Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 280
280. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 27. janúar kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
- Menningarmálanefnd Hornafjarðar 64. fundur 17. janúar 2005.
Fundargerð samþykkt.
2. Þriggja ára áætlun.
Bæjarstjóri lagði til að áætluninni verði vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn eins og hún liggur fyrir. Bæjarráð samþykkir þá málsmeðferð.
3. Úthlutun styrkja 2005
Ákvörðun frestað til næsta fundar.
4. Fæðiskostnaður kennara í Hafnarskóla
Kristín vék af fundi undir þessum lið.
Lagt fram bréf frá kennurum Hafnarskóla, dags. 14. janúar 2005. Í bréfinu er farið fram á að kennarar þeir sem vinna með börnum í matartímum fá frítt fæði og vísað til annarra skóla í þeim efnum. Stefán greindi frá fyrirkomulagi í leikskólum, Nesjaskóla, Hrollaugsstaðaskóla, Grunnskólanum í Hofgarði og HSSA.
Bæjarráð hafnar því að kennarar í Hafnarskóla fái greiddan allan fæðiskostnað og tekur undir bókun skólanefndar frá 26. janúar 2005 um að samræmis sé gætt milli grunnskóla sveitarfélagsins í þessum málum. Vísar bæjarráð málinu til fræðslu- og félagssviðs til úrlausnar með þeim tilmælum að samræmi verði komið á frá og með næsta skólaári.
5. Umsókn um lækkun á fasteignagjöldum vegna íbúa í íbúðum Búmanna sem fæddir eru 1937 og fyrr.
Lagt fram bréf Búmanna, dags. 17. janúar 2005.
Bæjarráð samþykkir að farið verði að gildandi reglum um afslátt á fasteignagjöldum. Einnig kom fram að skerpa þurfi ákvæði í sömu reglum er lúta að þeim íbúum sem hafa búseturétt, sbr. þá sem búa í íbúðum Búmanna.
6. Aðalfundur Veiðifélags Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri, eða starfsmaður sem hann tilnefnir, verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundinum.
7. Innsend erindi og til kynningar
- Tilkynning um breytingu á starfsemi Lánasjóðs sveitarfélaga, bréf dags. 20. janúar 2005.
Til kynningar.
- Bréf Svæðisvinnumiðlunar á Suðurlandi, vegna kynningar á starfsemi svæðisvinnumiðlunar, ódagsett.
Til kynningar.
8. Önnur mál
Signý Ormarsdóttir frá Menningarráði Austurlands mætti á fundinn kl. 10.00 og gerði grein fyrir samningaviðræðum ríkis og sveitarfélaga um menningarsamning á Austurlandi. Fram kom í máli hennar að framlög menntamálaráðuneytis til menningarmála munu lækka mjög frá því sem nú er ef tillögur ráðuneytisins ganga eftir.
Inn á fundinn komu kl. 10:50 þeir Einar Ólafur Birgisson starfsmaður Ratsjárstofnunar, fyrir hönd starfsmanna, og Einar Jón Ólafsson frá Rafiðnaðarsambandinu vegna stöðu starfsmanna á Stokksnesi í kjölfar boðaðra skipulagsbreytinga og uppsagna hjá Ratsjárstofnun. Gerðu þeir grein fyrir ýmsum atriðum málsins, svo sem vinnubrögðum við boðaðar uppsagnir, samskiptum við utanríkisráðuneytið o. fl. þáttum er að því lúta. Bentu þeir á að ef dregið yrði úr mannahaldi á Stokksnesi og stöðinni fjarstýrt að stærstum hluta drægi það úr gæðum flugumsjónar á svæðinu sem fellur undir Stokksnesstöðina. Lögðu þeir áherslu á að ná mætti fram sparnaði með öðrum hætti en uppsögnum starfsmanna. Fram kom að staða rafiðnaðarmanna á landsbyggðinni og möguleikar þeirra til að fá vinnu við sitt hæfi er mun verri en staða félaga þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Flutningar starfsmanna væru því óhjákvæmilegir ef af boðuðum skipulagsbreytingum verður. Halldóra lýsti undrun sinni á vinnubrögðum Ratsjárstofnunar í þessu máli og var undir það tekið.
Skipan fulltrúa í nefnd um mötuneytismál. Bæjarráð samþykkir að skipa Elínu Magnúsdóttur sem fulltrúa í nefndinni og að hún verði jafnframt formaður hennar.
Farið yfir hugsanlegar breytingar á starfsemi og rekstri HSSA. Bæjarráð tekur undir að áfram verði unnið að endurskoðun á rekstri stofnunarinnar í samræmi við kynntar tillögur HÖR.
(Halldóra vék af fundi undir þessum lið) Albert gerði grein fyrir tillögu sinni að ráðningu framkvæmdastjóra HSSA. Gerir hann tillögu um að Guðrún Júlía Jónsdóttir verði ráðin til starfsins. Kristín átaldi vinnubrögð sem uppi hafa verið af hendi bæjarstjóra og taldi jafnframt nauðsynlegt að leggja þessa tillögu fyrir heilbrigðis- og öldrunarráð áður en endanlega verður frá ráðningu gengið. Bæjarstjóri sagði málið verða lagt fyrir HÖR.
Fundi slitið kl. 12:30


