Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
179. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 20. ágúst 2002, kl 15:30
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir , Ólafur Sigurðsson og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingarnefnd Nýheima 48. fundur 14. ágúst 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 31. fundur 31. júlí 2002 til kynningar.
2. Þáttaka í stofnun og rekstri Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf.
· Erindi frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins dags. 9. ágúst 2002.
Bæjarráð samþykkir þáttöku í stofnun og rekstri Frumkvöðlaseturs Austurlands með fyrirvara um þáttöku annarra aðila skv. fyrirliggjandi drögum Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
3. Fyrirspurn um nýtingu forkaupsréttar
· Bréf Ragnars Gunnarssonar f.h. Norðurlindar ehf. dags. 15. ágúst 2002 vegna Hrafnsey SF 8.
Sveitarfélagið Hornafjörður afsalar sér forkaupsrétti að Hrafnsey SF 8.
4. Ósk um umsögn vegna útgáfu veitinga- og gistileyfis
· Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 12. ágúst 2002 vegna veitingastofu/greiðasölu að Smyrlabjörgum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun veitinga- og gistileyfis að Smyrlabjörgum.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Fundarboð á aðalfund byggðasamlags um Heilbrigðiseftirlit Austurlands 18. sept. n.k..
Bæjarstjóra er falið að finna aðila til að fara með umboð bæjarins á fundinum.
· Gögn fyrir aðalfund SSA 22.- 23. ágúst n.k.(eru sér í pakka).
Til kynningar.
· Fréttabréf SSA júlí 2002 (sér í pakka).
Til kynningar.
6. Önnur mál
Lengd viðvera í skólum
Stefán fór yfir áætlaðan kostnað við lengda viðveru.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun:
„Áætlaður kostnaður við lengda viðveru er um krónur 1.050.000. Bæjarráð samþykkir að greiða allt að krónur 250.000 með starfseminni en að öðru leyti standi greiðslur foreldra undir kostnaði við reksturinn. Jafnframt felur bæjarráð starfsmönnum að kynna nýja gjaldskrá sem stefnir að því að ná þessum markmiðum. Náist þau ekki verður ekki boðið upp á lengda viðveru næstkomandi skólaár.“
Búnaður í kaffiteríu Nýheima
Bæjarráð samþykkir að veita byggingarnefnd Nýheima heimild til að kaupa stofnbúnað í kaffiteríu Nýheima fyrir allt að 1milljón kr.
Félagsmiðstöð
Bæjarráð samþykkir að auka framlag til launaliðs félagsmiðstöðvar um allt að 300 þúsund kr.
Stefán kynnti annars vegar breytta nýtingu á húsnæði í Nesjaskóla og hins vegar útboð á skólamáltíðum.
Beiðni um samþykki bæjarstjórnar á leigusamningi um jörðina Syðri Fjörð í Lóni í Hornafirði
Bæjarráð samþykkir kynntan leigusamning um jörðina Syðri Fjörð með fyrirvara um samþykki jarðanefndar.


