Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
176. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 11. júlí 2002, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir , Ólafur Sigurðsson og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi M. Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Fram kom ábending frá formanni um að við kjör formanns bæjarráðs á 173. fundi láðist að bóka nafn varaformanns bæjarráðs. Formaður gerði tillögu um að Elín Magnúsdóttir verði kjörin varaformaður. Bæjaráð samþykkti tillögun.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingarefnd Nýheima 46. fundur 26. júní og 47. fundur 5. júlí.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 76. fundur 27. júní 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 38. fundur 1. júlí 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 41. fundur 26. júní 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð 30. fundar HAUST 10. júní 2002 til kynningar
· Fundargerð samstarfsnefndar leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga 54. fundur 13. júní 2002 til kynningar.
· Fundargerð 692. fundar Sambands ísl. sveitarfélaga 14. júní 2002 til kynningar.
2. Erindi frá Menningarmálanefnd Hornafjarðar
· Bréf dags. 2. júlí 2002.
Til stendur að taka öll erindisbréf nefnda til endurskoðunar í einu og mun þá verða tekið tillit til fram kominna ábendinga skv. lið 1 í ofangreindu bréfi. Bæjarráð óskar eftir greinagerð frá forstöðumanni Menningarmiðstöðvar um væntanlegann kostnað vegna flutnings í nýtt húsnæði.. Bæjarráð óskar eftir því að forstöðumaður og Inga Jónsdóttir vinni umsókn í Styrktarsjóð EBÍ skv. lið 4 í bréfinu. Varðandi mikilvægi þess að eignast gott hljóðfæri í Nýheima þá kom fram að ekki er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir fjármagni til þessara kaupa né heldur í áætluðu fjármagni til stofnbúnaðarkaupa í húsið. Ábending kom fram um að þetta væri verðugt verkefni fyrir félagasamtök á staðnum.
3. Skipun í starfshóp vegna vígslu Nýheima
Bæjarráð tilnefnir eftirtalda aðila í starfshóp:
Gísla Sverri Árnason
Eyjólf Guðmundsson
Albert Eymundsson og
Rannveigu Ólafsdóttur
Bæjarráð felur Alberti Eymundssyni að kalla saman hópinn.
4. Umsóknir um vínveitingaleyfi
· Umsókn frá Einari B. Einarssyni vegna veitingahússins við Jökulsárlón dags. 23. mars 2002.
· Umsókn frá Helgu Erlendsdóttur vegna Árnaness veitingahúss 22. maí 2002.
· Umsókn Knut Bruun vegna Gistiheimilisins Frost og funi, Hofi, Öræfum dags. 6. maí 2002.
· Umsókn Sigurbjarnar J. Karlssonar vegna Ferðaþjónustunnar Smyrlabjörgum dags. 31. maí 2002.
· Umsókn Renatos Grunenfelder vegna Fosshótels Vatnajökuls dags. 16. maí 2002.
Öll tilskilin gögn og umsagnir vegna þessara umsókna liggja fyrir.
Bæjarráð samþykkir útgáfu vínveitingaleyfa til ofangreindra aðila.
5. Óskir um umsagnir um veitingu rekstrarleyfa
· Umsögn um endurnýjun á leyfi fyrir Hrafnkel Ingólfsson til að reka veitingastofu/greiðasölu í Hafnarbúðinni, Ránarslóð 2 á Höfn dags. 20. júní 2002.
· Umsögn um endurnýjun á leyfi fyrir Renato Grunenfelder til að reka hótel og veitingahús Fosshótel Vatnajökul dags. 20. júní 2002.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfa til ofangreindra aðila.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga boðun dags. 19. júní og upplýsingar um gistingu og flug á þingið dags. 1. júlí 2002.
Til kynningar.
· Gögn frá Haust vegna fundar fráveitunefndar 6. júní s.l..
Til kynningar.
· Tilkynningar til sveitarfélaga um fasteignamat eigna sem athugasemd var gerð við vegna endurmats 2001 dags. 3. júlí 2002.
Til kynningar.
· Tilkynning frá Fiskistofu um aðgang að upplýsingum um verðmæti afla dags. 24. júní 2002.
· Til kynningar.
· Þjóðhagsstofnun kveður – bréf Sigurðar Guðmundssonar forstjóra dags. í júní 2002.
Til kynningar.
· Bréf Kirkjugarðasambands Íslands dags. 24. júní 2002.
Til kynningar.
· Ný reglugerð um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla, bréf dags.11. júní 2002.
Til kynningar.
· Erindi Pricewaterhouse Coopers dags. 14. júní 2002 um námskeið fyrir sveitarstjórnarfólk o.fl.
Til kynningar.
· Tilkynning frá Brunamálastofnun dags. 4. júlí 2002 um styrk til slökkviliðs.
Bæjarráð tilnefnir Steinþór Hafsteinsson sem ábyrgðaraðila fyrir gerð skýrslu um mögulega samvinnu slökkviliða Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
· Bréf umhverfisráðuneytis vegna samvinnunefndar miðhálendis dags. 1. júlí 2002.
Til kynningar.
· Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga vegna 1% viðbótarframlags í séreignasjóð dags. 2. júlí 2002.
Til kynningar.
· Tilkynning um aðalfund SASS 30. og 31. ágúst n.k..
Til kynningar.
7. Önnur mál
Ósk um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Bæjarráð samþykkir að verða við beiðninni en telur æskilegt að mótaðar verði vinnureglur um afgreiðslu sambærilegra erinda.
Bæjarstjóri sagði frá fundum með iðnaðar- og viðskiptaráðherra og fulltrúa Nýsköpunarsjóðs vegna Nýheima.
Ásta sagði frá möguleika á láni frá Norræna Fjárfestingabankanum.
Bæjarráð veitir Ástu heimild til að vinna áfram að umsókn um lánið í gegnum Lánasjóð sveitarfélaga.
Bæjarstjóri sagði frá heimsók menntamálaráðherra til Hornafjarðar á morgun og fór yfir dagskrá heimsóknarinnar.
Fundi slitið kl. 11:00


