Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
165. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 9. april 2002, kl 10:00 - 13:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Kristín Gestsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Hermann Hansson.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Áður en formlegur fundur hófst hittust fundarmenn í Byggðasafninu þar sem Sverrir Scheving Thorsteinsson, kynnti fjölbreytt safn sitt sem hann hefur boðið sveitarfélaginu að taka við. Sýning á hluta safngripa Sverris hefur verið í Byggðasafninu undanfarnar vikur.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingarnefnd Nýheima 40. fundur 26. mars 2002.
Halldóra telur eðlilegt að verkefni s.s. vefgerð og rekstur á kaffiteríu verði boðin út.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 39. fundur 3. apríl 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 28. fundur 19. mars 2002.
Fundargerð er ekki staðfest af nefndarfólki og var því nú lögð fram til kynningar.
· Framkvæmdanefnd um vímuvarnir 37. fundur 18. mars 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 690. fundur 15. mars 2002.
Til kynningar.
2. Ársreikningur 2001
Ásta fór yfir helstu lykiltölur sem eru að skatttekjur námu tæpum 610 milljónum króna og rekstur málaflokka rúmum 503 milljónum. Skatttekjur umfram málaflokka eru því 107 milljónir. Greiðslubyrði langtímalána er 44 milljónir og eignfærð og gjaldfærð fjárfesting 130 milljónir. Ráðstafað er því umfram tekjur 67 milljónum. Peningaleg staða án lífeyrisskuldbindinga er - 268 milljónir, en með lífeyrisskuldbindingum -384 milljónir. Hreint veltufé í árslok er 68,3 milljónir. Reikningar Hornafjarðarhafnar eru þeir að tekjur eru rúmar 58 milljónir og gjöldin 45 milljónir. Fjármagnsgjöld eru 2,5 milljónir, þannig að tekjur umfram gjöld eru 10,5 milljónir. Peningaleg staða í árslok er neikvæð um 23 milljónir án lífeyrisskuldbindinga. Kaupleigukerfið skilaði 18 milljónum í leigutekjur, rekstrargjöld námu 10 milljónum þannig að tekjur umfram gjöld námu 8 milljónum. Fjármagnskostnaður og greiðslubyrði lána námu tæpum 13 milljónum þannig að halli kerfisins er 5 milljónir. Heildartekjur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands voru 228 milljónir og rekstrargjöld tæpar 233 milljónir. Að teknu tilliti til fjármagnsliða og reksturs sjúkrabifreiðar er niðurstaða ársins neikvæð um 10 milljónir.
Bæjarráð vísar ársreikningum sveitarsjóðs og stofnana þess til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjárfestingar 2002-2011.(3ja / 10. ára áætlun)
Bæjarráð samþykkir að gera leiðréttingu á fjárhagsáætlun 2002 vegna frestunar framkvæmda 2001. Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
4. Heimsókn Sigfúsar Jónssonar frá Nýsi.
Sigfús ræddi um ýmis rekstrarform fasteigna m.a. fasteignafélög. Ákveðið var að skoða málefnið nánar í samráði við Sigfús og þá sérstaklega með tilliti til Nýheima.
5. Þjónustusamningur á heilbrigðissviði – drög
Jóhann fór yfir drögin. Bæjarráð samþykkir að vinna áfram að gerð samningsins í samræmi við fyrirliggjandi drög.
6. Tilnefning fulltrúa í starfshóp til að fylgja eftir stefnumótun sveitarfélagsins í atvinnumálum
Eftirfarandi fulltrúar voru skipaðir í nefndina:
Þorbjörg Arnórsdóttir, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Aðalsteinn Ingólfsson, Björn E. Traustason og Halldóra B. Jónsdóttir.
7. Erindi Kjötumboðsins vegna nauðarsamnings
· Bréf dags. 15. mars 2002
Bæjarráð samþykkir að taka valkosti 1.1.1..
8. Fundarboð á aðalfund Íslenskra ævintýraferða 18. apríl n.k.
Bæjarstjóra falið að sjá um málið.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Gögn frá fulltrúaráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga 22. og 23. mars s.l..
· Bréf Sambands ísl. sveitarf. um rafræn skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, dags. 2. apríl 2002.
· Bréf Félagsmálaráðuneytis vegna sveitarstjórnarkosninga 25. maí n.k. , dags. 26. mars 2002.
· Raðstefna “Íþróttir fyrir þig” 3. maí 2002.
· Bréf UMFÍ dags. 22. mars 2002 um ferðastyrk til leiðbeinaenda/kennara á námskeið vegna íþrótta eldri borgara.
· Fundur “Heilnæm matvæli” á vegum Félags heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa 8. apríl n.k..
· Bréf Umhverfisráðuneytis dags. 26. mars s.l.. v “Dagur umhverfisins” 25. apríl n.k..
· Bréf Martölvunnar dags. 1. mars 2002 vegna Lotus Notes lausna.
Ofangreind erindi eru til kynningar.
10. Önnur mál
Málefni Orkuversins
· Bréf dags. 4. april þar sem hafnað er tilboði sveitarfélagsins í kaup á hluta líkamsræktartækja Orkuversins.
· Bréf dags. 4. april þar sem óskað er eftir viðræðum við bæjaráð um stöðu mála er varða líkamsrækt á Hornafirði.
Erindinu frestað til næsta bæjarráðsfundar.
Bæjarráð skipar Halldóru B. Jónsdóttur og Ingu Jónu Halldórsdóttur í stjórn starfsmenntasjóðs Vökuls stéttarfélags og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Fundi slitið kl. 13:00


