Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
156. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 29. janúar 2002, kl 08:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Kristín Gestsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Hermann Hansson.
Einnig Albert Eymundsson, Ásta H Guðmundsdóttir,Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 33. fundur 21. janúar 2002.
Hermann spurðist fyrir um frumvarp til nýrra hafnarlaga. Bæjarstjóri sagði starfshóp á vegum Hafnarsambandsins vera að fara yfir frumvarpið en Ari Jónsson formaður hafnarstjórnar Hornafjarðar á sæti í þeirri nefnd. Fylgst verður vel með þeirri vinnu en ljóst er að hér getur verið um mikið hagsmunamál að ræða fyrir okkur.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd 37. fundur 23. janúar 2002.
Rætt var um lið 3 í fundargerðinni þar sem þess er farið á leit við skólanefnd Hornafjarðar að nefndin athugi hvort kennsla í 4. bekk geti færst úr Hafnarskóla í Nesjaskóla frá og með næsta skólaári. Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmdastjóra fræðslu og félagssviðs og leggur áherslu á vandaða greinargerð út frá faglegu og fjárhagslegu sjónarmiði.
Fundargerð samþykkt.
2. Erindi Norðuríss
Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að takast megi að fjármagna hlutafjáraukningu sem Norðurís ehf er að fara í um þessar mundir.
Bæjarráðið mun leggja sitt af mörkum til að leita leiða svo tryggja megi fjármögnunina og þá í samræmi við viðurkenndar leiðir í þeim efnum. Í því sambandi er sérstaklega bent á þá sjóði og félög sem stofnuð hafa verið til að styðja við nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni s.s. Byggðastofnun, Eignarhaldsfélag Austurlands hf og Framtakssjóð Austurlands.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við ofangreinda bókun.
3. Heimsókn Helgu Hreinsdóttur framkvæmdastjóra Haust og Egils Jónassonar.
Rætt var um núverandi stöðu heilbrigðiseftirlits í sveitarfélaginu og þær breytingartillögur sem fram koma í skýrslu Ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur „Framtíðarskipan opinbers matvælaeftirlits, greinagerð og tillögur“.
Bæjarráð tekur undir bókun SHÍ þess efnis að komi til endurskoðunar á matvælaeftirliti sé það skoðað í samhengi við annað eftirlit og leiði til hagræðingar og einföldunar fyrir almenning og eftirlitsþega. Einnig telur bæjarráð eðlilegt að stefnt verði að því að staðsetning stofnunarinnar verði á landsbyggðinni.
Rætt var um innheimtuferli heilbrigðiseftirlits í sveitarfélögum. Helga sagði að hafi sveitarfélög áhuga á að breyta ferlinu þá sé eðlilegast að þau leggi fram vel undirbúna tillögu fyrir næsta aðalfund HAUST. Rætt var um fyrirkomulag starfs heilbrigðisfulltrúa á Hornafjarðarsvæðinu. Bæjarráð telur núverandi stöðu óviðunandi.
4. Erindi vegna ágangs sauðfjár
Tekið var fyrir bréf frá eigendum Lindarbakka, Stórulágar og Krossbæjar dags. 24. október 2001 þar sem þeir kvarta undan ágangi sauðfjár í löndum sínum og krefjast þess að reist verði fjárheld girðing á tilgreindu svæði til að bæta úr ástandinu.
Bæjarráð vísar til framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að skoða erindið m.t.t. nýrra girðingarlaga sem tóku gildi 21. desember s.l., skilgreininga á því hvort og þá hvaða landsvæði í sveitarfélaginu teljist afréttur og þjóðlendukröfu ríkisins.
5. Styrkir 2002
· Menningarmiðstöð Hornafjarðar v. forleifarannsókna við Hólm – önnur gögn áður send.
Farið var yfir umsóknir sem vísað hefur verið til bæjarráðs.
Bæjarráð mun þegar fyrir liggja umsagnir nefnda um styrkveitingar afgreiða styrkúthlutanir í heild sinni.
6. Álagning fasteignagjalda
Ásta fór yfir álagningu fasteignargjalda 2002.
7. Samningar um jarðhitaleit
Bæjarstjóri sagði frá undirritun samnings við RARIK um jarðhitaleit í Hoffelli og í Öræfum. Tilnefndir hafa verið fulltrúar frá sveitarfélaginu og RARIK til að sjá um framkvæmdina.
8. Samningur við stúdentaráð – Þekking stúdenta í þágu þjóðar
Bæjarstjóri fór yfir samninginn, en um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs. Þáttökusveitarfélög munu veita 200.000 kr.( í formi fjárframlags, aðgangs að húsnæði, vinnuaðstöðu og aðgang að mötuneyti ) í styrktarsjóðinn „Þekking stúdenta í þágu þjóðar“ sem munu renna til stúdenta sem fá styrk til að vinna að rannsóknum í viðkomandi sveitarfélagi. Byggðastofnun veitir 300.000 kr. mótframlag á móti framlagi sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samninginum.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Hag- og upplýsingasvið Sambands ísl. sveitarfélaga.- Hlutdeild sveitarfélaganna í þróun vísitölu neysluverðs sl. 12 mánuði.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga – Ráðstefna 8. febrúar n.k. á vegum utanríkisráðuneytisins og Sambands ísl. sveitarfélaga um áhrif EES samningsins á íslensk sveitarfélög.
Til kynningar.
10.Önnur mál
Bæjarstjóri kynnti erindi frá einstaklingum sem stunda fiskveiðar- og vinnslu þar sem farið er fram á umræðu um tillögur um takmark á leigu aflaheimilda. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjóri kynnti erindi frá Lionsklúbbi Hornafjarðar þar sem farið er fram á að bæjaryfirvöld úthluti félaginu landsvæði til skógræktar. Stefnt er að því að gera samning við Skógræktarfélag Íslands um framlag ókeypis trjáplantna en vinnuframlag kæmi frá félagsmönnum
Bæjarráð vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
Fundi slitið kl 10:25


