Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
155. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 22. janúar 2002, kl 08:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Gísli Sv. Árnason, Margrét Ingólfsdóttir, Hermann Hansson.
Einnig Albert Eymundsson, Ásta H Guðmundsdóttir,Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Atvinnu- og ferðamálanefnd 32. fundur 17. desember 2001
Fundargerð samþykkt.
· Atvinnu- og ferðamálanefnd 33. fundur 8. janúar 2002
Fundargerð samþykkt.
· Byggingarnefnd Nýheima 39. fundur 12. janúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 67. fundur 10. janúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 36. fundur 15. janúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 33. fundur 16. janúar 2002.
Hermann spurðist fyrir um fyrirhugaðar framkvæmdir við Pakkhúsið. Gísli Sverrir sagði að koma þurfi upp brunakerfi í húsinu, minni háttar kaffiaðstöðu og einnig sé stefnt að kaupum á hljóðfæri fyrir húsið. Hermann lagði áherslu á að þessum fjármunum verði varið til stofnbúnaðarkaupa en ekki til reksturs.
Fundargerð samþykkt.
· Launanefnd Sveitarfélaga 176. fundur 21. desember 2002.
Til kynningar.
2. Erindi Norðuríss
Bæjarráðsmenn jákvæðir gagnvart erindinu en vegna nýrra upplýsinga var bæjarstjóra falið að afla frekari gagna fyrir næsta fund bæjarráðs og gera tillögu um með hvaða hætti sveitarfélagið komi að málinu.
3. Ósk um samþykki fyrir samningi við Suðurlandsskóga
· Bréf Fjölnis Torfasonar og Þorbjargar Arnórsdótturdags. 14. janúar 2002.
Bæjarráð vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Erindi frá Galdri – upplýsingamiðlun
Bæjarráð kallar eftir þeim samningum sem í gildi eru varðandi auglýsingar sveitarfélagsins og upplýsingamiðlun.
Bæjarráð tekur jákvætt í að skoða erindið og vísar því til bæjarstjóra. Fram kom gagnrýni á nafnlaus skrif á upplýsingamiðlinum horni.is.
5. Tilboð í upplýsingakerfi sveitarfélagsins
Inga Jóna fór yfir þá samninga sem unnið er eftir og mun í framhaldi af því skila greinargerð til bæjarráðs þar að lútandi. Í framhaldi af því verður tekin afstaða til málsins.
Gísli Sverrir kallaði eftir tillögum um hvernig starfsmenn sjá fyrir sér heimasíðu sveitarfélagsins.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Samtaka Heilbrigðissvæða - ályktun vegna hugmynda um Matvælastofu dags. 8. janúar 2002.
Helga Hreinsdóttir framkvæmdastjóri HAUST mun koma á næsta fund bæjarráðs og er umræðu um málið frestað til næsta fundar.
· Menningarmiðstöð Hornafjarðar – yfirlit um gestafjölda og útlán árið 2001 dags. 17. janúar 2002.
Rætt var um hvort gefa eigi út ársskýrslu sveitarfélagsins eða setja upplýsingarnar á heimasíðuna.
· Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið – fjárheimildir til reynsluverkefnis dags. 10. janúar 2002.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga – yfirlýsing um ýmis samskiptamál ríkis og sveitarfélaga dags. 2. janúar 2002.
Til kynningar.
· Fornleifavernd ríkisins – dags. 18. desember 2002
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið – málþing um fjárhagsaðstoð í velferðarsamfélagi 1. febrúar 2002.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga – Ráðstefna um Staðardagskrá 21, 15-16. febrúar 2002.
Til kynningar.
· Þróunarstofa Austurlands –Námskeið í Póllandi júní 2002.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Gísli Sverrir vakti athygli á námskeiði hjá Endurmenntumarstofnun HÍ um Vatnajökulsþjóðgarð.
Gísli spurðist fyrir um fyrirkomulag bíósýninga á Höfn. Bæjarstjóri sagði að verið sé að skoða málið af æskulýðs- og tómstundafulltrúa.
Gísli spurðist fyrir um hvort viðræður hafi farið fram um rekstur líkamsræktarstöðvar á Höfn. Bæjarstjóri sagði ýmsa aðila hafa leitað upplýsinga um málið en formlegt erindi ekki hafa komið inn á borð bæjaryfirvalda.
Hermann spurði um biðskildumerkingu á gatnamótum Hafnarbrautar og Litlubrúar. Erindið er hjá sýslumanni til umsagnar.
Hermann spurðist fyrir um ráðningu forstöðumanns Háskólasetursins á Hornafirði.
Stefán Ólafsson upplýsti að Rannveig Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starfið.
Stefán kynnti umsókn um greiðslu vegna námsvistar utan lögheimilissveitarfélags.
Erindinu vísað til bæjarstjóra og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs.
Fundi slitið kl 10:20


