Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
178. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 8. ágúst 2002, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir , Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 41. fundur 2. júlí 2002, 42. fundur 1. ágúst 2002.
Fundargerðir samþykktar.
2. 6 mánaða uppgjör
Ásta fór yfir 6 mánaða uppgjör bæjarsjóðs og lagði fram til kynningar 6 mánaða uppgjör Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Ljóst er að margar stofnanir sveitarfélagsins þurfa að gæta aðhalds í rekstri til að halda sig innan fjárhagsáætlunar.
3. Holræsamál í Nesjum
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við landeiganda um málið.
4. Menningarmál
· bréf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar dags. 25. júlí 2002.
Bæjarráð samþykkir að menningarmálanefnd sé heimilt að ráðstafa allt að kr. 500.000,- vegna flutnings safnsins. Bæjarráð vísar tillögum sem hafa í för með sér aukinn rekstrarkostnað til umfjöllunar í menningarmálanefnd.
5. Lengd viðvera í skólum
Stefán fór yfir þann kostnað sem lengd viðvera hefði í för með sér. Miðað við núverandi gjaldskrá er ekki rekstrargrundvöllur fyrir lengdri viðveru. Bæjarráð felur Stefáni að skoða málið frekar.
6. Önnur mál
Bæjarstjóri sagði frá undirbúningi vígslu Nýheima sem verður 24. ágúst n.k.
Stefán ræddi hugsanlegt útboð á skólamáltíðum fyrir nemendur í Hafnarskóla og Heppuskóla. Bæjarráð samþykkir að unnin verði útboðsgögn og skólamáltíðir boðnar út.
Ólafur gerði athugasemdir vegna auglýsinga í útvarpinu frá sveitarfélaginu og segir að ferðaþjónustuaðilum telji sér mismunað.
Fundi slitið kl. 12:08


