Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 272
272. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 25. nóvember kl. 10:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, formaður, Reynir Arnarson og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 55. fundur, 15. nóvember.
Bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarráðs um að óvissuástandi um fjárhag HSSA verði aflétt og aukin þungi verður lagður í viðræður við heilbrigðisráðuneytið um málið.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs, 23. fundur, 15. nóvember.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 65. fundur,. 17. nóvember.
Rætt um fyrirspurn formann skólanefndar um hlut eignarsjóðs í viðhaldi. Fram kom að eignarsjóður greiðir meiriháttar viðhald en stofnanir sjálfar minniháttar viðhald.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2005
Rætt um óskir um stofnbúnað, hækkun á rekstrarrömmum, styrkjaramma, viðhald fasteigna og gjaldskrár.
Ákvörðunum frestað til næsta fundar.
Helgi Már lagði fram skýrslu um sorpmál. Rætt var um framtíðar skipulag á sorpmálum í sveitarfélaginu, gjaldtöku og flokkun úrgangs.
3. Nýr kjarasamningur Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands
· Greinargerð formanns samninganefndar sveitarfélaga og kostnaðarmat, dags. 19. nóv. 2004.
4. Ósk um álit á hvort framkvæmd á hringvegi um Dynjanda skuli háð mati á umhverfisáhrifum og ósk um framkvæmdaleyfi
· Bréf frá Skipulagsstofnun, dags. 16. nóvember 2004.
· Bréf Vegagerðarinnar dags. 11. nóvember 2004 frestað á síðasta fundi.
Helgi Már gerði grein fyrir málinu. Um er að ræða 1.300 metra langan vegakafla og þar af liggja 400 metrar út í fjöru. Eftir breytingar munu vegfláar ná allt að 15 metra út í fjöruna. Hafa ber í huga að aðeins um mjög lítið brot af sjávarfitjum og leirum Skarðsfjarðar er að ræða. Helgi Már lagði fram bréf frá safnverði Byggðasafns Austur-Skaftafellssýslu, dags. 25. nóvember 2005 þar sem hann gerir ekki athugasemd varðandi framkvæmdina.
Bæjarráð telur að ekki sé ástæða til mats á umhverfisáhrifum þar sem framkvæmdin hafi ekki umtalsverð umhverfisáhrif hvorki vegna eðlis né umfangs hennar. Þó telur bæjarráð rétt að bíða umsagnar annarra aðila um hvort framkvæmdin sé háð umhverfismati áður en framkvæmdaleyfi er veitt, sbr. bréf skipulagsstofnunar.
5. Ósk um styrk vegna landgræðsluframkvæmda í Hornafirði.
· Landgræðslustjóri, bréf dags. 11. nóvember 2004, vegna landgræðsluframkvæmda í Hornafirði.
Erindinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Umhverfisnefnd Alþingis, bréf dags. 15. nóvember 2004 vegna umsagnar um frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum og skipulags- og byggingarlög, o.fl. (www.http://www.althing.is/altext/131/s/0241.html).
Helgi Már gerði grein fyrir að breytingin feli í sér kostnaðaraukningu fyrir sveitarfélög. Aukin vinna, völd og ábyrgð er lögð á herðar sveitarfélaga en hvergi kemur fram að tekjumöguleikar fylgdu með.
Bæjarráð fagnar því að aukið ákvörðunarvald sé fært til sveitarfélaga en leggur áherslu að tekjumöguleikar fylgi með auknum verkefnum og ábyrgð.
Starfsmönnum falið að senda inn umsögn til umhverfisnefndar Alþingis.
· Haust, bréf dags. 16. nóvember 2004, varðandi leikvallatæki og leiksvæði.
Til kynningar.
· Félagsmálanefnd Alþingis, 17. nóvember 2004, vegna umsagnar um lög um Lánasjóð sveitarfélaga.(www. http://www.althing.is/altext/131/s/0290.html)
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, dags. 19. nóvember 2004, vegna leiðbeininga við gerð svæðisáætlana um meðhöndlun úrgangs.
Til kynningar.
· SSA, bréf dags. 19. nóvember 2004, umsögn stjórnar SSA um tillögur sameiningarnefndar um breytingar á sveitarfélagaskipan og árgjöld til SSA.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Bæjarstjóri lagði fram minnisblað, dags. 16. nóvember 2004 og kynnti hugmynd sína og framkvæmdastjóra sviða að breyttu skipulagi í yfirstjórn bæjarins, þ.m.t. Menningarmiðstöð og HSSA. Breytingin er tilraunaverkefni til eins árs. Bæjarráð leggur til að áfram verði unnið að útfærslu þessara hugmynda og kynningu á þeim.
· Helgi Már kynnti tilboð Rósaberg ehf. í framkvæmdir við fráveitu sem gerir ráð fyrir 104,9% af kostnaðaráætlun. Bæjarráð felur Helga Má að ganga til samninga við Rósaberg.
· Stefán lagði fram bréf frá framkvæmdastjóra Landsamtakanna Þroskahjálpar, dags. 17. nóvember 2004 þar sem samtökin hafna að svo komnu máli umsókn fræðslu- og félagssviðs um styrk til úrbóta í húsnæðismálum fatlaðra. Einnig lagði hann fram bréf til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi, dags. 24. nóvember 2004. Bæjarráð heimilar framkvæmdastjóra að sækja um styrk til framkvæmdasjóðs fatlaðra.
· Bæjarstjóri gerði grein fyrir að endurskoðandi sveitarfélagsins hygðist láta af störfum á næsta ári. Rætt var um hvernig standa bæri að útboði á endurskoðun.
Fundi slitið kl. 12.30


