Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
158. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 12. febrúar 2002, kl 08:00
Mætt voru: Björn E. Traustason, Egill Jón Kristjánsson, Gísli Sverrir Árnason, Margrét Ingólfsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir.
Einnig Albert Eymundsson, Ásta H Guðmundsdóttir,Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Heilbrigðis- og öldrunarráð 33. fundur 6. febrúar 2002.
Gerð var athugasemd við að Ester Þorvaldsdóttir var ekki á fundinum eins og misritast hefur í fundargerðinni.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðisnefnd Austurlands 27. fundur 24. janúar 2002.
Til kynningar.
2. Umræða um drög að Stefnumótun í atvinnumálum
Sigurlaug lagði áherslu á að hér sé um stefnu samfélagsins að ræða og gæta þurfi þess að unnið verði að framgangi mála í samræmi við hana þrátt fyrir að breytingar verði hugsanlega á bæjarstjórn í kjölfar sveitarstjórnakosninga. Egill Jón ræddi að gera þurfi átak til að koma stefnumótuninni á framfæri við almenning. Björn lagði áherslu á eftirfylgni og nauðsyn þess að einstaklingar verði hvattir til að fylgja einstökum verkefnum eftir til enda. Ásta sagði að kostnaðarmeta þurfi stefnumótunina því gert sé ráð fyrir aðkomu sveitarfélagsins að fjölmörgum verkefnum. Margrét taldi hægt að vinna að ýmsum atriðum s.s. markaðssetningu hornfiskra afurða án mikils kostnaðar .
Egill Jón velti fyrir sér hvort breyta eigi merki bæjarins, telur nauðsyn á að breyta litasamsetningu merkisins og jafnvel búa til nýtt merki. Málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi bæjarráðs og kallað er eftir tillögum frá bæjarráðsmönnum sem og starfsmönnum um hvernig þeir sjá fyrir sér að staðið verði að eftirfylgni stefnumótunarinnar.
3. Málefni upplýsingamiðstöðvar
Bæjarstjóri fór yfir málið og sagði frá fundi sem haldinn var með formanni Ferðamálafélags Austur - Skaftafellssýslu og formanni atvinnu- og ferðamálanefndar.
Kallað var eftir upplýsingum um sem flesta þætti í aðkomu bæjarins að rekstri upplýsingamiðstöðvar á síðustu árum og með hvaða hætti menn sjá reksturinn fyrir sér á næstunni. Sigurlaug telur æskilegt að horft sé á rekstur upplýsingamiðstöðvar, ráðningu á atvinnu- og upplýsingafulltrúa auk fleiri verkefna í heild.
Lagt var fram bréf frá formanni Ferðamálafélagsins þar sem þess er farið formlega á leit að bæjarráð fresti ákvörðun um rekstrarfyrirkomulag upplýsingarmiðstöðvar á Höfn fram yfir aðalfund félagsins sem haldinn verður í lok mánaðarins.
Miklar umræður fóru fram um málið og samþykkt var að fresta afgreiðslu þess um tvær vikur.
4. Innsend erindi og til kynningar
Bréf HAUST dag., 3. febrúar s.l. v.bókunar heilbrigðisnefndar Austurlands um kattahald.
Lögð var áhersla á að skipt verði um sand í kössum á leikskólum og á opnum leikvöllum a.m.k. einu sinni á ári.
Sigurlaug kom með ábendingu um að kannað verði fyrirkomulag og framkvæmd hundahreinsunar í sveitarfélaginu.
Björn kom með ábendingu um að ekki liggji ljóst fyrir hvert fólk eigi að snúa sér með kvartanir vegna hunda- og kattahalds og hvernig verði brugist við þeim kvörtunum.
Bréf HAUST dags. 3. febrúar s.l. v. bókunar heilbrigðisnefnd Austurlands um vatnsveitur og framkvæmd neysluvatnsreglugerðar.
Áætlað er að fara í innra eftirlit á Vatnsveitu Hafnar á þessu ári.
Bréf TA dags. 5. febrúars.l. v yfirtöku Hátíðni á þjónustu fyrirtækisins.
Til Kynningar.
Bréf Menningarsjóðs félagsheimila dags. 28. janúar s.l. v. styrkumsóknar.
Til Kynningar.
5. Önnur mál
Helgi Már lagði fram ósk um aukið grjótnám í Fjárhúsavík vegna stækkunar golfvallarins.
Umhverfisnefnd gerði á fundi sínum 11. feb. s.l. ekki athugasemd við grjótnámið en telur að það þurfi að finna framtíðarlausn á grjótnámi í nágrenni þéttbýlisins.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við grjótnámið.
Helgi Már lagði fram ósk um að 700 þús. kr aukaframlag verði veitt í hreinsun brotajárns í dreifbýlinu.
Bæjarráð samþykkir 7oo þús. kr aukaframlag, til að hægt verði að ljúka hreinsuninni og kemur það til lækkunar á lyklinum óráðstafað.
Bæjarstjóri fór yfir tillögu að breytingum á samþykktum Sparisjóðs Hornafjarðar og nágrennis.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingartillöguna og felur bæjarstjóra að fara með umboð bæjarins á aðalfundi sparisjóðsins sem haldinn verður 19. feb. n.k.
Stafán kynnti í hvaða farvegi samningaviðræður við félagsmálaráðuneytið um málefni fatlaðra eru.
Fram kom að samgöngunefnd tók fyrir á fundi sínum þann 11. feb. s.l. frumvarp til laga um samgönguáætlun, 384. mál og lagaákvæði er varða samgönguáætlun 385. mál og ekki voru gerðar athugasemdir við erindin.
Fundi slitið kl 9:50


