Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 269
269. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss, þriðjudaginn 26. október 2004, kl. 15:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 13. fundur 20. október 2004.
Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs greindi frá fyrirhuguðu málþingi um atvinnumál, þann 12. nóvember n.k. Hann kynnti hugmyndir sínar og Ara Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Frumunnar, um dagskrá, tímasetningar og hugsanlega fyrirlesara á málþinginu.
Halldóra ræddi um næstu skref varðandi eflingu símenntunar á Hornafirði. Bæjarráð leggur til að starfshópur um símenntun kanni leiðir til fjármögnunar til að koma á fót stöðugildi sem varðar símenntun í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 64. fundur 20. október 2004.
Bæjarráð staðfestir bókun skólanefndar um bréf Ragnars F. Kristjánssonar og Ullu R. Pedersen, dagsett 8. október 2004. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að athuga hvort að nemandinn geti stundað nám fram á vor í Grunnskólanum í Hofgarði.
Bæjarráð telur eðlilegt að taka afstöðu um tillögu menntamálaráðuneytisins um breytta námskipan til stúdentsprófs þegar athugun á kostnaðarhlið málsins hefur verið metin.
Halldóra ræddi um stöðu grunnskólabarna í yfirstandi verkfalli. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að kanna leiðir til þess að létta undir með fjölskyldum í verkfallinu og huga að aukinni viðveru.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 718. fundur 15. október 2004 til kynningar.
Til kynningar.
2. Samgöngumál
Umdæmisstjórar Vegagerðarinnar á Suðurlandi og Austurlandi mættu á fundinn, fóru yfir girðingarmál, fyrirhugaðar vegaframkvæmdir og safnvegi.
3. Reglugerð um Skaftafellsþjóðgarð
Vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
4. Fundarboð á ársfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Reynir Arnarson tilnefndur sem fulltrúi sveitarfélagsins.
5. Ósk um styrk
· Bréf nemenda FAS dags. 19. október 2004
(Halldóra Bergljót vék af fundi undir þessum lið).
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
6. Ósk um viðræður um kjarasamning
· Bréf Vökuls dags. 18. október 2004.
Bæjarráð vísar í eftirfarandi bókun frá 264. fundi sínum, fimmtudaginn 23. september 2004:
„Bæjarráð hefur vísað kjarasamningsumboði vegna samninga við Vökul til Launanefndar. Þar er unnið hörðum höndum að gerð nýs starfsmats m.a. með aðkomu Vökuls Stéttarfélags.
Bæjarráð telur ótímabært og ekki eðlilegt að farið verði að vinna annað starfsmat sérstaklega fyrir Vökul þegar unnið er að heildstæðu og samræmdu mati á landsvísu á vegum LN og launþegasamtaka.“
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að vinna að málinu og fá frekari upplýsingar frá Vökli um þær óskir sem koma fram í bréfinu.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna fjármálaráðstefnu , dags. 208. október 2004.
Til kynningar.
· Bréf Landsbanka Íslands vegna kynningar á þjónustu, dags. 15. október 2004.
Til kynningar.
· Bréf SSA, dags. 18. október 2004.
Til kynningar.
8. Önnur mál
· Ný tilboð til endurfjármögnunar lána sveitarfélagsins kynnt. Bæjarráð samþykkir tilboð Landsbankans á endurfjármögnun á lánum, allt að 260 milljónum til 15 ára. Tilboðið hljóðar upp á fasta vexti 4,75%, verðtryggingu og lántökugjald er 0,75%. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fjármálasviðs að ganga frá málinu.
· Framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynnti kauptilboð í Bjarnahól 7. Bæjarráð samþykkir tilboðið.
· Framkvæmdastjóri fjármálasviðs fór yfir viðræður starfsmanna sveitarfélagsins og starfsmanna heilbrigðisráðuneytisins um málefni HSSA í síðustu viku. Bæjarráð telur að ekki hafi fengist eðlilegar leiðréttingar af hálfu heilbrigðisráðuneytisins varðandi efndir á þjónustusamningi milli sveitarfélagsins og ráðuneytisins. Mikilvægt er að niðurstaða fáist í þessi mál sem allra fyrst.
· Bæjarstjóri gerði grein fyrir lóðarleigusamningi sem hann undirritaði í vikunni. Bæjarráð gerir ekki athugasemd varðandi samninginn.
· Bæjarstjóri las upp bréf frá forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar þar sem hann segir starfi sínu lausu.
· Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs gerði grein fyrir viðræðum sínum við félagsmálaráðuneytið um greiðslur vegna málefna fatlaðra.
· Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs gerði grein fyrir útboði í fráveitumálum. Bæjarráð samþykkir að útboð verði auglýst í Eystrahorni.
· Formaður bæjarráðs lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Vegna þeirra óvenjulegu stöðu sem nú er uppi í samfélaginu hjá fjölskyldufólki og vegna þeirrar ábyrgðar sem kjörnir sveitarstjórnarmenn bera gagnvart íbúum sveitarfélagsins, legg ég undirrituð til að Sveitarfélagið Hornafjörður standi fyrir sérstökum fjölskyldudegi laugardaginn 6. nóvember n.k. í samstarfi við Sindra og Æskulýðs- og tómstundaráð.“
Æskulýðs – og tómstundafulltrúa falið að vinna að málinu.
Fundi slitið kl. 18:10


