Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 278
278. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 13. janúar kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Hjalti Vignisson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs
Helgi Már fór yfir málið. Fram kom að áætluninni fylgja auknar kröfur og um leið aukinn kostnaður sem leggst a.m.k. að hluta til á sveitarfélögin. Kristín lagði áherslu á að sá kostnaður verði greindur þegar þessi mál fara að skýrast. Málinu vísað til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
2. Ákvörðun um framlag sveitarfélagsins vegna hamfaranna í Asíu
Samþykkt að leggja kr. 150.000- til yfirstandandi söfnunar vegna hamfaranna. Féð tekið af liðnum óráðstöfuðu.
3. Gerð undanþágulista fyrir opinbera starfsmenn sveitarfélagsins
Samþykktur listi yfir þann hluta af starfsmönnum sveitarfélagsins sem ekki er gert ráð fyrir að fari í verkfall. Listinn verður sendur í auglýsingu með tilheyrandi hætti.
4. Heimsókn Ratsjárstofnunarmanna
Frestað samkvæmt ósk starfsmanna Ratsjárstofnunar.
5. Erindisbréf fyrir starfshóp um mötuneytismál
Lagt er til í erindisbréfinu að í nefndinni sitji þrír nefndarmenn, einn samkvæmt tilnefningu bæjarráðs einn samkvæmt tilnefningu skólanefndar og einn samkvæmt tilnefningu heilbrigðis- og öldrunarráðs. Starfsmenn nefndarinnar verði framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs. Bæjarráð leggur áherslu á að nefndin afli sem víðtækastra upplýsinga í störfum sínum. Fyrirliggjandi erindisbréf samþykkt.
6. Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing
Bæjarstjóri fór yfir málið og útskýrði einstök atriði samningsins.. Einar lagði áherslu á að framlag sveitarfélagsins fari ekki fram yfir þær 16 milljónir sem fram koma í drögum að samningi. Kristín benti á að þessi samningur kunni að hafa áhrif á almenna úthlutun styrkja til annarra félagasamtaka, það er að þeir lækkuðu. Bæjarstjóri taldi að framkvæmdastyrkir sem þessi eigi að vera utan við almennar styrkveitingar, ekki að hafa áhrif til lækkunar á öðrum styrkjum. Tóku aðrir í sama streng. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningnum samkvæmt fyrirliggjandi drögum, dagsett 13. janúar.
7. Ósk um tilnefningu sveitarfélagsins um fulltrúa í ráðgjafarnefnd fyrir Skaftafellsþjóðgarð
Tilnefningu frestað til næsta fundar
8. Styrkumsókn
- Undirbúningsfélag um stofnun fuglaathugunarstöðvar á Höfn
Vísað til úthlutunar styrkja á vegum bæjarráðs.
9. Innsend erindi og til kynningar
- Bréf félags Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 28. des. 2004 um hækkun framlaga í fjölskyldu- og styrktarsjóð.
Kristín spyr hvort þessu fylgi aukin útgjöld fyrir sveitarfélagið. Fram kom að um nokkra hækkun er að ræða fyrir sveitarfélagið.
- Bréf Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytisins, dags. 28. desember 2004 um þjónustusamning.
Bréfinu vísað til Heilbrigðis- og öldrunarráðs og bæjarstjóra falið að ganga frá samkomulagi um samskipti sveitarfélagsins og heilbrigðisráðuneytisins varðandi þjónustusamninginn.
Bréf Félagsmálaráðuneytisins, dags. 3. janúar 2005, um uppreiknu tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða.
Til kynningar.
- Landsmarkaskrá 2004.
Til kynningar.
- Gögn frá SSA dags. 4. janúar 2005.
Kristín spurði um samning milli Menningarráðs Austurlands og ríkisins. Upplýst að hann væri í vinnslu.
10. Önnur mál
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi um Háskólasetrið með fulltrúa Háskóla Íslands.
Bæjarstjóri kynnti erindi frá veraldarvinum.
Starfsmenn fóru skjal yfir sorpeyðingargjald hjá þeim sem ekki eru með hreinsun, dags. 1.. janúar 2005.
Rætt um breytingar á raforkuverði. Eftirfarandi bókað um málið:
„Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna frétta um breytingar á raforkuverði og hækkana á ákveðna notendur samfara því. Bæjarráð mótmælir einkum því að með breytingunum er verið að hækka raforkuverð til íbúa á landsbyggðinni. Bæjarráð skorar á yfirvöld og ráðherra orkumála að tryggja aðgerðir sem leiðrétta auknar álögur sem bitna á íbúum landsbyggðarinnar vegna nýju raforkulaganna.“
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umsóknum í stöðu framkvæmdastjóra HSSA.
Fundi slitið kl. 12.00.


