Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
154. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 8. janúar 2002, kl 08:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Gísli Sv. Árnason, Margrét Ingólfsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir.
Einnig Albert Eymundsson, Ásta H Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Byggingarnefnd Nýheima 38. fundur 20. desember 2001.
Fundargerð samþykkt.
Félagsmálaráð Hornafjarðar 66. fundur 13. desember 2001.
Fundargerð samþykkt.
2. Erindi Norðuríss
Erindinu frestað til næsta fundar bæjarráðs.
3. Drög að samningi við RARIK vegna jarðhitaleitar
Bæjarstjóri fór yfir drögin. Gísli Sverrir fagnar því að verið sé að ganga frá samkomulagi um málið. Hann óskaði eftir að fá að sjá fylsiskjöl samningsins og spurðist fyrir um 3.gr varðandi stofnun hlutafélags um virkjunina. Sigurlaug telur að kynna þurfi samningsdrögin fyrir landeigendum í Öræfum er málið kann að varða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við RARIK.
4. Erindi frá Ungmennafélaginu Sindra v. Miðgarðs í Miðtúni
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Umf. Sindra um að leysa félagið undan samningi v. Miðgarðs í Miðtúni. Þegar gengið hefur verið frá þeim samningi er Ástu H Guðmundsdóttur falið að vinna að sölu hússins.
5. Meðferð tónlistarskólagjalda v. röskunar á kennslu í verkfalli tónskólakennara
Bæjarráð heimilar starfsmönnum að ganga frá endurgreiðslu tónlistarskólagjalda fyrir þann tíma sem verkfall stóð á sambærilegann hátt og gert er í öðrum sveitarfélögum.
6. Ósk um afstöðu sveitarfélagsins á sölu á Skúmi RE - 50 (1151)
· Bréf Gunnars Ásgeirssonar f.h. Skinneyjar Þinganess dags. 31. des. 2001
Bæjarráð afsalar sér forkaupsrétti að Skúmi RE - 50.
Innsend erindi og til kynningar
· Félagsmálaráðuneytið - þjónustuframlög 2001, endanlegt uppgjör.
· Ásta fór yfir þjónustuframlög frá Jöfnunarsjóði 2001 og lagði fram yfirlit yfir skiptingu 700 milljón kr aukaframlags sjóðsins 2001.
· Landgræðsla ríkisins - landnýting í Laxárdal, bréf dags. 3. desember 2001.
· Bæjarráð vísar erindinu til landbúnaðarnefndar.
· Íbúðalánasjóður - samþykki á heimild til viðbótarlána úr Íbúðalánasjóði á árinu 2002, bréf
· dags. 13. desember 2001.
· Til kynningar.
· Drög að leigusamningi milli sveitarfélagsins Hornafjarðar og Björns B. Þorbergssonar vegna húsnæðis að Hrollaugsstöðum í Suðursveit.
· Stefán fór yfir drögin og athugasemdir sem borist hafa við þau. Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga frá samninginum m.t.t. fram kominna athugasemda.
· Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddssen - brunaáætlanir sveitarfélaga, bréf dags.18. desember 2001.
· Til kynningar.
· Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - útgáfa Íþróttablaðsins í tengslum við 90 ára afmæli ÍSÍ.
· Vísað til starfsmanna.
· Stúdentaráð Háskóla Íslands - rannsóknir stúdenta við Háskóla Íslands á landsbyggðinni.
· Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að vinna að málinu.
· Samband íslenskra sveitarfélaga - ráðstefna um EES - samninginn og íslensk sveitarfélög
7. Önnur mál
Bæjarstjóri kynnti bréf frá Skeljungi hf. varandi Hafnarbraut 38.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við fyrri ákvarðanir bæjarráðs.
Sigurlaug kynnti útgáfu gönguleiðakorta. Hún hvatti einnig til þess að ákvörðun verði tekin sem fyrst varðandi staðsetningu upplýsingarmiðstöðvar og fleiri mál því tengdu.
Fundi slitið kl 9:45


