Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 275
275. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 16. desember kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar 27. fundur, 7. desember 2004.
Kristín gerði málefni HSSA að umtalsefni og spurði um vararafstöð fyrir stofnunina.
Bæjarstjóri greindi frá fyrirhuguðum fundi með yfirlækni og almannavarnarnefnd um HSSA nk. mánudag. Þá gerði hann grein fyrir því að RARIK setji HSSA í forgang þegar hleypt er á rafmagni í þegar rafmagni er skammtað.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn 64. fundur, 13. desember 2004
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd 61. fundur, 10. nóvember 2004 og 63. fundur, 8. desember 2004.
Halldóra Bergljót spurði um samninga á milli Hafnar- og Heppuskóla og Menningarmiðstöðvar. Kom fram að samningarnir formfesta samstarf sem hefur verið við lýði í nokkurn tíma.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd 66. fundur, 8. desember 2004.
Kristín ræddi um skipulag skólastarfs til skólaloka 2004-2005 og tók undir umræður í skólanefnd um að seinkun á samræmdum prófum í 10. bekk væri of lítil. Þá gerði hún endurgreiðslur á fyrirframgreiddum mat að umtalsefni. Hún taldi að endurgreiðsla ætti ekki að eiga sér stað nema í undantekningatilfellum en skoða mætti hugmynd að systkinaafslætti.
Halldóra lagði áherslu á að endurgreiðslur ættu eingöngu að vera í undantekningatilfellum en það mætti skoða hvort hægt væri að koma til móts við barnmargar fjölskyldur.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd 47. fundur, 13. desember 2004.
Kristín tók undir bókun umhverfisnefndar um umgengni á fyrirtækjalóðum og bújörðum. Halldóra tók undir þessi orð og benti einnig á að víða liggja bílhræ í innkeyrslum.
Einar ræddi um litboltafélagið og umgengni þess í Lyngey.
Helgi Már svaraði að fyrirtækjum hefði verið send bréf um bætta umgengni á lóðum.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2005
Ásta fór yfir tillögur að fjárhagsáætlun fyrir árið 2005.
Halldóra lagði til að ráðist verði í auknar framkvæmdir við bílaplön og götur að upphæð 13 mkr. Þessar framkvæmdir gera ráð fyrir að framkvæmt yrði fyrir 81 mkr. í stað 68 mkr. Þá gerði hún jöklasýningu að umtalsefni. Gert er ráð fyrir að leggja fram 20 mkr. í sýninguna en framlag sveitarfélagsins er háð því að fjármunir komi einnig frá utanaðkomandi aðilum. Lántaka ársins yrði því 100 mkr. í stað 87 mkr. í útsendum gögnum. Samkvæmt þessum breytingum aukast skuldir bæjarsjóðs um 10 mkr.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs. Gert er ráð fyrir rekstrartekjum upp á tæpar 50 mkr., rekstrargjöldum upp á um 17 mkr. og að fjármagnstekjur og fjármagnsgjöld verði neikvæð um 6 mkr. Frá rekstri til framkvæmda standa því eftir 26 mkr. Gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á tæpar 140 mkr. og þ.a. koma um 43 mkr. í hlut hafnarsjóðs. Til að mæta mismun á rekstrarafgangi og kostnaði við framkvæmdir verða tekin ný langtímalán að upphæð 25 mkr.
Ásta gerði grein fyrir fjárhagsáætlun fyrir vatnsveitu og kaupleigu. Vatnsveitan kemur til með að standa undir sér en gert er ráð fyrir rúmlega 4 mkr. króna halla á rekstri kaupleiguíbúða. Til að láta reksturinn standa undir sér þyrfti að hækka leigu umtalsvert sem ekki er talið raunhæft miðað við núverandi ástand.
