Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
180. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 29. ágúst 2002, kl 15:30
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir , Reynir Arnarson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 38. fundur 12. ágúst 2002.
Athugasemdir voru gerðar við orðalag afgreiðslu vínveitingarleyfa. Nefndin gefur einungis umsögn um veitingu leyfanna.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 39. fundur 19. ágúst 2002.
Bæjarráð er jákvætt fyrir að rætt verði við fulltrúa Sisimut um vinabæjarsamskipti.
Bæjarráð beinir því til menningarmálanefndar að taka til skoðunar heildarskipulag og rekstur menningarmiðstöðvarinnar, sérstaklega með tilliti til framtíðarskipulags allra safnanna. Mikilvægt er að nýta næstu mánuði vel vegna leigusamnings á vöruhúsi og tryggja fjármögnun til lengri tíma.
Bæjarráð tekur undir bókun menningarmálanefndar vegna Camp - Hornafjörður.
Fundargerð samþykkt.
2. Breytingar á starfi/starfslýsingu
Bæjarráð óskar frekari upplýsinga frá skólaskrifstofu varðandi fjárhagsleg áhrif þessara breytinga.
3. Umsókn um aukastyrkveitingu
Bæjarráð fer fram á frekari gögn frá Mána. Afgreiðslu frestað.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Menntamálaráðuneytis dags. 15. ágúst 2002 vegna reksturs Nýheima.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við sérfræðinga um hvaða möguleikar eru varðandi skiptingu eignarhalds, rekstur og lokafjármögnun Nýheima.
· Fundarboð á aðalfund SASS 30. og 31. ágúst 2002.
Til kynningar.
· Bréf EBÍ dags. 16. ágúst 2002 – tilkynning um ágóðahlutagreiðslu.
Til kynningar.
· Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 20. ágúst 2002 v. félagslega húsnæðiskerfisins.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Bæjarstjóri kynnti tilboð sem borist hefur í framleiðslu skólamáltíða.
Bæjarstjóri sagði frá beiðni um tvöfaldan skólaakstur.
Bæjaráð vísar eindinu til skólaskrifstofu og skólanefndar til umsagnar.
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélag um tillögur að breytingum á lögum sambandsins. Til kynningar
Dagskrá málþingsins „ Íþrótta – og æskulýðsstarf – grunnur að góðu samfélagi “ sem haldið verður í sal Menntaskólans á Egilsstöðum 6. september n.k.
Bæjarráð vísar erindinu til æskulýðs- og tómstundaráðs.
Erindi frá Bandalagi íslenskra skáta þar sem þess er óskað að bæjarstjórn Hornafjarðar beiti sér fyrir því að framtíð skátafélagsins Frumbyggja verði tryggð.
Bæjarráð vísar eirndinu til æskulýðs- og tómstundaráðs.
Bréf dags. 23. ágúst s.l. frá Brynju Baldursdóttur um lengda viðveru. Til kynningar.
Bréf landbúnaðarráðuneytisins dags. 22. ágúst um reglugerð um búfjáreftirlitssvæði og framkvæmd eftirlits.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við skiptingu búfjáreftirlitssvæða.
Bréf dags. 23. ágúst s.l. frá Knd. Sindra þar sem farið er fram á afnot að Hafnarbraut 25. - Til kynningar.
Halldóra spurðist fyrir um stöðu verklegra framkvæmda.
Helgi Már mun vinna greinagerð fyrir næsta bæjarráðsfund.
Halldóra benti á nauðsyn góðrar heimasíðu fyrir Nýheima
Næsti bæjarstjórnarfundur verður fimmtudaginn 19. september.


