Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 277
277. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 6. janúar kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd, 15. fundur 20. desember.
Bæjarstjóri upplýsti að Ólafur Örn Haraldsson forstjóri Ratsjárstofnunar mun koma á fund bæjarráðs um miðjan janúar. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um Norðurljósaverkefnið á næsta fundi. Varðandi lið 5 benti Halldóra á að athuga ætti opnunartíma sundlaugar um páska og hátíðir m.a.vegna þjónustu við ferðafólk. Halldóra kallar eftir tillögun frá atvinnumálanefnd vegna endurgreiðsla á refa og minkaveiðum.
Fundargerð samþykkt.
2. Reglur um gjaldtöku fyrir notkun á húsnæði í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bæjarráð samþykkir meðfylgjandi tillögu að gjaldskrá fyrir notkun á húsnæði í eigu sveitarfélagsins dags. 6. janúar 2005.
3. Staða sveitarsjóðs 30. desember 2004
Ásta lagði fram yfirlit yfir stöðu sveitarfélagsins dags. 30. desember 2004.
4. Vinabæjarmót 2005
Bæjarráð samþykktir að vinabæjarmót verði hér á Hornafirði 3.-5. júní.
Bæjarráð skipar Elínu Magnúsdóttur, Einar Karlsson og Kristínu G. Gestsdóttur í nefnd vegna þessa.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf félags skipstjórnarmanna vegna umboðs til kjarasamningsgerðar fyrir félagsmenn Félags skipstjórnarmanna við hafnsögu, stjórn hafnrekinna báta og hafnarstarfsmenn með skipstjórnarréttindi, dags. 13. des. 2004.
Erindinu vísað til launanefndar.
· Bréf Skipulagsstofnunar vegna byggingarfulltrúa, dags. 21. des. 2004.
Til kynningar.
· Bréf umboðsmanns Alþingis vegna máls Læknafélags Íslands, dags. 21. des. 2004.
Til kynningar.
· Bréf félagsmálaráðuneytisins vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 17. desember 2004.
Til kynningar.
6. Önnur mál
· Bréf frá Sambandi ísl. sveitarfélaga dags. 27. desember sl. um að sveitarfélög þurfi að birta skrá yfir þá starfsmenn sem ekki hafa verkfallsheimild fyrir 1. febrúar ár hvert. Bæjarráð felur starfsmönnum að gera lista og leggja fyrir næsta bæjarráðsfund.
· Íbúatölur
Listi Hagstofunnar lagður fram um lögheimilisflutninga til og frá sveitarfélaginu frá 12. mars til 11. nóvember sl. En íbúum í sveitarfélaginu fækkaði verulega 1. desember sl.
- Stefán ræddi um skólamál í Öræfum , bæjarráð samþykkti bréf til Jöfnunarsjóðs varðandi þau má. Einnig lagði hann fram lista um þróun nemendafjölda í Suðursveit og Öræfum næstu ár.
Fundi slitið kl. 12.00.