Ásta fór yfir áætlun fyrir HSSA. Kom fram að gert sé ráð fyrir 2 mkr. króna hagnaði af rekstri hjúkrunarsviðs en 2 mkr. króna halla af rekstri heilsugæslusviðs. Kom fram að áætlað sé að rekstur HSSA árið 2004 verði neikvæður um 3 mkr. Sagt frá bókun Heilbrigðis- og öldrunarráðs frá 56. fundi þess, dags. 15. desember um að stjórnendum HSSA hafi verið falið að mæta halla ársins 2004 í rekstri ársins 2005.
Ásta lagði fram rekstrar- og framkvæmdayfirlit sveitarsjóðs og fyrirtækja, dags. 15. desember 2004.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun til seinni umræðu í bæjarstjórn.
3. Reglugerð fyrir Hornafjarðarhöfn
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við reglugerðina. Helgi Már útskýrði mörk hafnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa reglugerðinni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4. Ósk um styrk vegna forvarnarstarfs læknanema.
Kom fram að forvarnarhópur læknanema sé væntanlegur til staðarins eftir áramót.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Sambands íslenskra Sveitarfélaga vegna Staðardagskrár 21, dags. 3. desember 2004.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Bréf heilbrigðis- og tryggingarráðuneyti vegna þjónustusamnings um heilbrigðis- og öldrunarmál, dags. 7. desember 2004.
Til kynningar.
· Bréf félagsmálaráðuneytis vegna breytinga á lögum um húsnæðismál ? veitingu viðbótarlána, dags. 8.desember 2004.
Til kynningar.
· Bréf félagsmálaráðuneytisins vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 7. desember 2004.
Til kynningar.
· Bréf NorðurÍs, vegna aukins hlutafjár í félaginu, dags. 10. desember 2004.
Vísað til atvinnumálanefndar til umsagnar.
· Bréf Veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar, vegna endurgreiðslu vegna refa- og minkaveiði, dags. 9. desember 2004.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Bréf Samkeppnisstofnunar vegna málefnis Galdurs og Hátíðni, dags. 10. desember 2004.
Til kynningar.
6. Önnur mál
· Lagt var fram minnsblað dags. 16. desember um greiðslu fyrir fundarsetu í starfsnefndum. Tillagan geri ráð fyrir að forstöðumenn á fastlaunasamningum fái ekki greitt fyrir slíka fundarsetu en aðrir starfsmenn sveitarfélagsins fá greiðslu séu fundir haldnir utan hefðbundins vinnutíma. Þá gerir tillagan ráð fyrir að greiðslur til annarra, þ.e. kjörinna fulltrúa í nefndum, skulu vera 2000 kr./klst. Ennfremur skal greiða formanni starfsnefndar tvöfalt kaup annarra kjörinna fulltrúi ef formaður er skipaður.
· Rætt var um fréttir af niðurskurði í starfsemi Ratsjárstofnunar. Kom fram að þetta hefur bein áhrif á 48 íbúa sveitarfélagsins.
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðra breytinga hjá Ratsjárstofnun og uppsagna starfsfólks.
Það er ljóst að fyrirhugaðar breytingar munu hafa mikil áhrif í ekki stærra samfélagi þar sem búast má við að flestir starfsmenn þurfi að leita sér að atvinnu annars staðar og flytja búferlum með fjölskyldur sínar.
Það er óásættanlegt ef fyrirhugaðar breytingar verði til þess að störf sem er hægt að vinna áfram á landsbyggðinni verði flutt þaðan á suðvesturhornið.
Bæjarráðið mun leita eftir nánari upplýsingum um uppbyggingu og framtíðaráform Ratsjárstofnunar og viðræðum við stjórnendur stofnunarinnar og yfirvöld.
· Bæjarstjóri lagði fram drög að samningi við hestamannafélagið til kynningar.
· Fulltrúar foreldrafélagsins Krakkahóla mættu á fundinn kl. 10:55 og lögðu fram mótmæli á breytingum á vistunartímum í leikskólum sem eiga að taka gildi 1. janúar 2005. Bæjarráð vísar málinu til skólanefndar.
Fundi slitið kl. 12.40


