mikilvægt að finna stofnuninni örugga kjölfestu með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um ráðningu Guðrúnar Júlíu Jónsdóttur og lýsir fullum stuðningi við hana í starfi. Bæjarráð telur að um leið og starfandi hjúkrunarforstjóri tekur við starfi framkvæmdastjóra, sé rétt að endurskoða skiptingu verkefna og ná þannig fram hagræðingu í rekstri HSSA og stuðla jafnframt að markvissari stjórnun stofnunarinnar.
16 erindi og til kynningar
- Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 28. janúar s.l. , vegna samþykktar um sorphirðu,.
Til kynningar.
- Hestamannafélagið Blær, bréf dags. 23. janúar s.l. vegna reiðhallar.
Til kynningar.
17. Önnur mál
- Lagt fram bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 4. febrúar 2005, vegna aukaframlags til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Til kynningar.
- Gerð grein fyrir fundi með fulltrúum Ratsjárstofnunar 9. febrúar 2004 um fyrirhugaðar breytingar hjá stofnuninni.
Fundi slitið kl. 12.45


