Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 271
271. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 18. nóvember kl. 10:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, formaður, Reynir Arnarson og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
? Byggingar- og skipulagsnefnd 56. fundur 11. nóvember 2004.
Spurt var um leyfi fyrir breytta notkun hússins að Álaugarvegi 4. Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir að framtíðaráform eigenda væri að koma á fót fiskvinnslu.
Bæjarráð óskar eftir því að kannað verði hvort hægt sé að fjarlæga bílflök sem víða liggja í innkeyrslum.
Rætt var um umgengni á lóð við Bugðuleiru 2. Bæjarráð samþykkir að gefa eigenda lokaaðvörun. Ef eigandi bregst ekki við og bætir umgengni á lóðinni afturkallar bæjarráð starfsleyfið.
Fundargerð samþykkt.
? Félagsmálaráð Hornafjarðar 118. fundur 9. nóvember 2004.
Fundargerð samþykkt.
? Æskulýðs- tómstundaráð 63. fundur 25. október 2004.
Fundargerð samþykkt.
? Umhverfisnefnd Hornafjarðar 46. fundur 8. nóvember 2004.
Rætt var um akstur utan vega og merkingar á vegaslóðum. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að málinu.
Fundargerð samþykkt.
? Fundargerð Aðalfundar byggðasamlags um Heilbrigðiseftirlit Austurlands, 27. október 2004.
Til kynningar.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir því að gildistími laga um styrki frá Umhverfisráðuneytinu vegna fráveituframkvæmda verður væntanlega lengdur.
?
2. Fjárhagsáætlun 2005
Bæjarráð samþykkir að álagningareglur verða óbreyttar nema að lóðarleiga verði 1% af lóðarmati.
Rætt var um viðhald á næsta fjárhagsáætlunar ári. Samþykkt að taka málið fyrir á næsta fundi.
Vinnuskjal að framkvæmdaáætlun lagt fram.
3. Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir hringveg um Dynjanda
? Bréf Vegagerðarinnar dags. 11. nóvember 2004.
Frestað til næsta fundar.
4. Eignarhald á félagsheimilum og íþróttavöllum í sveitarfélaginu
Starfsmenn greindu frá þeirri vinnu sem fram hefur farið undanfarnar vikur. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5. Innsend erindi og til kynningar
? Ríkisskattstjóri, bréf dags. 8. nóv. 2004 vegna staðgreiðslu og persónuafsláttar kennara í verkfalli.
Til kynningar.
? Breytingar á auglýsingum um reikningsskil sveitarfélaga.
Til kynningar.
? Samband íslenskra sveitarfélaga, tölvubréf dags. 12. nóv. 2004, um niðurstöður grunnskólaþings sveitarfélaga 2004.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Bæjarstjóri kynnti erindi Karls Rafnssonar um styrk til endurvinnslu á myndefni Rafns Eiríkssonar. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Stefán gerði grein fyrir bréfi frá svæðisskrifstofu Austurlands varðandi umsóknir í Framkvæmdasjóð fatlaðra. Bæjarráð heimilar fræðslu- og félagssviði að senda inn umsókn.
Rætt var um tölvubréf frá kennurum við Grunnskóla Hornafjarðar, skólastjórum og Kristínu Gestsdóttur kennara þar sem áhyggjum var lýst af starfi grunnskóla í héraðinu og óskað eftir viðbrögðum bæjarstjórnar. Bæjarstjóri kynnti efnislega bókun sem lögð verður fram á bæjarstjórnarfundi síðdegis. Bæjarráð fagnar þeirri ábyrgð sem kennarar sýndu með því að raska hvergi skólastarfi í kjölfar lagasetningar í kjaradeilu þeirra við sveitarfélögin. Bæjarráð samþykkir að haft verði samráð við kennara um uppgjörsmál.
Fundi slitið kl. 11.50


