Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 274
274. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, föstudaginn 10. desember kl. 14:30.
Mætt voru: Reynir Arnarson sem stjórnaði fundi, Einar Karlsson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 119. fundur 30. nóvember 2004.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 60. fundur 19. nóvember og 61. fundur 30. nóvember 2004.
Rætt um húsaleigu á íbúðum og hvort raunhæft sé að hækka hana til að mæta gjöldum að fullu. Ekki þykir raunhæft að hækka leigu frekar en ráð er fyrir gert í fjárhagsáætlun.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 62. fundur 1. desember 2004.
Kristín lýsti sig andvíga breytingum á yfirstjórn sveitarfélagsins og vísaði til ummæla sinna á síðasta fundi bæjarráðs. Hún spurði um afstöðu þeirra kjörinna fulltrúa sem sátu fundinn og allir lýstu þeir sig reiðubúna til að gera þessa tilraun í eitt ár.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2005
Rætt var um tillögu að skiptingu stofnbúnaðar deilda, yfirlit yfir umsóknir um styrki og vinnulista yfir framkvæmdir.
Bæjaráð samþykkir þær tillögur sem liggja fyrir um stofnbúnað og styrkjaramma. Þá leggur bæjarráð til að einni miljón verði bætt við viðhaldsramma og felur starfsmönnum að leggja fram nýja viðhaldsáætlun í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarráð fór yfir framkvæmdalista og vísar því til áframhaldandi vinnu.
(Kristín vék af fundi kl. 16.00)
Bæjarstjóri lagði fram drög að samningi við hestamannafélagið um byggingu reiðhallar. Bæjarstjóra falið að leggja fram tillögu að samningi í samræmi við umræður sem fram fóru á fundinum.
Bæjarráð ræddi um ósk skólastjóra Heppuskóla um að gera stuðningsfulltrúa að heilsársstarfsmönnum. Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við óskinni.
Bæjarráð samþykkir að beiðni Hafnarskóla um aukin kvóta vegna vettvangsferða og félagstarfa verði skoðuð með tilliti til þess hvort beiðnin rúmist innan launabreytingaliðsins.
3. Ósk um malbikun plans við enda Dalbrautar
· Bréf Héðins Sigurðssonar, ódagsett.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
4. Ósk um styrk vegna útgáfu sögukorta
· Bréf Rannsóknar og ráðgjöf, dags. 23. nóvember 2004.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að ræða við útgáfuaðila t.d. um hvort hann telji skynsamlegra sé fyrir sveitarfélagið að vera með Austurlandi eða Suðurlandi við gerð slíks sögukorts.
Vísað til menningarmálanefndar og atvinnumálanefndar.
5. Umsókn um tækifærisvínveitingaleyfi
· Þrúðmars Þrúðmarssonar f.h. Þorrablótsnefndar Nesja- og Lónmanna dags. 22. nóvember 2004.
Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga frá leyfinu þegar að fyrir liggi húsaleigusamningur og önnur leyfi.
6. Boð um að kaupa íbúð í Ekru
· Bréf frá Hraun ? fasteignasölu, dags. 3. nóvember 2004 og fundargerð húsnæðisnefndar frá 30. nóvember 2004.
Bæjarráð tekur undir með húsnæðisnefnd og sér ekki ástæðu til að festa kaup á íbúðinni að svo stöddu.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kynningarrits um norræna aðgengissamkeppni dags. 23. nóvember 2004.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Bréf Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytisins vegna styrks til framkvæmdar á hjúkrunarheimili HSSA, dags. 29. nóvember 2004.
Bæjarráð fagnar því að ráðuneytið hafi ákveðið að ráðast í framkvæmd á 4ja manna stofu á HSSA og breyta henni í tvær 2ja manna stofur.
· Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um nám og skiptinámsdvöl fyrir stjórnendur í norrænum sveitarfélögum dags. 29. nóvember 2004.
Til kynningar.
· Bréf félagsmálaráðuneytisins um niðurstöðu umboðsmanns Alþingis á úrskurðum félagsþjónustu, dags.1. desember 2004.
Til kynningar.
· Bréf/kynningarbæklingur Lýðheilsustöðvar, dags. 6. desember 2004, um þróunarverkefnið ?Allt hefur áhrif, einkum við sjálf?.
Vísað til æskulýðs- og tómstundaráð.
8. Önnur mál
Ásta kynnti forritið íbúasýn og þá þörf sem fyrir hendi er að kaupa það. Bæjarráð felst á að forritið verði keypt.
Lagt var fram tillaga framkvæmdastjóra um greiðslu til nefndarmanna. Starfsmönnum falið að vinna frekar að tillögunum og m.a. kostnaðarmeta þær.
Albert greindi frá viðræðum sínum ásamt öðrum fulltrúum sveitarfélagsins við heilbrigðisráðuneytið um rekstur HSSA. Kom fram að niðurstaða væri fengin í þeim viðræðum sem þykir ásættanleg fyrir sveitarfélagið. Þjónustusamningi sveitarfélagsins og ráðuneytisins verður því framhaldið.
Fundi slitið kl. 17.20


