Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
172. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl 8:10
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, Gísli Sverrir Árnason, Sigurlaug Gissurardóttir og Hermann Hansson.
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis og öldrunarráð 35. fundur 21. maí 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 40. fundur 22.maí 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 37. fundur 22. maí 2002.
Sigurlaug telur ekki skynsamlegt að bæta við vinabæ á Grænlandi heldur eigi að rækta betur þau vinabæjartengsl sem fyrir eru.
Fundargerð samþykkt.
· Haust 29. fundur 14. maí 2002 til kynningar
2. Lén www.hornafjordur.is
· Bréf Hátíðni dags. 13. maí 2002.
Afgreiðslu er frestað.
3. Ósk um vínveitingaleyfi
· Umsókn fyrir Hótel Eddu, Nesjaskóla dags. 6. mars 2002.
Bæjarráð samþykkir útgáfu vínveitingaleyfis fyrir Hótel Eddu.
4. Úthlutun láns til sveitarfélagsins
· Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga 17. maí 2002.
Bæjarráð samþykkir lántöku frá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 35 milljónir kr. Lánið er í íslenskum krónum með breytilegum vöxtum, nú 4,5% bundið vísitölu neysluverðs og til allt að 10 ára. Lánið er tryggt með tekjum sveitarfélagsins.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra umboð til að ganga frá lántökunni.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Bygging reiðskemmu - bréf Hestamannafélagsins Hornfirðings dags. 13. maí 2002.
Sigurlaug lýsti ánægju með það frumkvæði sem fram kemur í erindinu og leggur til að teknar verði upp viðræður við þessa aðila. Afgreiðslu málsins frestað.
6. Önnur mál
Erindi frá NorðurÍs
"Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að kaupa hlutafé allt að 3,12 milljónum kr. í Eignarhaldsfélagi Austurlands með skilyrði um að félagið kaupi hlutafé í NorðurÍs hf fyrir 5,2 milljónir kr. Greiðslan er sömuleiðis skilyrt því að aðrir aðilar sem samþykkt hafa þáttöku í hlutafjáraukningunni standi við sinn hlut. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að leita eftir samvinnu við aðra aðila í sveitarfélaginu um fjármögnun á áðurnefndu framlagi. “
Tónskóli - lenging skólaárs
Bæjarstjóri og framkvæmdastjórar leggja fram eftirfarandi bókun:
„Samkvæmt grein 1.3.6 í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Félags tónlistarskólakennara er heimilt að hefja lengingu skólaárs tónlistarskóla frá ágúst 2002 eða ágúst 2003. Nýgerðir kjarasamningar hafa leitt til verulegrar launahækkunar og lenging skólaársins strax í haust mun auka útgjöld á aðra milljón króna á einu skólaári.“
Í ljósi þessa samþykkir bæjarráð að fresta lengingu skólaárs Tónskólans til skólaársins 2003 - 2004 sem er heimilt samkvæmt kjarasamningi.
Tilboð í viðhald á Mánagarði, Mötuneyti Nesjaskóla, Sundlaug og Leikskólanum Óla Prik.
Valur Sveinsson mætti á fundinn undir þessum lið.
Tilboð barst frá einum aðila Sveini Sighvatssyni. Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum Sveins í viðgerðir á Mötuneyti Nesjaskóla, það hljóðaði upp á kr. 1.437.400 og var 4,7% yfir kostnaðaráætlun, Leikskólanum Óla prik sem er upp á kr. 399.240 eða 12,3% yfir kostnaðaráætlun og Mánagarði upp á kr. 1.512.600 sem er 5,9% yfir kostnaðarverði. Bæjarráð hafnar tilboði í sundlaug.
Stefán sagði frá tillögum að afgreiðslu styrkja til verkefnisins „ Þekking stúdenta í þágu þjóðar“.
Tjaldsvæði endurbætur
Valur fór yfir kostnað við endurbætur á tjaldsvæði. Afgreiðslu málsins frestað.
Egill Jón lagði fram eftirfarandi bókun:
„Undirritaður leggur til að bæjarráð setji á laggirnar teymi til að yfirfara öll leiktæki og leiksvæði barna í sveitarfélaginu með tilliti til slysavarna. Hlutverk þessa teymis verði að fara reglulega yfir öll leiktæki og leiksvæði barna og unglinga. Hópur þessi sér um að láta laga það sem betur má fara og fjarlægja þau tæki sem eru úr sér gengin og hættuleg. Teymið sér jafnframt um að lista öll þau tæki sem eru á ábyrgð sveitarfélagsins svo og þá staði sem sérstaklega þarf að fylgjast með. Teymið sér sjálft um að útfæra starfsreglur sínar og leggur þær fyrir bæjarráð til samþykktar. Mikilvægt er að hópur þessi taki nú þegar til starfa.“
Bæjarráð samþykkir að myndað verði teymi til að sinna þessum málum og felur tækni- og umhverfissviði að hafa forgöngu um málið.
Merkingar og skiltagerð í sveitarfélaginu
Sigurlaug sagði frá fundi sem haldinn verður í dag um merkingar og skiltagerð í sveitarfélaginu. Hún telur æskilegt að verkefnið verði sett í ákveðinn farveg og að því komi ýmsir hagsmunaaðilar m.a. frá sveitarfélaginu.
Halldóra þakkaði samstarfið á kjörtímabilinu og óskaði öllum velfarnaðar. Gísli Sverrir, Hermann, Sigurlaug og Egill Jón þökkuðu samstarfið við kjörna fulltrúa og starfsmenn á tímabilinu og óskuðu nýjum fulltrúum velfarnaðar. Bæjarstjóri þakkaði samstarfið. Stefán þakkaði samstarfið fyrir hönd starfsmanna sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 10:15


