Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
160. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 26. febrúar 2002, kl 08:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Gísli Sverrir Árnason og Hermann Hansson.
Einnig Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Margrét Ingólfsdóttir gat ekki mætt vegna veikinda á vinnustað.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 69. fundur 14. febrúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 37. fundur 14. febrúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 34. fundur 13. febrúar 2002.
Hermann spurðist fyrir um hugmyndir um að ókeypis verði á söfnin á Höfn næsta sumar. Hversu mikið tekjutapið verði og hvernig því verði þá mætt. Hann spurði einnig um undirbúning Þórbergssafns á Hala. Tekjutap má áætla á bilinu 800 -900 þúsund. Hugsanlega mætti mæta því tapi með sölu minjagripa. Gísli Sverrir sagði að stefnt væri að því að gera upp gamla húsið á Hala og nota sem sýningaraðstöðu og aðstöðu fyrir fræðimenn.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 38. fundur 20. febrúar 2002.
Stefán sagði frá þróunarverkefni í Hafnarskóla þar sem lögð er áhersla á þemavinnu og samkennslu árganga, verkefni sem hann telur mjög áhugavert.
Fundargerð samþykkt.
· Samstarfsnefnd leikskólakennara og LS, 52. fundur 6. febrúar 2002 - til kynningar.
2. Drög að áætlun um rekstur , framkvæmdir og fjárfestingar sveitarfélagsins 2002-2011 (3 ára og 10 ára áætlun) til umræðu
Ásta fór yfir drög að 3ja og 10. ára áætlun sveitarfélagsins. Umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.
3. Drög að þjónustusamningi milli sveitarfélagsins og Félagsmálaráðuneytisins um málefni fatlaðra
Stefán fór yfir samningsdrögin og þær breytingar sem gerðar hafa verið frá fyrri samningi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að ganga frá samninginum. Samningurinn verður síðan lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
4. Upplýsingamiðstöð - framhaldsumræður
Inga Jóna fór yfir stöðu mála. Fram kom að meirihluti atvinnu- og ferðamálanefndar ályktaði á fundi 25. feb. að gera eigi þjónustusamning til 1. árs við rekstraraðila tjaldsvæðis um rekstur upplýsingamiðstöðvar en leggur áherslu á að í þeim samningi verði lögð rík áhersla á að þeir gæti fyllsta hlutleysis gagnvart öllum þjónustuaðilum sveitarfélagsins.
Gísli Sverrir leggur áherslu á að ráðinn verði atvinnu- og upplýsingafulltrúi sem m.a. sjái um að ákveðin samfella verði um upplýsingagjöf í sveitarfélaginu. Hermann leggur áherslu á að reynt verði að ná sem víðtækastri samstöðu um lausn málsins.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra umboð til að vinna að þjónustusamningi til 1. árs við rekstraraðila tjaldsvæðisins.
5. Ósk um umsögn á útgáfu veitingaleyfis
· Sýslumaðurinn á Höfn dags. 20. febrúar 2002 vegna Verbúða ehf.
Bæjaráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
6. Umsókn um tímabundið vínveitingaleyfi
· Umsókn Gunnars Ásgeirssonar f.h. Verbúða ehf. dags. 18. febrúar 2002.
Bæjarráð staðfestir útgáfu leyfisins.
7. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga
· Efnahags- og viðskipanefnd Alþingis, 19. febrúar 2002, frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak , 135. mál, smásöluverslun með áfengi.
Bæjarráð tekur ekki afstöðu til frumvarpsins.
8. Ósk um frestun á gjalddögum fasteignagjalda
· Bréf Ásmundar Gíslasonar f.h. Árnaness dags. 7. febrúar 2002.
Bæjarráð er ekki tilbúið til að breyta fyrirkomulagi innheimtu fasteignagjalda hjá einum hópi gjaldenda en bendir á ýmsar leiðir til greiðslujöfnunar í bankakerfinu.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Tilkynning umhverfisráðuneytis dags. 14. febrúar 2002, um skipun nefndar til að undirbúa stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Gísli Sverrir fagnar því að þessi hópur sé kominn á laggirnar en undrast að ráðuneytið hafi ekki leitað tilnefninga í nefndina. Hermann sagðist líta svo á að með skipun þessari sé verið að ná fram viðhorfum til málsins frá nýjum aðilum.
· Afrit af bréfi Náttúruverndar ríkisins dags. 11. febrúar 2002 til Ferðafélags A-Skaft.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið.
· Afrit af bréfi formanns Fagráðs Nýherjabúða dags. 15. febrúar 2002 - afgreiðsla á umsókn um aðstöðu í Nýherjabúðum.
Til kynningar.
· Bréf Stefáns B. Jónssonar f.h. Martölvunnar ehf. dags. 9. febrúar 2002 v. upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Fram kom að bréf hefur verið sent til allra forstöðumanna sveitarfélagsins þar sem þeim er gerð grein fyrir því að sveitarfélagið er ekki bundið af gildandi þjónustusamningi um kaup á nýjum tölvum og tölvubúnaði.
10. Önnur mál
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkti eftirfarandi ályktun vegna tillögu til þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002 – 2005 :
Ályktun Bæjarráðs Hornafjarðar um
“Tillögu til þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002 – 2005”
Bæjarráð Hornafjarðar hefur fjallað um “ tillögu til þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árið 2002 – 2005” sem iðnaðarráðherra hefur kynnt.
