Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
157. fundur
Fundur haldinní bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 5. febrúar 2002, kl 08:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Gísli Sverrir Árnason, Margrét Ingólfsdóttir, Hermann Hansson.
Einnig Albert Eymundsson, Ásta H Guðmundsdóttir,Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 67. fundur 29. janúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Framkvæmdanefnd um vímuvarnir á Hornafirði 35. fundur 8. janúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs og tómstundarráð Hornafjarðar 37. fundur 28. janúar 2002.
Egill Jón lagði fram eftirfarandi bókun varðandi könnun á endurbótum á sundlaug:
1. Hvernig liti rekstur út næstu 10 til 15 ár ef aðeins verði framkvæmt það sem búið er að ákveða að framkvæma og lágmarks endurbætur og viðhald verði framkvæmt ?
2. Hver er kostnaðurinn við að endurbæta verulega sturtu- og búningsaðstöðu ?
3. Hver er kostnaður við að framkvæma lið 2. að viðbættu útskoti eða viðbót við sundlaug þar sem hægt væri að koma fyrir góðri aðstöðu fyrir börn með tilheyrandi leiktækjum ?
4. Hver er kostnaður við að byggja 25m laug við enda núverandi laugar, þar sem gamla laugin verði notuð sem barnalaug en hin nýja til að synda í ?
Samfara þessari könnun er mjög mikilvægt að gerð verði könnun á hvernig hægt verði að fjármagna slíkar breytingar og gerð verði rekstraráætlun samfara þessari könnun.
Mikilvægt er að niðurstöður þessarar könnunar liggji fyrir í síðasta lagi í lok mars.
Fundargerð samþykkt.
· Samstarfsnefnd Ln og Samflots 7. fundur 24. janúar 2002, til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
· Framkvæmdaráð SSA 18. desember 2001.
Gísli Sverrir spurðist fyrir um Vatnajökulsþjóðgarð, hver verði næstu skref í þeim undirbúningi. Bæjarstjóri sagði næstu skref verða tekin í nánu samstarfi við umhverfisráðuneytið.
Til kynningar
2. Erindi áhugamanna um strandeldi á þorski á Suðurfjörum
Bréf dags. 30. janúar 2002 undirritað af Elvari Unnsteinssyni f.h. áhugahóps um tilraunaeldi á þorski í kerjum á Suðurfjörum.
Bæjarráð vísar erindinu til hafnarstjórnar.
3. Ósk um styrk til viðgerða á kappróðrarbátum.
Bréf Sjómannadagsráðs dags. 30. janúar 2002 undirritað af Herdísi Waage þar sem farið er fram á kostnaðarþáttöku bæjarins v. endurbóta á kappróðrarbátum.
Erindinu vísð til bæjarstjóra.
4. Erindi vegna fyrirhugaðrar rallýkeppni á Höfn
Bréf Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur dags. 24. janúar 2002 þar sem farið er fram á viðhorf bæjarstjórnar á því að haldin verði rallýkeppni í nágrenni Hornafjarðar 22. júní n.k.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið.
5. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um vatnsveitur sveitarfélaga, 378. mál
Erindi félagsmálanefndar Alþingis dags. 29. janúar 2002.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við frumvarpið.
6. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um samgönguáætlun, 384. mál og lagaákvæði er varðar samgönguáætlun 385. mál
Erindi samgöngunefndar Alþingis dags. 30. janúar 2002.
Gísli Sverrir gerir athugasemd við að stofnað sé samgönguráð án aðkomu sveitarstjórna landsins og leggur til að kveðið verði sterkar á um í lögum þessum að sveitarstjórnir hafi umsagnarrétt um samgönguáætlanir.
Bæjarráð vísar erindinu til samgöngunefndar til umsagnar.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Landgræðsla ríkisins – Landnýting í Laxárdal, bréf dags. 17. janúar 2002.
Hermann benti á að það sé hlutverk sýslumanns að veita upplýsinga um eignarheimildir á landi í sveitarfélaginu.
Erindinu vísað til kynningar í landbúnaðarnefnd.
· Skógræktarfélags Íslands – Yrkjusjóður, bréf ódagsett.
Erindinu vísað til fræðslu- og félagssvið og skipulagsnefnd til kynningar.
· SSA - árgjöld sveitarfélaga á Austurlandi til SSA árið 2002.
Egill Jón telur tímabært að endurskoða samstarf okkar innan SSA án þess að í því felist tillaga að uppsögn samstarfsins. Halldóra telur eðlilegt að við förum okkur hægt og sjáum hvaða þróun verður í kjölfar nýrrar kjördæmaskipunar.
Til Kynningar.
· Ráðstefna um áhrif EES samnings á íslensk sveitarfélög – breyting á dagskrá.
Til Kynningar.
8. Gjaldskrárbreytingar
Í tilefni af þeirri umræðu sem farið hefur fram í þjóðfélaginu um að reynt verði til hins ítrasta að sporna við gjaldskrárhækkunum og þar með vísitöluhækkunum í þjóðfélaginu ræddi bæjarstjóri þær hækkanir sem orðið hafa á gjaldaliðum sveitarfélagsins og fyrirhugaðar hækkanir. Bæjarráð samþykkir að hækkun leikskólagjalda sem kom til framkvæmda 1. janúar s.l. verði dregin til baka frá og með 1. mars n.k. og að fyrirhuguð hækkun sundlaugagjalda komi ekki til framkvæmda. Þessi lækkun þjónustugjalda nemur 2,2 milljónum kr.
9. Önnur mál
Gísli Sverrir minnti á skýrslu um Jöklasetur og þær tillögur sem þar koma fram. Hann telur margt hægt að gera til að þoka málinu áfram þótt ekki hafi fengist fjárveiting til verkefnisins í ár frá hinu opinbera. Gísli Sverrir sagði frá því að nefnd um stofnun Kvískerjaseturs hefur nú lokið störfum. Gísli spurði einnig um umferðaröryggismál við Víkurbraut. Helgi Már sagði erindi um málið bíða afgreiðslu sýslumanns.
Inga Jóna kynnti stöðu Markaðsráðs Suðausturlands en hinn 30. janúar s.l. ákvað stjórn félagsins að leggja starfsemina niður.
Helgi Már fór yfir hreinsun brotajárns í dreifbýli en ljóst er að fjárfrekara er að ljúka hreinsun en áætlað var. Halldóra kallar eftir frekari sundurliðun kostnaðar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
Fundi slitið kl 9:50


