Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
159. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 19. febrúar 2002, kl 08:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Kristín Gestsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Hermann Hansson.
Einnig Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 35. fundur 12. febrúar 2002.
Hermann spurði hvort ótvírætt sé að ekki þurfi framkvæmdaleyfi vegna skógræktar sem er minni en 200 ha. Fram kom hjá Helga Má að ekki var sent formlegt erindi til úrskurðanefndar en starfsmenn stofnunarinnar hafi upplýst að ekki þurfi framkvæmdaleyfi. Hermann spurði einnig um skógræktaráform Lionsmanna og hugsanlega samvinnu þeirra og Skógræktarfélags A- Skaft. í Haukafelli.
Fundargerð samþykkt.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 34. fundur 11. febrúar 2002.
Hermann spurði um rof á Suðurfjörum og hvert efni sem fyrirhugað er að dæla úr höfninni 2002 verði sett. Bæjarstjóri sagði rof vera á innanverðum Suðurfjörum við sjóvarnargarð. Bæjarstjóri sagði fyrirhugað að dæla til að byrja með í hólf sunnan Ferjukletta.
Fundargerð samþykkt.
Samgöngunefnd Hornafjarðar 9. fundur 11. febrúar 2002.
Egill Jón er á móti því að hámarkshraði verði hækkaður úr 45 í 50 km/klst innanbæjar. Hermann spurði hvenær samþykktir sýslumanns varðandi umferðamerkingar komist í framkvæmd. Helgi fór yfir rök sýslumanns fyrir hækkun hámarkshraða sem er samræming við það sem annars staðar gildir. Sýslumaður mun í framhaldi af ályktun bæjarráðs um málið auglýsa breytingar varðandi nýjar
umferðamerkingar í Lögirtingablaðinu og samhliða er nýjum skiltum komið fyrir. Bæjarráð sammála um að taka til frekari umfjöllunar ákvæði um hámarkshraða en mælist til að ferli varðandi umferðamerkingar verði hraðað eins og kostur er. Bæjarráð vísar frekari umfjöllun um hámarkshraða til samgöngunefndar og lögregluyfirvalda.
Fundargerð samþykkt.
Umhverfisnefnd Hornafjarðar 27. fundur 11. febrúar 2002.
Helgi Már sagði að stefnt sé að fundum í vikunni með þeim verkfræðistofum sem gert hafa kostnaðaráætlanir varðandi fráveitumálin. Þar verður farið yfir hvaða forsendur liggja að baki mismunandi kostnaðaráætlunum.
Fundargerð samþykkt.
Fagráð Nýheima 12. febrúar 2002 til kynningar.
Launanefnd sveitarfélaga 177. fundur 5. febrúar 2002.
Til kynningar.
2. Úthlutun styrkja 2002.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi úthlutun styrkja 2002 (sjá fylgiskjal með fundargerð).
Lögð var áhersla á að 200.000 kr styrkur til Listvinasjóðsins undir liðnum ýmsir styrkir verði nýtt sem stofnframlag til þess að hægt verði að ganga lögformlega frá stofnun sjóðsins.
Bent var á að Framhaldsskóli Austur Skaftafellssýslu mun flytja í nýtt húsnæði Nýheima í haust. Rætt var um að af því tilefni verði reynt að styrkja félagsstarf ungs fólks frekar.
3. Umræða um tillögu til þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002-2005
Nokkrar umræður voru um tillöguna og lögð áhersla á að nýta það sem gæti orðið til framdráttar fyrir Hornafjörð. Spurningin - hvernig getum við náð sem mestu út þessum tillögum? - var mönnum ofarlega í huga.
Samþykkt að halda áfram umræðu um málið á næsta bæjarráðsfundi og ganga frá ályktun.
4. Framhald umræðna á síðasta fundi um drög að Stefnumótun í atvinnumálum
Hermann benti á að víða er tillaga um að Fagráð hafi frumkvæði að vinnu við verkefni og velti fyrir sér hlutverki ráðsins. Hann telur ljóst að annað hvort þurfi að skilgreina hlutverk Fagráðs uppá nýtt eða verkefnin sjálf. Kristín telur brýnt að ráða starfsmann til að sinna þeim verkefnum sem fram koma í stefnumótuninni. Stefán benti á að í lykiltölum vantar aflaheimildir hornfirskra útgerða.
5. Innsend erindi og til kynningar
Ráðstefna um umhverfismál sveitarfélaga 8. mars 2002.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi ályktun :
„Bæjarráð Hornafjarðar ítrekar nauðsyn þess að frekari rannsóknir við Jökulsá á Breiðamerkursandi og Breiðamerkurlóni verði hraðað og skorar á samgönguyfirvöld að eyða óvissu og áhyggjum fólks með því að gera áætlanir um hvernig bregðast megi við ef alvarlegt rof verður á svæðinu.“
Borist hefur umsókn frá Fosshóteli Vatnajökull um bráðabirgða vínveitingaleyfi á tímabilinu 25. feb. - 3. april n.k.
Bæjarráð samþykkir leyfið.
Kynntur var aukafundur Hafnarsambands sveitarfélaga sem haldinn verður 1. mars n.k.en tilefni hans er nýtt frumvarp til hafnalaga.
Stefán sagði frá stöðu varðandi samninga við félagsmálaráðuneytið um málefni fatlaðra.
Fundi slitið kl 10:10