Bæjarráð fagnar allri viðleitni sem beinist að styrkingu atvinnulífs og eflingu mannlífs á landsbyggðinni og telur mörg atriði jákvæð í framkominni byggðaáætlun. Bæjarráð leggur áherslu á að framkvæmd þeirra tillagna sem gerðar eru og eftirfylgni með áætluninni sé það sem máli skiptir til að ná árangri.
Bæjarráð vill vísa til ályktunar sinnar frá 20. nóvember 2001, sem gerð var að lokinni ítarlegri umræðu um byggðamál í bæjarstjórn Hornafjarðar og bendir á að þar er að finna ýmis sömu áhersluatriði og eru nú í byggðaáætlun ríkisstjórnar Íslands.
Má þar m.a. nefna:
a. Eflingu sveitarstjórnarstigsins og fækkun og stækkun sveitarfélaga.
b. Aukna áherslu á uppbyggingu framhalds- og símenntunar um allt land.
c. Samgöngubætur og athugun á því hvernig beita megi sköttum til að jafna aðstöðumun fyrirtækja og íbúa í landinu.
d. Mikilvægi þess að leiðrétta strax það misvægi sem þungaskatturinn skapar bæði fjölskyldum og fyrirtækjum.
Eftirfarandi tillögur og efnisatriði vill bæjarráðið sérstaklega fjalla um:
1. Fagnað er þeim áformum að ríkissjóður leggi 1000 milljónir króna til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni á árunum 2002 - 2005 og sérstaklega er minnt á uppbyggingu frumkvöðlaseturs í Nýheimum á Hornafirði (sjá meðfylgjandi gögn) þannig að hér hafa nú þegar verið skapaðar aðstæður til þátttöku í þessu verkefni.
2. Tekið er undir áherslur um eflingu sveitarstjórnarstigsins og flutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Þessar tillögur falla vel að þeirri þróun sem átt hefur sér stað í Austur-Skaftafellssýslu með sameiningu sveitarfélaganna, reynsluverkefnum og þjónustusamningum. Mikill áhugi er meðal sveitarstjórnarmanna á Hornafirði að halda áfram á þessari braut. Í þessu sambandi er nauðsynlegt að árétt landfræðilega sérstöðu héraðsins.
3. Sömuleiðis er tekið undir áherslur í tillögunum: "Fjarskiptamál í dreifbýli", "Jöfnun verðs á gagnaflutningum" og "Efling náms með fjarskipta- og upplýsingatækni". Nú þegar hafa Hornfirðingar nýtt sér þá möguleika sem tillögurnar fjalla um en mikilvægt er að gera enn betur í þessum málum.
4. Bæjarráð Hornafjarðar lýsir hér með áhuga sínum á að taka þátt í verkefnum sem eftirgreindar tillögur hafa í för með sér:
§ Efling fiskeldis. – Slíkt verkefni er nú í undirbúningi af hálfu áhugamanna heima í héraði.
§ Verkefnið “rafrænt samfélag”. Taldir eru miklir möguleikar á öflugri þátttöku í slíku verkefni og talsverð undirbúningsvinna hefur farið fram undanfarin ár (sjá meðfylgjandi trúnaðargögn – aðeins send iðnaðarráðherra og forstjóra Byggðastofnunar).
§ Aukið verðmæti sjávarfangs – líftækni: Skilyrði til þátttöku í slíku verkefni eru góð og m.a. horft til þátttöku öflugra sjávarútvegsfyrirtækja, rannsóknastofnana og háskóla í því sambandi.
§ Uppbygging ferðaþjónustu í dreifbýli. Ferðaþjónusta í dreifbýli í Austur-Skaftafellssýslu hefur vaxið gríðarlega mikið á undanförnum árum. Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs á þessu ári mun enn auka fjölbreytni og skapa ný tækifæri í þessum efnum. Meginhugmyndin í tillögunum um að styðja við rannsókna- og þróunarstarf ásamt markaðsetningu ferðaþjónustu í dreifbýli fellur vel að hugmyndum heimamanna.
5. Sveitarfélagið hefur haft forgöngu um vinnu að stefnumótun í atvinnumálum. Vinna við þá stefnumótun hefur verið í höndum verkefnisstjórnar með þátttöku nokkurs fjölda áhugafólks. Samþætting þessara tveggja þátta, þ.e. byggðaáætlunar samþykktri af Alþingi og stefnumótunar heimamanna í atvinnumálum, ætti að skapa tækifæri til öflugs átaks í atvinnu- og byggðamálum í sveitarfélaginu.
6. Bæjarstjórn Hornafjarðar mun fylgjast með umræðum og afgreiðslu framlagðrar tillögu til þingslályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002-2005 á Alþingi og er tilbúin að veita umsögn sína um hana eða rökstyðja frekar þau atriði sem getið er hér að framan, sé þess óskað.
Stefán lagði fram til kynningar uppdráttur að landsvæði sem hugsanlegt væri að úthluta til skógræktar.
Bæjarráð fjallaði um tilboð sem borist hefur frá Martölvunni í hópvinnu og skjalakerfi fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð sammála að hafna tilboðinu á eftirfarandi forsendum:
· Kostnaður of hár miðað við umfang skjalavistunarþarfar sveitarfélagsins
· Ekki er gert ráð fyrir kostnaðinum í fjárhagsáætlun ársins 2002
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta vinna frumathugun á möguleikum þess að fleiri verkefni við kvikmyndagerð komi inn í sveitarfélagið.
Lögð var fram til kynninga skýrsla frá Sveinbirni Imsland um samfélagsvefinn staður.is.
Launamál bæjarfulltrúa voru rædd.
Fundi slitið kl 10:40


