Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
166. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 16 april 2002, kl 8:10
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Kristín Gestsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Hermann Hansson.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 36. fundur 9. apríl 2002.
Rætt var um drög að skilmálum vegna deiliskipulags á Lönguhólum, en það er í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins sem samþykkt var 2000.
Hermannn telur óskynsamlegt að skipuleggja íbúðabyggð á svæðinu m.t.t. þeirrar byggðar sem fyrir er. Gísli setur sig ekki upp á móti skipulagi svæðisins en telur að skipuleggja þurfi þetta svæði í stærra samhengi, þ.e. að gert verði heildardeiliskipulag yfir þjónustusvæðið. Bæjarstjóri sagði eftirspurn eftir þessum lóðum fyrir íbúðir fyrir eldri borgara.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir heimild skipulagsstofnunar til að auglýsa deiliskipulag fyrir Lönguhóla og Skálafell 1.
Rætt var um skammtímaleyfi fyrir atvinnustarfsemi innan íbúðarbyggðar og kallað eftir upplýsingum um fjölda útgefinna leyfa og gildistíma þeirra.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingarnefnd Nýheima 41. fundur 5.apríl 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Framkvæmdaráð Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs.17. fundur 7. mars og 18. fundur 9. apríl 2002 .
Fundargerðir samþykktar.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 36. fundur 8. apríl 2002.
Hermann spurðist fyrir um kostnaðarauka vegna framkvæmda við nýja smábátahöfn. Helgi fór yfir ástæður kostnaðaraukans sem er fyrst og fremst vegna magnaukningar í kjarna og nokkur aukaverk.
Fundargerð samþykkt.
· Þjónustuhópur aldraðra 8. fundur 10. apríl 2002. - Til kynningar.
2. Málefni Orkuversins
· Bréf dags. 4. apríl þar sem hafnað er tilboði sveitarfélagsins í kaup á hluta líkamsræktartækja Orkuversins.
· Bréf dags. 4. apríl þar sem óskað er eftir viðræðum við bæjaráð um stöðu mála er varða líkamsrækt á Hornafirði.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. Bæjarráð er sammála um að gæta þurfi jafnræðis gagnvart báðum þeim aðilum sem sýnt hafa áhuga á rekstri líkamsræktarstöðvar. Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að vinna að tilboði sem báðir fá að taka afstöðu til.
3. Ósk um lengingu starfsdaga Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
· Bréf Jóhanns Morávek skólastjóra ódagsett.
Jóhann mætti á fundinn og fór yfir málið. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að skoða málið.
4. Fundarboð á aðafund Búbótar 19. apríl n.k..
Bæjarráð felur Ástu H. Guðmundsdóttur að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
5. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis
· Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 3. apríl s.l. vegna Hótels Skaftafell.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
6. Ósk um yfirtöku á afnotaréttindum á hluta úr lóð nr. 6 við Víkurbraut
· Bréf Hrauns – dags. 8. febrúar 2002 f.h. Hafdísar Gunnarsdóttur.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við yfirtöku afnotaréttarins.
7. Ósk um styrk til ljósmyndaverkefnis
· Bréf Birgis F. Birgissonar ljósmyndara dags. 5. apríl 2002.
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni.
8. Innsend erindi og til kynningar
· Ársfundur húsnæðisfulltrúa og eftirlitsmanna sveitarfélaga 30. apríl n.k..
Fram kom að Ásta H. Guðmundsdóttir er starfsmaður húsnæðisnefndar og Björn Imsland er nýráðinn eftirlitsmaður fasteigna.
· Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um Tölvufræðslu BSRB dags. 2. apríl 2002.
Til kynningar.
· Alþjóðahús – kynning, ódagsett bréf Brodda Sigurðssonar upplýsingafulltrúa.
Til kynningar.
· Erindi Huldu S. Þráinsdóttur um Sögu Byggðar í Austur-Skaftfellssýslu dags. 18. mars 2002.
Bæjarráð telur ekki tímabært að fara í þessa söguritun nú.
9. Önnur mál
Ásta lagði fram tillögu um að styrkur kr. 300.000,- frá Brunabótafélagi Íslands frá 1998 vegna samstarfs í menningarmálum á Suðausturlandi verði settur í Listvinasjóð, þar sem unnið verði að málinu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi hugsanlega leigu á Vöruhúsi KASK fyrir Jöklasýningu og Svavarssafn. Einnig ræddi hann stöðu mála varðandi stofnun fasteignafélags um Nýheima. Samþykkt að vinna áfram að málinu.
Halldóra ræddi þörf á rými í Nýheimum fyrir þann sívaxandi hóp sem stundar hér fjarnám.
Fundi slitið kl. 10:17


