Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 276
276. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss, miðvikudaginn 22. desember kl. 12:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Björn E. Traustason og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
Heilbrigðis- og öldrunarráð, 56. fundur, dags. 15. desember 2004.
Kristín spurði um vararafstöð á HSSA og hvernig hægt sé að bregðast við rafmagnsleysi á stofnuninni. Kom fram í máli starfsmanna að haft hafi verið samband við sérfróða aðila um þessi mál og vinna sé í fullum gangi.
Fundargerð samþykkt.
2. Reglur um gjaldtöku fyrir notkun á húsnæði í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Tillögur lagðar fram til kynningar. Starfsmönnum falið að vinna áfram að tillögum.
3. Málefni NorðurÍss
Bæjarstjóri kynnti erindið. Lesin upp eftirfarandi bókun atvinnumálanefndar um málið:
Rætt um þann góða árangur sem stjórnendur NorðurÍss hafa náð í sölu á afurðum fyrirtækisins á síðustu vikum og mánuðum. Samkvæmt bréfi frá NorðurÍs býðst sveitarfélaginu að nýta sér forkaupsrétt á hlutabréfum í félaginu.
Í ljósi aðstæðna í sveitarfélaginu, að fyrirtæki innan og utan héraðs hafa keypt hlutafé í NorðurÍs og að því er virðist bjartari framtíðar fyrirtækisins leggur atvinnumálanefnd til að sveitarfélagið kaupi umrætt hlutafé.?
Bæjarráð samþykkir að nýta sér forkaupsrétt að hlutafé í NorðurÍs.
4. Reglur um félagslega heimilisþjónustu.
Bæjarráð leggur til að bætt verði inn ákvæði í reglurnar sem hljóði svo: Um leið og samþykkt er að veita tiltekna þjónustu skal gera ráð fyrir auknum útgjöldum í rekstri. Ef útgjöld til félagslegrar heimilisþjónustu hafa náð því hámarki sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun skal annað hvort hafna umsókninni á þeim forsendum eða sækja um sérstaka fjárveitingu til bæjarráðs áður en þjónustan er veitt.
Þá leggur bæjarráð til að sett verði inn í reglurnar ákvæði um innan hversu margra daga beri að svara umsókn.
Bæjarráðið vísar reglunum til umsagnar til félagsmálaráðs.
5. Reglur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands um námsleyfi lækna
Bæjarráð samþykkir reglurnar.
6. Innsend erindi og til kynningar
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna starfshóps til að fara yfir íþróttamál á Íslandi, dags. 14. desember 2004.
Til kynningar.
Bréf Umboðsmanns Alþingis vegna afgreiðslu á erindi Læknafélags Íslands, dags. 5. nóvember 2004.Til kynningar.
Bréf Varasjóðs húsnæðismála vegna Bjarnarhóls 7, dags. 13. desember 2004.
Til kynningar.
Bréf Úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum vegna máls nr. 317/2004, dags 29. nóvember 2004.
Starfsmönnum falið að leita lögfræðiálits.
Bréf Siglingastofnunar Íslands vegna yfirlitskýrslu um sjóvarnir, dags. 16. desember 2004.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Lagt var fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 22. desember 2004, vegna hringvegs um Dynjanda. Bæjarráð samþykkir leið 1 sbr. bréf Skipulagsstofnunar.
Lagt fram bréf SM kvótaþings ehf. dags. 21. desember 2004 vegna forkaupsréttar sveitarfélags á Steinunni SF ? 10 án veiðiheimilda. Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt sveitarfélagsins að skipinu.
Fundi slitið kl. 13.25


